Freyr

Árgangur

Freyr - 01.07.1945, Blaðsíða 3

Freyr - 01.07.1945, Blaðsíða 3
[ ] 1 3W J MflNfl-DflRBLflÐ UM LflNDB Ú N (flÐ Nr. 7 Reykjavík, júlf 1945 XL. árg Á ekki að byrja á upphafinu? Kröfur nútímans eru: Aukin tœkni — meiri orka. — Þannig er auglýst með stórum stöfum og þannig er hrópað úr ræðustól- um og á gatnamótum af býsna mörgum, sem telja sig til þess færa og útvalda, að leiða þjóðina til hins íyrirheitna lands alls- nægtanna, þar sem spakmælið forna: í sveita þíns andlitis skaltu þins brauðs neyta gildir eigi framar. Þar, sem enginn þarf að erfiða, en allflestir geta setið auðum hönd- um og stjórnað orku og fjármunum. Bændurnir og landbúskapurinn verða einnig aðnjótandi, í ræðu og riti, nokkurs af því, sem koma skal. En meðan fyrir- heitna landið er ekki fullnumið, og 5—6 þúsundir bænda sitja enn á jörðum sínum, í dreifbýli við misjöfn kjör, og ganga að því sem gefinni staðreynd, að þeir verði að erfiða eftir megni, til að sjá sér og sínum farborða, og til að bæta hag sinn hæg- um skrefum, sé ég þann kost vænstan að ræða um þau tæki, sem hér eru þekkt af nokkurri reynslu, sem létta störf- in og erfiðið en afnema það ekki. Nógir aðrir reynast þess albúnir að fræða um „undur og stórmerki“ er koma skulu. Bændur eru nú að eignast búvélar örar og meira en áður hefir þekkzt. Vélar, sem yfirleitt eru miðaðar við áframhaldandi þróun þeirra búnaðarhátta, er þeim hafa bezt gefizt, en ekki við byltingu. En þótt hægt miði, samanborið við óskir og úrræði hinna háfleygustu postula vélamenningar- innar, ber þegar nokkuð á því, að mörgum bóndanum veitir örðugt að ná fullum tök- um á þeim „einföldu“ vélum, sem þeir eru að eignast. Um það atriði er ef til vill vert að ræða, þótt segja megi að slíkt sé að halda sér æði mikið við jörðina og nútím- ann. — Það er ekki minna um vert að gæta fenginna véla og nota þær sem bezt, en að afla þeirra. Um 200 bændur eignast dráttarvélar á þessu ári, og þar við bætast þó nokkur bún- aðarfélög og búnaðarsambönd með stærri vélar. Þetta er allmikið, þegar þess er gætt, að fyrir rúmlega ári síðan voru töluvert inn- an við 100 dráttarvélar alls til á landi hér. Flestöllum dráttarvélunum fylgja einhverj- ar vinnuvélar af nýjum gerðum, t. d. sláttu- vélar og plógar, sem eru þannig tengdir við þær, að einn maður stjórnar hvoru tveggja, dráttarvél og vinnuvél. Múgavél- arnar eru að ná útbreiðslu — en mörgum gengur illa að átta sig á þeim við fyrstu sýn og not. Dráttarvélar eru teknar til nýrra nota, t. d. við að vinna á túnum, aka heim heyi og þannig mætti lengi telja.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.