Freyr

Árgangur

Freyr - 01.07.1945, Blaðsíða 12

Freyr - 01.07.1945, Blaðsíða 12
98 FRE YR Fjörubráðinn og varnir gegn honum í tilefni af þeim atburðum, að Gu'ðmund- ur Pálmason, vitavörður í Rekavík bak Látur, missti mest af ám sínum í fjöru- bráða veturinn 1936, tel ég rétt að láta koma fyrir almenningssjónir 16 ára reynslu mína í baráttunni við fjörubráðann, ein- kenni hans og varnir gegn honum, því að margar eru þær sauðfjárpestir, sem árlega höggva stór skörð í fjárstofninn, þótt hægt yrði að verjast fjörubráðanum að mestu eða öllu leyti. Það mun vera óhætt að fullyrða, að þar sem svo er háttað, að ís leggur firði, þar mun fjörubráðinn vera landlægur og koma fyrir meira og minna árlega. Hins vegar mun fjörubráða verða lítið eða ekki vart, þar sem hafsjór þvær iðulega fjör- urnar. Fjörubráðans verður mest vart í Góu- straumana. Þurfa menn þá að gæta þess, að beita ekki í fjöru fyrstu- dagana eftir hlákur, og þegar ísrek af lónum og fjörðum hefir borizt á beitarfjöruna, nema gefa fénu vel á morgnana, áður en það er látið út. Enn fremur að fylgja fénu eftir, ef það fer í fjöru, og vera við öllu búinn. Auðkenni fjörubráðans eru þessi: Skepn- an dettur niður með stunum, að ég hygg á fyrsta stundarfjórðungi eftir að hún hef- ir étið sóttkveikjuna. Oftast leggst hún á hægri hlið og réttir frá sér alla fætur. Þembist upp, stynur þungan, og úr nös- unum rennur slímkennd froða. Þegar auðkenni fjörubráða koma í ljós, verður að koma kindinni í hlýtt hús hið fyrsta og leggja hana á reiðingsdýnu eða annað, sem er nokkuð mjúkt. Gefa kind- inni strax svo sem hálfflösku af spenvolgri nýmjólk, strax úr kýrspenanum, mjólkuð í flöskuna. Ef kindin er ekki langt leidd, stendur hún upp 5—10 mínútum eftir inn- gjöfina. Dugi ekki mjólkurinngjöfin er gott að hella ofan i kindina bolla af sterku kaffi með 25 dropum af kamfórudropum. Hress- ist kindin ekki við síðari inngjöfina, þarf að setja henni stólpípu, og gera það sem fyrst, því að kindin lifir ekki yfir tvær klukkustundir frá því hún tók bakteríuna ef ekkert er að gert. Ofanskráða aðferð hefi ég notað undan- farin 20 ár með þeim ágæta árangri, að ég hefi sjaldan misst kind úr fjörubráða, og hafa þó oftast komið fyrir mörg fjöru- bráðatilfelli á hverjum vetri. Margir halda því fram, að ær þær, sem fá fjörubráða, láti lömbunum. Svo hefir ekki orðið hjá mér, nema þegar veikin hefir verið komin á mjög hátt stig. Selárdal, 20. marz 1945. Sigurður Samsonarson, frá Fagradal. Fjörubráðinn Ritstjóri Freys hefir óskað þess, að ég léti í ljós álit mitt á grein Sigurðar Sam- sonarsonar um fjörubráðann. Mér er ekki kunnugt um, að neinar verulegar rannsókn- ir hafi farið fram á sjúkdómi þeim, sem hér er lýst, þótt hann sé eflaust jafn gamall og sauðfjárrækt vor. Reynsla Sigurðar virðist mér mjög at- hyglisverð og skrif hans til fyrirmyndar öðrum bændum, sem kynnu að hafa álíka fróðleik í fórum sínum. Þar sem ég hefi ekki haft tækifæri til þess að kynnast slík- um sjúkdómi nánar, og orsök hans er ekki þekkt, get ég að sjálfsögðu engan dóm lagt á meðferð þá, sem Sigurður hefir notað, en tel rétt fyrir bændur að fylgja nákvæm-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.