Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2005, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2005, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 13.JÚNÍ2005 Fréttir DV SparkáTraffic og tóli veifað Enn berast fréttir af skemmtistaðnum Traffic við Hafnargötu í Keflavík, en aðfaranótt sunnudags var lögreglan tvívegis köll- uð á staðinn. Fyrri tilkynn- ingin barst kl. 4.19 vegna þess að stúlku hafði verið hrint harkalega á staðnum og hruflast eitthvað við það. Seinna útkalhð varð rúmri klukkustund síðar, en það var vegna stúlku sem sparkað hafði í bifreið þegar henni hafði verið vís- að út af staðnum. Þá barst lögreglu tilkynning um nakinn mann að veifa tóli sínu á Aðalgötunni en hann fannst ekki. Fyrirsæturnar farnar Módelin og súpermód- elin sem voru hér á landi á vegum Mosaic Fashions og DV hefur greint frá brugðu undir sig betri fætinum í Keflavík á laugardaginn áður en þær héldu upp í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Stelpurnar vöktu mikla at- hygli í bænum, enda glæsi- legur hópur á ferð þegar þær gengu niður Hafnar- götu, kíktu í tískuverslanir og litu í búðarglugga. Áður en þær kvöddu landið fengu þær sér snæðing í Reykjanesbæ. Hvert er ballband sumarsins? Sigvaldi Kaldalóns útvarpsmaður á FM9S,7 „Er það ekki Sálin? Ég held það. Það er alveg sama hvort þeir spila íeinhverju krumma- skuöi eða Reykjavlk, það er alltafstuð hjá þeim. Ég á líka von á að Skltamórall komi sterkur inn. En Sálin verður langstærst, það hefur enginn neittíþá." Hann segir / Hún segir „Ballband sumarsins? Guð minn almáttugur. Það ernú voöa lltið sem mér dettur I hug. Trabant eru auðvitað mjög góðir á tónleikum en ég veit ekki hvort það sé hægt að kalla þá ballband. Ég pæli mjög lltið í þessum sveitaball- amarkaði.“ Ellen Loftsdóttir plötusnúður Stjórnarandstaðan mun krefjast þess að Halldór Ásgrímsson segi af sér embætti forsætisráðherra ef Ríkisendurskoðun telur hann hafa verið vanhæfan við sölu Búnaðarbankans. Úrskurður Ríkisendurskoðunar er væntanlegur í dag. Forsætis- ráðherra var varaformaður framkvæmdanefndar um einkavæðingu. Halldór Ásgrímsson Blður úrskurðar Rlkis- endurskoðunar áðuren hann tjáir sig um máiið. Halldor segi aí ser annars arandstöðunnar séu ótímabærar og bamalegar. „Það verður að gefa Ríkis- endurskoðun ráðrúm til þess að fara yfir þessi mál," segir Magnús. Hann segist ekki verða var við taugatitring meðal Framsóknarmanna vegna málsins, menn verði einfaldlega að sjá hvað setur. „Við fáum að sjá þenn- an úrskurð Rfldsendurskoðunar fljót- lega. Þessi mál skýrast í vikunni," seg- ir Magnús. saj@dv.is Tíl hvers stjórnsýslulö Stjórnsýslulögunum er ætlað að auka öryggi borgaranna gagnvart embættisglöpum sem eigt rætur að rekja til spillingar eða kyn- þáttafordóma. I lögunum erákvæði um vanhæfi nefndarmanna við afgreiðslu mála. I 2. málsgrein þriðju greinar stjórnsýslu- laga segir að nefndarmaður sé van- hæfur til afgreiðslu máls efhann„er eða hefur verið maki aðila, skyldur eða mægöur aöila I beinan legg eða að öðrum lið til hliöar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiöingar." Það erþetta ákvæði sem Steingrímur J. Sigfússon benti á að forsætisráð- herra gæti hafa gerst brotlegur við í sjónvarpsviðtölum fyrir helgina, með eignaraðild hans og fjöskyldu hans i fyrirtækinu Skinney-Þinganess, sem var eignaraðili í Hesteyri sem aftur var milliliður i fléttu S-hópsins við kaupin á Búnaðarbankanum. Samkvæmt heimildum DV mun rfldsendurskoðandi kveða upp úr í dag um hugsanlegt vanhæfi HaUdórs Ásgrímssonar forsætis- ráðherra við sölu Búnaðarbankans. Stjórnarandstaðan mun krefjast afsagnar forsætisráðherra ef um vanhæfi er að ræða. Halldór Ásgrímsson hefur ekki tjáð sig um málið við fjölmiðla, en þær upplýsingar hafa borist úr stjórnarráðinu að hann muni ekki tjá sig um málið fyrr en úrskurður Ríkisendurskoðunar liggur fyrir. Líklegt þykir að stjórnarandstaðan muni ekki láta staðar numið, jafnvel þótt Rfldsendurskoðun hreinsi Halldór af meintu vanhæfi. son, formaður Frjálslynda flokksins. Guðjón bendir á að í síðustu skýrslu Rfldsendurskoðunar um málið hafl verið vísað í gögn frá framkvæmda- nefnd um einkavæðingu. Þessi gögn hafi ekki verið fyrirliggjandi og því sé ekki hægt að segja að um gagnsæja stjórnsýslu sé að ræða. „Spjótin bein- ast nú fýrst og fremst að forsætis- ráðherra sjálfum og viðbrögðum hans. Hann er sá maður Guðjón Arnar Krist- jánsson Segir aö málinu sé ekki lokið þótt Rlkisend- urskoöun hreinsi Halldór. sem á að þekkja málið best," bætir Guðjón við. Hugsanlega hagnast um 350 milljónir Páll Hreinsson, prófessor við laga- deild Háskóla fslands, segir að þær staðreyndir sem upp á vanti verði að fá á hreint. „Vonandi kemur þetta frá Rfldsendurskoðun hið fyrsta." segir Páll. Líkur eru leiddar að því að fjöl- skylda Halldórs hafi hagnast um 350 milljónir króna á sölu hluts Hesteyrar í Kerinu. Hesteyri er í eigu Skinneyj ar- Þinganess, fjölskyldufyrirtækis for- sætisráðherra,en Ker var hluti S- hópsins við kaupin á Búnaðarbank- ans. Enn hefur ekki fengist staðfest nákvæmlega hvenær Hesteyri seldi helmingseignarhlut sinn í Keri, en það er meðal þess sem Rflásendur- skoðun þarf að vinna úr. Barnaleg stjórnar- andstaða Magnús Stefánsson, varaformaður þingflokks framsóknar- manna, segir að þessar hug- leiðingar stjórn „Það er ljóst að ef Rfldsendurskoð- un birtir það álit að forsætisráðherr- ann hafi gerst brotlegur við stjóm- sýslulög verður stjómarandstaðan að krefjast þess að hann segi af sér embætti," jón Krist- jáns- //■ Spjótin beinastnú fyrst og fremst að for- sætisráðherra sjálfum og viðbrögðum hans. Hann er sá maður sem á að þekkja mál- best" Sigurður Þórðarson ríkis- endurskoðandi Tókmáliö upp að nýju jafnvel þótt hann hafi áöur sagt sölufyrir- komulagið óviðunandi. Yfir 20 kettir Ólafar Huldu Marísdóttur voru fjarlægðir úr gámi Kallar á yfirvöld vegna nýju Kattakonunnar Ólöf Helga Marísdóttir, eigandi um tuttugu katta sem fjarlægðir vom úr gámi á föstudag, hefur verið á göt- unni með kettina enda enginn sama- staður fyrir hana og kettina í leiguí- búðum úti í bæ að sögn Sigríðar Heiðberg í Kattholti. Ólöf geymdi kettina með búslóð sinni við Bflds- höfða í mánuð. „Þetta er bara mannlegur harm- leikur," segir Sigríður Heiðberg for- stöðukona í Kattholti um Ólöfu Huldu Marísdóttur. Þetta er í annað skiptið sem þurft hefur að taka kett- ina af Ólöfu. „Ég finn hryllilega til með henni, en ég finn lflca hryllilega til með köttunum," segir Sigríður. Að sögn Sigríðar Heiðberg er þetta erfitt mál þar sem Ólöf sé ekki með vilja að fara illa með dýrin. „Þessi manneskja er alls staðar rekin út með kettina. Hún gefur þeim alltaf að éta, hún hendir þeim ekki út, en hún get- Gámurinn Sem kettirnir höföu dvaliö I á Bíidshöföanum Irúman mánuð en ekkert haföi sþurst til þeirra síöan þeir hurfu frá húsnæöinu í Dugguvogi 2 eftiraö ÓlöfHulda hrökklaöist þaöan. ur bara ekki annast dýrin," segir Sig- ríður semnúhefurkettinaíKattholti. „Hún fær hvergi inni með alla þessa ketti, mikil vinna er að halda svona marga ketti og í raun þarf maður að eiga einbýlishús til þess að geta það." Að sögn Sigríðar er það yfirvalda DV í mars 2005 Þegar hér var komið sögu höfðu þeir verið fjar- lægðir áður en til útburðar kom i húsnæð- inu i Duggu- vogi. að grípa inn í þessi mál. “““T”' n t hvar hún er með fimmtan , „Þetta byrjar alltaf aft- BSasas“ ur því yfirvöld láta fólkiö fá dýrin aftur," bendir 3 Sigríður á en að hennar gl sögn er það Umhverfis- E stofnun sem sér um þessi"'' mál og vill hún meina að þeir standi sig hreinlega ekki í stykkinu. „Við mun- um nú eftir hinni Katta- konunni sem hafði verið dæmd fyrir illa meðferð á hrossum. Hún fékk kettina aftur og aftur," segir forstöðukonan um mál fyrri kattakonunnar, Guðrún- ar Stefánsdóttur. Ekki hefur tekist að hafa uppi á Ólöfu. Að sögn fjölskyldu hennar veit enginn hvar hún er niðurkomin. Kett- ir hennar gista nú Katthoit enn um sigr(ður Heiðberg, Katthoiti jg finn smn- hryllilega til meö henni en ég finn llka hrylli- lega til með dýrunum."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.