Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2005, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 13.JÚNÍ2005
Fréttir DV
Bræðurnir Kjartan Valur Guðmundsson og Halldór Örn Guðmundsson eru ákærð-
ir fyrir hrottalega líkamsárás á Jónas Val Jónasson fyrir um ári síðan. Jónas
tvíkjálkabrotnaði meðal annars og hefur ekki enn náð sér að fullu. Ofbeldisbræð-
urnir eru synir lögreglumanns á Selfossi.
I Ofbeldisbræður
Bræðurnir Kjartan
I Va/ur Guðmundsson
(til vinstri) og Halldór
Örn Guðmundsson
(til hægri) spörkuðu
[Itrekað ÍJónasVal
Jónsson meðan hann
Id óvlguríjörðinni.
Leita að heitu
vatni
Á fundi bæjarráðs Fjarð-
arbyggðar á fimmtudag var
kynnt að Orkustofnun hef-
ur ákveðið að styrkja heita-
vatnsleit sveitarfélagsins á
Reyðarfirði og Norðfirði
um sex milljónir á þessu
ári. Sveitarfélagið mun
leggja ffam samsvarandi
upphæð til leitarinnar.
Jarðfræðistofan Stapi leitar
nú tilboða í tilraunaboranir
og er stefnt að því að heita-
vamsleitir hefjist á þessu
ári. Áður hefur fundist heitt
vatn á Eskifirði og er nú
verið að leggja hitaveitu í
öll hús þar og mun því
verki ljúka um áramót.
17áraók
inn í garð á
Selfossi
17 ára drengur á Sel-
fossi virðist hafa fagnað
því fulldátt að fá öku-
skírteini sitt í hendurnar.
Drengurinn sem er ný-
kominn með bflpróf
ákvað að bregða sér á
rúntinn á 750 BMW-
inum sínum og sýna
fólki á götum bæjarins
nýjabflinn. Ekkivildi
betur til en svo að þessi
rúntur endaði með því
að drengurinn missti
stjóm á biffeiðinni í
krappri beygju, og ók inn
í garð með viðkomu á
rafmagnskassa. Á heima-
síðunni www.live2cm-
ise.com birtir frændi
drensins myndir af bfln-
um í runnanum og hlæja
bflatöffarar landins að
ófömm þessa 17 pilts
sem mun hafa sloppið
óhultur úr þessum
ógöngum.
Rúmföttil
lækningar á
ísafirði
Orku- og lækn-
ingarrúmföt era um
þessar mundir til
kynningar á ísafirði.
Þetta mun vera í
fyrsta skipti sem
þessi rúmföt era
kynnt annarsstaðar en í
Japan, en þar hafa þau ver-
ið í notkun um tíu ára
skeið. Maður heitir Okazaki
og kona Savu og vinna þau
saman að því að kynna
rúmfötin fyrir vestan. Savu
segir lækningarmátt rúm-
fatanna vera ótrúlegan og
erfitt sé að skýra út fyrir
fólki hvernig rúmföt geti
breytt þróun sjúkdóma.
Mikilvægt sé fyrir fólk að
reyna sjálft.
Synir logreglumanns
börðu nema til óbóta
Kjartan Valur Guðmundsson, 22 ára bflasali og 18 ára bróðir
hans, Halldór örn Guðmundsson, réðust á Jónas Val Jónasson á
Bfladögum á Akureyri í fyrra. Ákæra var gefin út á þá bræður fyrir
meiriháttar líkamsárás þann fjórða febrúar á þessu ári, en aðal-
meðferð í málinu var á fimmtudag.
„Menn gleyma svona seint," seg-
ir Jónas Valur Jónasson um árásina
sem hann varð fýrir aðfaranótt
sautjánda júní fyrir rétt tæpu ári síð-
an. Jónas átti sér þá enga von þegar
hópur stráka, undir forystu bræðr-
anna Kjartans Vals Guðmundssonar
og Halldórs Arnar Guðmundssonar,
réðist á hann og börðu til óbóta.
Bræðurnir era synir rannsóknarlög-
reglumanns í Reykjavík.
Sýslumaðurinn á Akureyri krefst
refsingar yfir bræðrunum en auk
þess fer lögmaður Jónasar fram á
rúmlega eina milljón króna í skaða-
bætur.
Hryllileg sjón
„Þetta var hryllingur," sagði eitt
vitnanna í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær um árásina en lýsing vitna á at-
burðarás þessarar örlagaríku nætur
samræmdust í nánast öllum tilfell-
um og vora einkar óhugnandi.
Samkvæmt vitnum var atburða-
rásin á þann veg að nokkrir strákar
veittust að stelpum sem vora að
skemmta sér á svæðinu. Rifrildi kom
upp og Jónas blandaði sér í málið
með því að koma stúlkunum til
hjálpar. ■ í öllum látunum endaði
Jónas á því að slá Halldór í andlitið.
Stuttu - síðar sáust Halldór og
Kjartan bróðir hans, auk fimm ann-
arra, elta Jónas sem reyndi að forða
sér á hlaupum. Þeir náðu að fella
hann og hófu þá strax að sparka í
hann og kýla, aðallega í höfuðið.
Þegar árásinni tók að linna reyndi
Jónas að standa upp en þá hljóp
Halldór að honum aftur og sparkaði
í höfúð hans af miklu afli og sagði að
enginn kæmist upp með að slá sig.
Að sögn Jónasar var lítið sem
vitni gátu aðhafst til að hjálpa hon-
um. „Þeir vora svo margir auk þess
sem flestir sem sáu þetta vora stelp-
ur.“
Tvíkjálkabrotinn
Framburður vitna segir að eftir
hópárásina hafi Jónas legið óvígur í
blóði sínu á jörðinni en þó verið
með meðvitund. Þegar Jónas komst
undir læknishendur var það mat
lækna að ástand hans væri svo
slæmt að ráðlegast væri að senda
hann með sjúkraflugi til Reykjavík-
ur. í árásinni tvíkjálkabrotnaði
Jónas, hlaut brot í fram og hliðar-
vegg hægri kinnar auk verulegra
bólgna í andlit.
„Ég lá á sjúkrahúsi í þrjá daga og
var óvinnufær í sex vikur eftir árás-
ina,“ sagði Jónas sem enn er með
verki í háls og kjálka eftir árásina og
óvíst er hvort hann muni nokkurn
tímann ná sér að fullu.
Engir hrottar
„Þetta er auðvitað leiðinlegt
mál og það er alltaf slæmt
þegar svona gerist,"
segir Guð-
mundur
Ingi
„Ég lá á sjúkrahúsi í
þrjá daga og var
óvinnufær í sex vikur
eftir árásina."
Ingason, rannsóknarlögreglumaður
hjá lögreglunni í Reykjavík og faðir
árásarmannanna Kjartans og Hall-
dórs.
„En mér finnst mikilvægt að það
komi fram að allt upp í níu manns
tóku þátt í slagsmálunum og því er
erfitt að segja hver gerði hvað. Það
kemur ekki í
ljós fýrr en
eftir
tvær
til
þrjár vikur þegar það verður dóms-
uppkvaðning í málinu. Það hefur
aldrei neitt komið fyrir þessa stráka
áður. Þeir era engir hrottar."
Guðmundur bendir jafnframt á
að Halldór hafi aðeins verið sextán
ára þegar árásin átti sér stað og sé
sautján ára núna þannig hann sé
enn undir bamaverndarumsjá.
Hann bendir jaftiffamt á að Halldór
„sé viðkvæmur strákur."
gudmundur@dv.is
johann@dv.is
Allir vilja eiga hlut í Mosaic Fashions hf.
Vinsæl hlutabréf
Samkvæmt heimasíðu KB banka
era almennu hlutafjárútboði Mosaic
Fashion formlega lokið. Mikill áhugi
og spenna er fyrir þessu nýja fyrir-
tæki sem er eigandi helstu
kvenntískumerkja frá Bretlandi.
Föstudaginn sl. var haldin gríðarleg
tískusýning í skautahöllinni sem
merki á borð við Oasis og Karen Mil-
len vora sýnd á tískupallinum. Karen
Millen sjálf mætti á tískusýningu
ásamt fleiri stórstjörnum. Önnur
merki undtír Mosaic era Whistles og
Coast.
Eftirsókn var gríðarleg eða um tvö
þúsund og þrjú hundrað manns ósk-
uðu eftir að kaupa hlut eða rúmlega
áttfalt fleiri hlutum en í boði vora.
Fjárfest var fyrir 10,7 milljarða króna
og hluthöfum verður úthlutað minna
hlutafé en íjárfest var fyrir.
irnimi
Tfskusýningin f Skautahöllinni fórvel
fram og seldust hlutabréfin vel.
Mosaic Fashions hf. verður skráð í
Kauphöll íslands 21 júní.
„Þaö liggur á að klára æfingar í Borgarleikhúsinu svo maður geti komið sér I sumarfrí, “ segir
Gunnar Hansson leikari.„Þaö veröur gott aö komast í frl og fara til útlanda en ég ætla að
skella mér til Spánar og hafa það gott,"
Lögreglan lýsir eftir eiganda
Hver er eigandi peninga-
skápsins?
Á lögregluvefnum má margt
sniðugt finna. Margur borgarinn
skilar inn hlutum til lögreglunnar
sem finnast á víðavangi. En á
heimasíðunni má finna ljósmynd-
ir af hinum ýmsu hlutum sem
hafa glatast í borginni. Þar má
meðal annrs finna kíki, gult
Suzuki mótorhjól, plötusnúða-
græjur, hátalara og að sjálfsögðu
peningaskáp.
Skápurinn fannst í Austurborg
Reykjavíkur nýlega og er harð-
læstur. Lögreglan auglýsir eftir
eiganda skápsins, sem hefur
greinilega ekki tekið eftir því að
hann vantar. Meðal annars vekur
furðu að skápurinn hafi komist út
á götu. Þá er spurt hver hafi skilað
honum til lögreglunnar. Líklegt
þykir að honum hafi verið stolið
en þjófurinn ekki megnað að bera
hann lengra. Ekki er vitað hvað er
að finna í peningaskápnum.
Tzmm
' -■
Skápurinn Lögreglan fann skápinn en eig-
andi finnst ekki.