Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2005, Síða 18
18 MÁNUDAGUR 13.JÚNÍ2005
Sport DV
¥
&
í
Hnefaleikakappinn MikeTyson tapaði fyrir hinum írska Kevin McBride í hringn-
um aðfaranótt sunnudags. Bardaginn átti að marka endurkomu Tyson í hringinn
en hann fór á annan veg og Tyson segist hættur.
Þriðji sigur
Roddicks
Bandaríski tenniskappinn
Andv Roddick sigraöi í þriðja
skiptið í röð á Queens-mótinu,
sem fram fer í Bandaríkjunum
ár hvert. Hann mætti Ivan
Karlovic óvænt í úrslitum, en
fáir höfðu spáð því að hann gæti
komist í úrslit. „Ég vissi að
þetta yrði erfitt því Karlovíc
hefur sennilega bestu uppgjafir
sem ég hef séð og það var erfitt
að eiga við þær. Eftir að ég náði
aó stjórna spilinu kom þetta hjá
mér, og sigurinn var aldrei í
hættu," sagði Roddick eftir úr-
fris Anna SkuladonirMuu.
vel á Meistaramóti FRI Iboðhlc
Hún var l framvarðasveit
ungmenna sem stálu senunm
keooninni á Sauðárkróki.
WftoPFú
"'Jmfe-j
ri9
MéáMSSí
Ekki er hægt að segja annað en að ferill bandaríska boxarans
Mike Tyson hafi verið anski skrautlegur, bæði innan hringsins
og utan hans. Nú er ferli þessa fyrrum heimsmeistara í þunga-
vigt lokið að hans sögn eftir tap gegn Kevin McBride um helgina.
Fyrir bardagann var Tyson sigurviss að vanda og voru flestir
sammála honum og bjuggust við sigri hans, en sú varð ekki
raunin. Eftir sex lotur var engin orka eftir í honum og hann gafst
upp.
„Ég mun ekki fara
aftur í hringinn. Ástæð-
an fyrir því að ég tók
þennan bardaga er sú
að mér vantaði pening
til að borga reikning-
ana. Ég er ekki sama
viliidýrið og ég var og
hef ekki sama áhuga
og ástríðu til
hnefa-
leika lengur. Þetta er
bara ekki hægt lengur,
‘ ég get ekki haldið
áfram að ljúga að
sjálfum mér og nið-
urlægja íþróttina."
sagði Tyson eftir
bardagann en eins
og áður sagði lauk
honum eftir sex lotur.
Tyson skuldar háar
fjárhæðir eftir að hafa
lýst yfir gjald-
þroti.
Upphafið hjá McBride
Tyson byrjaði bardagann ágæt-
lega en átti síðan undir högg að
sækja og var gjörsamlega búinn þeg-
ar bjallan hringdi lok sjöttu lotu. Sú
lota var ansi viðburðarík þar sem
Tyson fékk refsistig fyrir að skalla
McBride en við það opnaðist skurð-
ur undir vinstra auga hans. Eftir það
sótti McBride hart að Tyson sem
leitaði skjóls upp við kaðlana. Þegar
lotunni var lokið fékk Tyson sér sæti
og ræddi við þjálfara sinn, Jeff
Fenech, sem gaf dómaranum Joe
Cortez merki um að hann gæti ekki
haldið áfram. Cortez stöðvaði þá
bardagann og McBride fagnaði sigri.
„Hann er mikill stríðsmaður,
einn sá besti í sögunni. Ég veit ekki
hvort þetta sé endirinn hjá Tyson en
þetta er að minnsta kosti upphaflð
hjá mér, ég náði að sanna mig.“
sagði McBride eftir sigurinn í bar-
daganum sem færði honum 80.000
pund, en Tyson fékk hinsvegar 2,75
milljónir punda. „Þessi sigur var
ekki bara fýrir mig, þetta var sigur
fýrir írland."
Tyson og vitleysan
Þetta var þriðja tapið hjá Tyson í
síðustu fjórum bardögum og mark-
ar lokin á ferli sem spannar 20 ár.
Hann var yngsti hnefaleikameistari
sögunnar en er nú 39 ára. Hann á 50
sigra að baki og þar af voru 44 með
rothöggi, hann tapaði sex bardög-
um. Þrátt fyrir þennan glæsilega
árangur eru margir mjög ljótir
blettir á ferli hans.
Hann var sak-
felldur fyrir
nauðg-
un og líkamsárás auk þess sem hann
hefur verið ákærður fyrir ýmislegt
annað. Þá hlaut hann eins árs
keppnisbann þegar hann beit í eyra
Evander Holyfield í bardaga þeirra
árið 1997.
Tyson hefur unnið ótrúlegar
upphæðir á ferlinum en eytt nær öll-
um peningunum í vitleysu auk þess
sem samstarfsmenn hans rændu
drjúgt frá honum. Svo kom skattur-
inn í bakið á honum og setti hann
endanlega á kúpuna. Hann þurfti að
selja stóra húsið sitt, segja upp 40
manna fylgdarliði og selja alla 28 bfl-
ana sína og flytja í þriggja herbergja
íbúð.
elvar@dv.is
„Ég er ekki sama villi-
dýrið og ég var og hef
ekki sama áhuga og
ástríðu til hnefaleika
lengur. Þetta er bara
ekki hægt lengur, ég
get ekki haldið áfram
að Ijúga að sjálfum
mér og niðurlægja
íþróttina."
Búið spil MikeTyson hefur lokiö^eppnil |
hnefaleikum. Ferill hansvar g læsturtil að
byria meö en slöan hann tapaði fyrir
Evander HolyTield árið 1997 og beit bita af
eyra hans hefur hann verið afar
umdeildur. I slöasta bardaga slnum
tapaði hann fyrir lltt þekktum Ira, Kevm
McBrlde' Hordic Photos/Getty
Unglingarnir stálu senunni
slitaleikinn. Sig-
urinn á
Queens-mót-
inu ætti að
færa Rodd-
ick aukið S
sjálfs-
traust fyr-
ir
Wimbledon-
mótið sem
er
framund-
Montgomery
og fones frá
sínu besta
Auðkýfingar
fylgjast með
Glazer
Eigendur félaga í NFL-deiId-
inni í Bandaríkjunum fylgjast
grannt með því hvernig
Malcolm Glazer reiðir af hjá
Manchester United. „Það
myndast mikil markaðsleg
tengsl milli íþrótta hér í Banda-
rikjunum og í Evrópu, og því er
rökrétt að við skoðum mögu-
Ieika á f járfestingum í Evrópu,“
segir Clark Hunt, eigandi liðsins
Kansas City Chiefs. Bretar hafa
töluverðar áhyggjur af þessari
þróun og vonast til þess aó áhugi
Bandaríkjamannanna beinist
annað. „Ég bið aðdáendur
Manchester United að sýna still-
ingu og vera þolinmóða. Þeir
verða að gefa Glazer möguleika
á því að vinna vinnuna sína. Ef
ntaður cr í rekstri íþróttafélaga
er árangur mesta vítamíns-
sprauta sem reksturinn getur
fengið, svo einfalt er það.“
Meistaramót FRÍ á Sauðárkróki:
Fyrsta meistara-
mót Frjálsí-
þróttasam-
. bands ís-
,-:V lands í sum-
.; ar fór fram
á Sauðár-
króki um
helgina, en
1 keppt var
í lang-
hlaupum
;; og fjöl-
þraut,
. | bæði
karla
og
kvenna.
Tvær
ungar stelpur úr ÍR, Kristín Birna
Ólafsdóttir og Þóra Kristín Páls-
dóttir, náðu góðum árangri í fjöl-
þrautinni og virðast þær eiga
bjarta framtíð í frjálsum. Þóra
Kristín náði lágmarki inn á heims-
meistaramót unglinga sautján ára
og yngri, en þar þurfti hún að ná
fjögur þúsund og tvö hundruð
stigum. Þráinn Hafsteinsson,
þjálfari hjá ÍR, var ánægður með
árangurinn. „Kristín var búin að
setja sér háleitari markmið en
þetta, en meiddist illa í mars og
var frá æfingum í tvo mánuði.
Hún er á hraðri uppleið núna og
ég er ánægður með það. Þóra
Kristín stóð sig einnig mjög vel
eins og aðrir keppendur frá IR og
það er að sjálfsögðu gleðiefni fyr-
ir mig.“
Kristín Birna Ólafsdóttir bætti
árangur sinn í sjöþrautinni og var
nálægt því að komast í fimm þús-
und stigin.
Sveinn Elías Elíasson, sextán
ára strákur úr Fjölni, náði einnig
athyglisverðum árangri og hefur
þegar náð lágmarki á heimsmeist-
aramót sautján ára og yngri.
Gunnar Sigurðsson, mótsstjóri,
var ánægður með mótið. „Við vor-
um heppin með veður og mótið
gekk vel. Það náðist athyglisverð-
ur árangur, sérstaklega hjá unga
fólkinu. Framtíðin er björt í
frjálsum íþróttum á íslandi.“
-mh
Tim Montgomery og Marion
Jones náðu sér ekki á strik á
frjálsíþróttamóti í Mexíkó um
hclgina, og voru langt frá sínu
besta. Montgomery, sem bíður
niðurstöðu rannsókna á meintu
lyfjamisferli hans, hafnaði í
f jórða sæti og hefur ekki verið
svo neðarlega í nokkur ár. Hann
var þó bjartsýnn á framfarir.
„Ég er orðinn þrjátíu ára núna,
og það er með mig eins og vínið,
ég verð betri með aldrinum."
Marion Jones, sem æfir með
Montgomery, var einnig í f jórða
sæti, en Chandra Sturrup frá
Bahamaeyjum sigraði á mótinu.
Bæði Montgomery og Jones
hafa verið sökuð um
ólöglega lyfja-
notkun og þurfa
því nauðsyn-
lega
á
góó-
um ár-
angri að
halda nú,
þar sem
þau eru
undir ströngu
eftirliti lækna.
an.