Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2005, Side 30
30 MÁNUDAQUR 13. JÚNÍ200S
Lífið BV
■*
v_
I Helgi Hós „Ég
\er orðinn 86 ára
gamall og fljót-
\lega á leiðinni til
Sameinuöu
þjóðanna
MJSjJjW
How do you
like lceland?
Mótmælandi íslands kemur nú vegfarendum sem aka Langholtsveg á óvart þar sem
hann sýnir þeim mótmælaskilti til höfuös reykingum. í tæp 40 ár hefur hann barist fyr-
ir þvi að fá ógildingu skírnar sinnar skráða í þjóðskrá en það hefur ekki gengið eftir.
„ Við erum komin hingað til þess að
fara á ráðstefnu," sögðu þau Morten
og Marianna við blaðamann DV.
Morten og Marianna eru hjón sem
koma frá Noregi og hafa lengi ætlað
að heimsækja ísland. Þau voru búin
að vera á landinu i sólarhring en
höfðu ekki mikið að segja um land
og borg vegna þess að þau höfðu
tekið kvöldið áður snemma og dag-
inn seint vegna þreytu eftir flugið og
annað almennt stress. Þegar blaða-
maður DV náði i þau voru þau að
kaupa sér landakort en þau stefndu
að þvíað leigja bil og keyra ut um
landið í næstu viku og jafnvel tjalda
til tilbreytingar.
Ekkert hrædd við veðrið
„Svona veður er alveg eins og i Nor-
egi," segja Morten og Marianna en
það var rosalega rigning þegar
blaðamaður náðitaliaf þeirn.,, Við
höfum engar áhyggjur afhelstu
ferðamannastöðum Reykjavikur því
á morgun mun ráðstefnan smala
okkur öllum saman i rútu og keyra
með okkur á helstu staðina sem laða
ferðamenn að." Þau voru alveg viss
með það að fara i Bláa lónið þrátt
fyrir skitlega umfjöllun Sunday
Times á stolti okkar islendinga. „ Við
hlökkum mikið til þess að slappa afi
Bláa lóninu” sögðu hjónin glöð i
bragði.
Ætla að fá sér svið
Morten og Marianna hafa enn ekki
notið islenskrar matargerðar en þau
hafa aðallega verið i alþjóðlegum
réttum síðan þau lentu á landinu.
„Við fengum okkur ítalskan mat i
gær og svo kinverskan ihádeginu"
segir Morten skellihlæjandi. Aðspurð
um hvort þau ætli að smakka okkar
margfrægu þjóðlegu rétti segjast
þau hiklaust ætla að prófa þá. „Ætli
maður verði ekki að fá sér kinda-
haus," segir Morten og segir blaða-
maður honum að„svið" sé rétta
nafnið.„Já, við erum alveg til i allt
svoleiðis," segir Morten og hlær eins
og brjálæðingur.
„Ég las það í Læknablaðinu um
daginn að 670 manns láti lífið á ári
hverju af sjúkdómum sem rekja má til
reykinga," segir Helgi Hóseason Ingi-
bjargarson en hann ákvað í kjölfarið
að útbúa skilti til að mótmæla þessum
ósóma. „Ég klippti þetta út af pökkum
sem ég hef fundið á götunni og límdi á
spjaldið," segir Helgi. Það mun mörg-
um vegfaranda hafa brugðið í brún
þegar hann sá þennan mótmælanda
íslands farinn að mótmæla reyking-
um, en áður hefur hann meðal annars
mótmælt ríkisstjóminni og trúnni
harðlega.
Helgi afhendir blaðamanni dreifirit
sem hann segir að geymi sannleikann.
Á því riti er yfirlýsing, og lýsing, á þeirri
baráttu sem hann hefur háð við ríkis-
valdið allt ífá árinu 1966 en þá ógilti
hann skim sína í Dómkirkjunni. Eða „í
kirkjuskriflinu við Austurvöll í Reykja-
vík,“ eins og hann kýs að kalla hana.
Síðan þá hefúr hann barist fyrir því
að ógilding hans á skíminni verði
skráð í þjóðskrá en af einhverjum
óskiljanlegum ástæðum hefur það
ekki gengið í gegn. Frægasti liðurinn í
baráttu hans var þegar hann skvetti
skyri á alþingismenn við þingsetningu
seint á sjöunda áratugnum og var
handtekinn fyrir vikið. Honum barst
þó aldrei kæra frá neinum þingmann-
anna.
Hver skapaði sýkla?
Helgi hefur um nokkurra árabil
staðið meirihluta dagsins á homi
Holtavegs og Langholtsvegs með hin
ýmsu mótmælaskilti. Þar hefur hann
varpað upp ýmsum siðferðislegum
spumingum, en um leið ávftt stjóm-
. É* tUmrl^w. Nnt, im»
S0R.5
• na»U # t%rv dmu. imátm MI
1« k>«4 M. t kw |«
mmitmmtmm T.I tUpmti
M.UIWWM.M t, I kmmm
IMV 1»— MtNMO. *t
* I tml^mma
jHHmSl}
, llMn.lðMÍW.i
I « n memm m ha
MUM*. «r «rt i
neyKingum
Dreifiritið Hefst á orðunum:„Djöfuls rlkis-
valdið heldur lygum sínum og skjalaföls-
unum um mig í persónuheimild minni I
þjóðskrá og fleiri gögnum."
VÖld
harðlega. „Hver skapaði sýkla?" stóð á
einu skilti sem Helgi skartaði á hom-
inu góða. „Ef þessi „Guðsi" á að vera
skapari alls þá hlýtur hann að hafa
skapað sýkla og allt sem miður hefur
farið í heiminum. Mér finnst það út í
hött að menn séu að fara eftir ein-
hverri þjóðsögu sem þeir grófu upp í
Arabíu," segir Helgi.
„Þessir prestar em líka alveg ein-
kennilegir hræsnar, þeir standa í ein-
hverri pontudmslu og tala um himna-
ríld eins og þeir viti eitthvað um
hvemig það er. Þeir vita ekkert hvem-
ig himnarfld er. Eini maðurinn sem
vissi hvemig himnarfld er var Grímur
Thomsen," segir Helgi.
Stjórn og stjórnarandstaða til
skammar
Helgi gefur ekki mfldð fyrir ráða-
menn landsins. Hann er eins og meiri-
hluti landsmanna mfldð á móti
þátttöku íslands í fraksstríðinu og
segir það vera til skammar að við tök-
um þátt í slflcum hörmungum án þess
að hafa nokkuð um það segja.
Ekki gefúr hann mfláð fyrir stjóm-
arandstæðuna heldur: „Ég svara þess-
ari spumingu alltént með þeirri stað-
reynd að enginn sé munurinn á kúk og
skít. Þessir þingsetar í stjómarand-
stöðu eiga ekki að sitja inni á þingi og
nudda á sér punginn heldur snauta út
á Austurvöll og mótmæla þessari
bölvuðu rfldsóstjóm," segir Helgi.
Leystur út með gjöfum
Eftir gott spjall í strætóskýli við
Langholtsveg bíður Helgi blaðamanni
heim tfl sín svo hann geti gefið honum
bók. Helgi er orðinn slæmur í fótum
og því liggur beinast við að bjóðast til
að aka honum niður í Skipasund og fá
bókina. Helgi þiggur það, reykinga-
skfltið sett í aftursætið, og Helgi í fram-
sætið.
Heima hjá Helga er aðkoman harla
bærileg enda Helgi orðinn heflsuveill
og ekki fær um að taka til. Innan um
kassa og fjöldann allan af skiltum finn-
ur hann loks eina ljóðabók handa
blaðamanni. Hún ber heitið „Þrælar
og Himnadraugar I" og er merkt Helga
Ingibjargarsyni: „Ég er jafnmikill son-
ur móður minnar og föður míns,"
Helgi harmar útganginn á heimili
sínu og lóðinni kringum húsið: „Ég hef
ekld getað slegið garðinn síðustu tvö
sumur. Ég er að bíða eftir að komast á
stofnun en þeir taka ekki við mér því
ég er víst of hress," segir Helgi. „Ég er
orðinn 86 ára gamall og fljódega á leið-
inni til Sameinuðu þjóðanna," segir
Helgi. Er ferðin til Sameinuðu þjóð-
anna tákn um dauðann? „Einhvers
staðar koma sálimar saman."
soli@dv.is
Simpson-systurnar
og Lindsey Lohan
ðvinkonur
Lindsey Lohan
Henti Simpson-
systrunum úr
partlinu slnu.
Systrunum Jessicu og Ashlee Simpson var hent úr
einkapartíi Lindsey Lohan eftir MTV-verðlaunahátíðina.
Þessar ungu Hollywood-gellur geta aldrei verið vinir.
Ástæða þessa slags er hin furðulegi Fez úr Svona var það.
Já, leikarinn Wilmer Valderrama er mfldð að leika sér
með ungu gellunum í Hollywood og var um tíma með
Mean Girls-stjömunni, Lindsey Lohan. En slúðurpressan
segir að Ashlee og Wilmer séu að leika sér saman.
Sagan segir að Jessica og Ashlee hafi mætt í partíið og
fengið borð, en áður en þjónninn náði að taka borðið tfl fyrir
dömumar og þær fengið sér sæti hafði þeim verið vísað úr húsi
að sögn Lindsey.
Systumar trylltust að sjálfsögðu og heyðist jafnvel í
hinni prúðu Jessicu: „Ef þessi tík kemur hingað,
þá lem ég hana í klessu."
Að sögn Lindsey Lohan var bara
misskilningur í dyrunum og þess
vegna hafi systrunum verið vísað
frá.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Lohan lentir í útistöðum við aðra
leikkonu. Hún og Hillary Duff
slógust vel og lengi yfir Aron Cart-
er, yngri bróður Nick Carter úr
Backstreet Boys.
Móðgaðar systur Ashlee ogJessica voru ekki
ánægðar með framkomu Lohan.
■
%