Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2005, Qupperneq 17
DV Sport
FIMMTUDAGUR 16.JÚNÍ2005 17
Fergie sendi
Benna
skrytið bréf
Eftir að Liverpool tryggði sér
sigur í Meistaradeild Evrópu
rigndi inn hamingjuóskum héðan
og þaðan til knattspymustjórans
Rafaels Benitez. Á meðal þeirra
bréfa sem hann fékk var
^ Á : / eittffáSir
AlexFergu-
son, fram-
s kvæmda-
stjóra Man-
chester United,
sem kailaði upp
bros á vörum hans en
fékk hann einnig til
að klóra sér í hausn-
um. „Ég fékk mörg
bréfffáailskonar
fólki, bæði á Eng-
landi og Spáni. Það
skrýtnasta sem ég fékk
var hins vegar ffá Fergu-
son. Hann lét það ekki
nægja að óska mér til
hamingju heldur fylgdi
einnig einhver krufning á
spilamennsku Livetpool
alla keppnina og þá sér-
staklega í úrsíitaleikn-
um," sagði Benitez. í
þessari langloku frá Sir Alex var
ítarleg greining hans á leikkerfi
Liverpool, ekki er þó vitað hver
tilgangurinn með því var.
Carroll til
West Hain
Nýliðar West Ham í ensku úr-
valsdeildinni hafa tryggt sér þjón-
ustu markvarðarins Roys CarroU
næstu árin, en hann var sem
kunnugt er látinn fara frá Man-
chester United á dögunum. Carr-
oll er 27 ára gamaU, norður-írskur
I
Handknattleiksmaðurinn Kristinn Björgúlfsson hætti óvænt við að gera samning
við norska félagið Elverum en samdi á endanum við norska liðið Runar sem
Steinar Birgisson gerði garðinn frægan með á árum áður. Hann gerir ekki ráð
fyrir að þessi ákvörðun verði vinsæl hjá stuðningsmönnum Elverum.
Handknattleikskappinn Krist-
inn Björgúlfsson úr Gróttu
hefur skrifað undir tveggja ára
samning við Runar sem er eitt
stærsta lið Noregs. „Það er
búið að ganga frá öllu og ég fer
út til Noregs þann 20. júli. Það
var mjög stuttur aðdragandi
að þessu. Þeir hringdu í mig og
ég fór út til þeirra á föstudeg-
inum eftir það,“ sagði Kristinn
en hann er uppalinn í herbúð-
um ÍR í Breiðholtinu.
„Þeir hafa íslending í stjóminni
hjá sér og hann hafði samband við
Viggó Sigurðsson sem síðan hafði
samband við mig. Þetta er óneitan-
lega stórt stökk upp á við fyrir mig
enda er Runar eitt stærsta liðið í
Noregi. Það lenti í öðm sæti í bik-
amum á tímabilinu og í þriðja sæti í
úrslitakeppninni."
Hætti við Elverum
Kfistinn var kominn
ansi langt með að semja
við annað norskt lið, El-
verun, þegar Runar kom
í málið.
„Ég átti bara eftir að skrifa undir
hjá Elverun þegar þetta kom upp.
Þeir em þvf ekkert sérstaklega
ánægðir þessa dagana og ég verð ör-
ugglega kallaður fi'fl og fáviti í blöð-
unum þar. Þeir eru mjög vonsviknir
en það var einfaldlega ekki hægt að
hafna tilboði Runar enda er það í
Evrópukeppninni og er mun stærra
lið. Bærinn er mun stærri og
skemmtilegri þar að auki,“ sagði
Kristinn en hann leik-
ur sem miðjumaður.
„Aðstæðurnar hjá
félaginu em allar
fyrsta flokks, flott höll
og alvöru lyftingaað-
staða. Þá em sam-
göngur í grenndinni
frábærar, flugvöllur í smá fjarlægð
þar sem hægt er að fljúga út um allt
í Evrópu. Þannig að það er mikil til-
hlökkun í mér,“ sagði Kristinn við
DV.
elvar@dv.is
Kristinn Björgúlfsson
landsliðsmaður og náði aldrei að
festa sig í sessi með United, þar
sem hann varð ffægur fyrir nokk-
ur stór klaufamistök sem reynd-
ust liðinu dýr. Alan Pardew, stjóri
West Ham, er þó ekki að velta sér
upp úr því og segir samninginn
við Carroli aðeins einn af mörg-
um sem félagið ætli sér að gera í
ffamtíðinni til að styrkja sig fyrir
átökin í úrvalsdeUdinni. „Ég tel að
Roy eigi bestu ár sín í deildinni
eftir og við gerum okkur Ijóst að
við þurfum klassamarkvörð til að
vera á meðal þeirra bestu,“ sagði
Pardew.
Owen til
Chelsea?
Framherjinn Michael Ow
hjá Real Madrid er sagður hafa
kynnt félaginu að ef til stæði að
selja hann til Englands, vildi h
ganga tU liðs við Chelsea. Þetta
hefur orðið tU að ýta undir orð-
róm þess efnis að Real sé að und-
irbúa 20 mUljóna punda tUboð í
Frank Lampard hjá Chelsea og að
þá myndi Michael Owen fylgja
með f kaupunum. MUcUl áhugi er
fyrir því í Madrid að fá Lampard
til Uðsins, en hann er sem stendur
launahæsti leikmaðurinn í ensku
úrvalsdeUdinni. Real er sagt vera
tUbúið að eyða um 110 mUljónum
punda tíl leUanannakaupa í sum-
ar, því þar á
bæ vUja (
menn árang-
ur strax eftir V
magurtgengi J
á síðasta /M
ári.
Loksíns upp
ávið
fslenska landsliöiö 1 knatt-
spymu hefur loksins snúið við
blaðinu og stefnir upp á við á
styrkleikalista alþjóðaknatt-
spymusambandsins, FIFA. Liðið
færðist upp um sjö sæti frá síðasta
mánuöi, situr nú í 90. sætí. Það
fór því ekld eins og margir óttuð-
ust - að liðið dyttí niður fyrir 100.
sæti. Sigurinn á Möltu bjargaði
því. Með sigrinum feerðust íslend-
ingar upp fyrir þjóðir eins og
BurkinaFaso, Indónesfu, Sýrland,
Norður-Kóreu, Makedóníu, Ból-
ivíu og Panama. Lítíð hefur breyst
á toppinum, efetu þjóðimar em
enn Brasilía, Tékkland og Argent-
faa en það vekur helst athygli að
Frakkar em falínir nið-
ur í 5. sætí.
-
KEMUR UT ALLA
FIMMTUDAGA!