Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2005, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2005, Side 32
r 32 FIMMTUÓÁGÚk27. OKTÓBER2005 Menning f. HUGMYNDIR manna um fjárhags- legt bolmagn dagskrárdeilda sjón- varpsstöðvanna (slensku eru oft stórfenglegar og fjarri sanni. Bjarni Haukur leikari og leikhúsmógúll á norðurlöndum taldi það ekki nema sjálfsagt að einhver fslensku stöðv- anna keypti rétt af sér til að fram- leiða islenskt sitkom eftir formúlu sinni. Þáttaröðin hefur verið sýnd f Noregi og er samin fyrir norskan markað en Bjarni telur hana ex- port-vöru. Barbaraveik Umsjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbb@dv.is Það er komið babb í bátinn; Barbara Boxmey er veik og kemst ekki í kvöld til að syngja Grieg. Sem bet- ur fer ekki alvarlega, en þeir á Meltmum redduðu sér: fengu fiðluleikarann Tasmin Little til að flytja fiðlu- konsert f e-moll eftir Mendelssohn í staðinn. Þótt margir hafi efiaust blakkað til aðheyraBonn- ey ssmgja er rétt að benda á að Tasmin Little er alls enginn aukvisi. Hiín er einn af fremstu fiðluleikurum heimsins um þessar mundir og lán í óláni að jafii mikils metinn tónlist- armaður skyldi fást með jafii litlum fyrirvara tÚ þess að koma fiam á tón- leikunum. Fiðiukonsertinn var áður á dagskrá árið 2002 og þá var Sif Tulinius í hlutverki einleikarans eins og margir muna. Efiiisskrá tónleik- anna verður ekki breytt að öðru leyti: Scherzoid eftir Mark-Anthony Tiunage og Sinfónía nr. 4 eftir Johannes Brahms. : -------m j. J Barbara Bonney j Lífsins tré eftir Böðvar Guðmundsson verður frumsýnt í kvöld á Nýja sviði Borg arleikhússins. Sýningin er í leikstjórn Þórhiidar Þorieifsdóttur sem setti upp Hí- býii vindanna. Nú heldur áfram sögunni af íslendingum i Vesturheimi: „Þetta er saga einstaklinga,“ segir Þórhildur. „ Ég bý afltaf til stórar sýningar1 Bjarni Haukur Á fljúgandi ferö ogháttuppi. BARATÓLF milljónir kostar hver þáttur. Sería segir Bjarni að kosti 300 milljónir. Það sé litið. Það er svona álika og öll innlend dag- skrárgerð fær hjá RUV.Annars erárangur Bjarna Hauks á norrænum vett- vangi athyglisverður og útrásin í leikhúsbransanum merkilegt fyrir- bæri. NÚ þEGAR dregur að Eddunni verðurfróðlegt að sjá hvað Þor- gerður Katrin hyggst gera fyrir ís- lenska kvikmynda- og sjónvarps- iðnaðinn. Ekki verður síður fróðlegt að sjá hvort kvótar verða settir á is- lenskar sjónvarpsstöðvar um hlut- fall innlends efnis af heildardag- skrártíma og hversu stór hluti af þvi verður að vera framleiddur af sjálf- stæðum framleiðslufyrirtækjum. i LENTI í spjalli við Maríönnu Frið- jónsdóttur framleiðslustjóra hjá Saga film/Storm. Hún er þessa dag- ana að stýra væntanlegum Pipar- sveinsþætti Skjásins. Maríanna er reynd kona úr stríðinu á RUV ( gamlá daga,seinna á stöð 2 og svo fór hún til Danmerkur og vann þar. Nú er hún kominn til Saga film. MARÍANNA hélt því blákalt fram að raunveruleikaþættir nútlmans væru hluti af gamalli heimilda- myndagerð: bæði þættir sem væru fluga á vegg og eins þrælklippt efni úr hundruðum klukkustunda af daglegu lífi fólks væri einskonar raunveruleikasjónvarp. Nú myndi ég hlæja ef ég væri ekki dauður, gæti Grierson gamli sagt. I Edda Björg og I Hildigunnar Tveir | kínverskir nýbúar horfa j I á islensku nýbúana. Það lá beint við að seinni hluti sögu Böðvars Guðmundssonar lifn- aði á sviði, reyndar var unnið tals- vert á æfingatíma Híbýlanna að seinna verkinu þótt það væri yfir- gefið í sviðsetningunni sem frum- sýnd var í janúar í vetur. Híbýli vindanna hefur síðan gengið fýrir fullum húsum á Stóra sviði Borgar- leikhússins. Það er Bjarni Jónsson sem vann leikgerðina að seinni hluta verksins eins og hinum fýrri og Þórhildur Þorleifsdóttir setur báðar sýningarnar á svið. Nýja sviðið breytt Verkið sem birtist áhorfendum í kvöld er sjálfstætt verk þó þræðir liggi milli sýninganna. Rýmið er annað og mótar sýninguna. Þór- hildur átti stærstan hlut að því að ráðist var í viðbyggingu við Borgar- leikhúsið á sínum tíma í húsinu og er nú að vinna þar í fýrsta sinn: Hvernig lýst henni á þetta „afkvæmi sitt“? „Þetta er skemmtilegt rými. Við notum það á allt annan hátt en hef- ur tíðkast til þessa, vinnum í því á nýjan máta. Stóru sviðin gefa alltaf mikla möguleika í tæknilegum lausnum, meiri en gefast á litlum sviðum. En ég bý alltaf til stórar sýningar þó þær séu á litlum svið- um. Þetta er stór saga og heimtar það." Fólk frá Seyru „Lífsins tré“ leiðir áhorfandann á slóðir fslendinga í Winnipeg, þar sem þeir hafa tekið upp breska siði, aka í cörum, reka verslun, sníða kjóla og reisa vöruhús og bindindis- hallir. Jens Duffrín, yngsti sonur Ólafs fíólín og Elsabetar, seinni konu hans, er kynlegur kvistur á ættartré fólksins frá Seyru í Borgarfirði. Eftir að hafa slitið bamsskónum í hreys- um Winnipeg og meðal Mennóníta, flakkar Jens um Bandaríkin með Al- þjóðasirkusnum í Minneapolis. Síð- ar gerist hann götusópari í sinni heimaborg og hermaður bresku krúnunnar. Málmfríður systir hans helgar líf sitt hins vegar fjölskyldu sinni, börnum og „Dætmm fjallkonunn- ar", ffamfarafélags íslenskra kvenna. Bréf hennar til Ólafs heið- arsveins, bróðursins sem varð eftir á fslandi, em einlægur vitnisburður um gleði og sorgir Vestur-íslend- inga. Þau varpa einnig ljósi á tón- listargáfu ættmenna Ólafs fíólín og þörf þeirra fýrir að finna henni far- veg í lífi sínu. Sirkusinn Notar þú sirkusinn sem ramma fýrir sýninguna? spyrjum við Þór- hildi. „Nei, við notum leikhúsið sem ramma. Ég reyni að umgangast verkið sem sjálfstætt verk, þetta er ekki ffamhaldssýning. Stíllinn ogyf- irbragðið er annað. Híbýlin vom saga þjóðar, en Lífsins tré er saga af einstaklingum. Þeir mörgu sem þekkja bækurnar vita að þær eru ólíkar að formi. Það er heilmikið um söng og tónlist í þessari sýningu." Tíu leikara hópur Æfingar hófust í haust: í leik- hópnum eru þau Halldór Gylfason sem leikur Jens Duffrín, Eggert Þor- leifsson leikur Ólaf fíólín og Sóley Elíasdóttir konu hans Elsabetu. Með önnur hlutverk fara Sigrún Edda Björnsdóttir, Hildigunnur Þráinsdóttir, Gunnar Hansson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Bjöm Ingi Hilmarsson, Valur Freyr Einarsson og Þór Tulinius. Hljóðfæraleikarar í i sýningunni em: Pétur Grétarsson j (píanó og orgel), Eðvarð Lámssön (rafgítar og banjó) og Kristfn Björg Ragnarsdóttir (fiðla), en Pétur sem- ur einnig tónlistina í sýningunni. Lárus Björnsson lýsir, Sigríður Rósa j Bjarnadóttir vinnur gervi og Fil- ippía I. Elísdóttir búninga. Leik- mynd er eftir Stíg Steinþórsson og | dansa semur Lára Stefánsdóttir. Leikstjóri: Þórhildur Þorleifs- dóttir r Menning DV FIMMTUDAGUR27.0KTÓBER 2005 33 Finnskur karlakór Karlakórinn YL , talinn einn fremsti karlakór á Norðurlöndum og þó vfða væri leitað, heldur tón- leika í Hallgrímskirkju á morgun. Markar uppákoman lok tónleika- ferðar kórsins til Bandaríkjanna og íslands. Karlakórinn Fóstbræð- ur mun koma fram sem gestir kórsins og syngja þrjú lög og tvö lög með YL. YL hefur hlotið fjölda alþjóð- legra verðlauna og viðurkenninga í kórakeppnum og fyrir útgáfu hljómdiska. Kórinn hefur fengið frábæra dóma hvarvetna sem hann hefur komið fram. Nú gefst tækifæri á að hlýða á þennan frábæra kór kl. 20 annað kvöld undir stjórn Dr. Matti Hyökki, sem er og hefur verið einn fremsti kórstjóri Finna. Boksölulistar Listinn er gerdur út frá sölu dagana 79. október til 25. október i bókabúðum Máls og menningar, Eymundson og Pennanum. AÐALLISTINN - ALLAR BÆKUR Myndin af pabba -saga Thelmu Gerður Kristný Su Doku Wayne Gould Við enda hringsins Tom Egeland Hin mörgu andllt trúarbragðanna Þórhallur Heimisson Óvanaleg grimmd Patrlcia Caldwell Skipulagsbreytingar miklar í norrænu samstarfi Breyting, nei, Norrænu menningarmálaráð- I herrarnir ákváðu einróma á fundi sínum í gær að standa fast á sínu og staðfesta ákvörðun sína frá fundum í sumar og breyta skipulagi á menn- ingarsamstarfinu og gera það sveigjanlegra. Þá verður opnað fýrir 1 nýjar samstarfsleiðir, hvort heldur er á norrænum vettvangi eða al- I þjóðlegum. Skipulagsbreytingarnar i hafa í för með sér að minna fjár- | magni verður varið til stjórnsýslu og að meira fer í styrki til fjöl- j breyttra verkefna,. ferðastyrki til í listamanna, farandsýninga milli ! landa og nýrra verkefna og áætlana. Ákvörðun sumarsins hefur mætt j nokkrum andófi, en fátt hefur I heyrst í íslenskum listamönnum um málið. Níu nefndir lagðar niður Níu af tuttugu nefndum og í stofnunum í menningarsamstarf- j inu verða lagðar niður, en starfsemi j þeirra verður þó haldið áfram með i ýmsu móti. I stað fyrra skipulags I þar sem skýr skil voru á milli list- greina verður lögð aukin áhersla á þemaskipulag og starfsáætlanir j sem eru áhugaverðar og nauðsyn- legar í öllum norrænu ríkjunum. j Verið er að gera skipulagið sveigj- anlegra þar sem ákveðin þemu og áætlanir verða sett tímabundið í forgang. Skýrari skipting Nýja skipulagið felur einnig í sér skýrari verk- og ábyrgðarskiptingu milli hinna ýmsu aðila í menning- arsamstarfinu. Annars vegar sam- starf menningarmálaráðherra og ráðuneyta og hins vegar samstarfs- grundvöll í menningarmálum um öll Norðurlönd. Menningarmála- ráðherrarnir koma sér saman um stefnumótun fýrir menningarsam- starfið, en það verður hins vegar verkefni listamanna og fagfólks að ákveða hvernig framfylgja skuli stefnunni í samræmi við þá grund- vallarreglu að stofnanir og lista- menn skuli starfa sjálfstætt án beinna afskipta stjórnmálamanna. Peningar í tölvuleiki Menningarmálaráðherrarnir ákváðu einnig á fundi sínum í dag stefnumið fyrir þær tvær áætlanir sem fyrst verður hrint í framkvæmd á næsta ári í samræmi við nýtt skipulag. Önnur nær til ferðastyrkja og gestaíbúða fyrir listamenn, en hin áætlunin hefur verið lengi í undirbúningi og snýst um að þróa tölvuleiki fyrir börn og unglinga. Nýtt skipulag fyrir menningar- samstarfið tekur að fullu gildi á ár- inu 2007. Þær stofnanir sem starfa munu áfram án breytinga eru: Nor- ræni menningarsjóðurinn, Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn, Nordicom, norrænu húsin og nor- rænu stofnanirnar á íslandi, Græn- landi, í Færeyjum, á Álandseyjum og í Helsinki. Sjónarsviptir Þær samstarfsstofnanir og nefndir sem lagðar verða niður eru: Stýrihópur fýrir menningar- og fjöl- miðlasamstarf, stýrihópur fýrir barna og æskulýðsmenningu og norræn menningarverkefni utan Norðurlanda. Norræna blaða- mannamiðstöðin, Norræna stofn- unin fyrir samtímalistir (NIFCA), Norræna tónlistarnefndin (NOM- US), Norræna bókmennta- og bókasafnsnefndin NordBok, Nor- ræna sviðslisíamiðstöðin og Nor- ræna safnanefndin. Ailar þessar nefndir hafa verið áhrifamiklar á sínum sviðum og telja margir að erfitt verði að byggja upp þann grunn sem þær hafa byggt. Á árinu 2006 verður varið 155 milljónum danskra króna, eða um 20 milljónum evra til norræns menningarsamstarfs. SKALDVERK - INNBUNDNAR 1. Valkyrjur Óvanaleg grimmd Blekkingarleikur Vondur félagsskapun Veroníka ákveður að deyja SKALDVERK - KIUUR 1. Foröist okkur [Englar og djöflar Karítas án titÍM Svartur á leik Fiibland Þráinn Bertelsson Patricia Caldwell Dan Brown Jack Higgins Paolo Coelho Hugleikur Dagsson Dan Brovvn rkristín Marhja Baldursdóttlr Stefán Máni Liza Marjlund HANDBÆKUR - FRÆÐIBÆKUR - ÆVISÖGUR 1. Myndin af pabba Saga Thelmu Geröur Kristný Su Doku Wayne Gould Hin mörgu andlit trúarbragöanna__ Þórhallur Heimisson Kjarval Ýmsir höfundar Matreiöslubók Nönnu Nanna Rögnvaldardóttir BARNABÆKUR 1. Vóluspá - Kristín Ragna Gunnarsdóttir og Þórarinn Eldjárn Mamma Mö rólar Jujja Wleskander Kaftienn Ofurbrók og líftæknilega horskrýmsliö - Dav Pllkey Mamma Mö rennir sér Jujja Wieskander Artemis Fowl: Blekklngin Eoin Colfer ERLENDAR BÆKUR - ALLIR FLOKKAR 1. The Broker Michael Crichton The Closers Michael Connelly Healthy Dinner Parties Kyle Cathie Knife of Dreams: 11. Wheel of Time - Robert Jordan State of Fear Michael Crichton Circus Cirkör Einn þeirra hópa sem hing- að komu fyrir tilhlutan norrænna styrkja. ERLENDAR VASABROTSBÆKUR 1. The Broker Michael Crichton Going Postal The Song of Susanna I | Plot Against America Alone Terry Pratchett Stephan Kingj Plriiip Roth l.isa Gardnerl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.