Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2005, Side 8
B FIMMTtlDAGtífí 'ft7: OKTÓBER>2005
Fréttír 0V
Sorpátaká
Suðurlandi
Tunnuvæðing Sorp-
stöðvar Suðurlands verður
að veruleika í næsta mánuði
í þremur sveitarfélögum Ár-
borgarsvæðisins, Árborg,
Hveragerði og Ölfusi að því
er fram kemur á sunn-
lenska.is. Með breytingunni
verður íbúum úthlutað,
gegn vægu gjaldi, 240 lítra
mslatunnum sem ekki verða
með pokum. Tunnumar
munu rúma tvöfalt það
magn sem kemst í svörtu
pokana sem nú em notaðir
á Suðurlandi og er gert ráð
íyrir að sorp verði framvegis
hirt hálfsmánaðarlega í stað
vikulega eins og nú er.
Sautján ára
með 24
e-töflur
í Héraðsdómi Reykjaness
var þingfest mál á dögunum
gegn Sturlu Þórhallssyni.
Lögreglan í Keflavík tók
Sturlu með 24 svo-
nefndar e-töflur í bif-
reið sinni í septem-
ber síðastliðnum. E-
töflurnar innihéldu
vímuefnin MDMA og
amfetamín. Sturla
sagði í samtali við DV að
efnin hefðu ekki verið sölu-
vara heldur ætluð honum
sjálfum. „Þetta gerist ekki
aíftur," sagði hinn sautján
ára gamli Sturla. Hann játaði
brotið skýlaust fyrir dómi og
fékk tveggja ára skilorðs-
bundinn dóm. Þetta er hans
fyrsta fíkniefnabrot.
11 árekstrar
og 42 sjúkra-
flutningar
Um fimmleytið í gær
höfðu 11 árekstrar verið til-
kynntir til Lög-
reglunnar í
Reykjavík.
Enginn varð
fyrir alvarleg-
um áverloim í
öllum þessum
árekstmm
sem þykir
mesta mildi. Slökkvilið höf-
uðborgarsvæðisins hafði á
sama tíma farið í um 42
sjúkraflutninga síðan klukk-
an átta í gærmorgun. Það
telst rólegt hjá slökkviliðinu.
Það vom því aðallega
sjúkraflutningamenn sem
höfðu nóg að gera í gær.
Ekki var mikil hreyfing á
slökkviliðsbílunum í gær
sem telst að sjálfsögðu sem
góðar fréttir.
„Það liggur á að komast út
með litla strákinn minn; fjög-
urra vikna gamlan son," segir
Ásgeir Friðgeirsson, fjöl-
miðlafulltrúi Björgólfsfeðga.
„Við fáum okkur göngutúr í
sólinni."
Harmleikur móður og nýfæddrar dóttur útspilar sig þessa dagana með
Reykjavík að sögusviði. Yfirvöld létu móðurina sem áður hafði misst for-
ræði yfir syni sínum vegna ofdrykkju vera óáreitta með stúlku sem fædd
var tíu vikum fyrir tímann. Konan var aðeins boðuð í viðtal hjá barna-
verndarnefnd meira en mánuði eftir að viðvörun barst frá heilsugæslu-
stöð um drykkjuskap hennar.
Bamaverndarnefnd Reykjavíkur skipti sér ekki af því í fyrra
þegar áfengissjúk einstæð móðir eignaðist dóttur meira en
tveimur mánuðum fyrir tímann og fór með hana heim.
Áður hafði konan misst forræði yfir syni sínum. Þegar
nefndinni barst ábending frá heilsugæslu um áfengisneyslu
konunnar var látið nægja að boða hana í viðtal meira en
mánuði síðar. Nokkrum dögum áður en viðtalið átti að fara
fram sendi faðir barnsins frá sér neyðarkall. Loksins daginn
eftir kallið fór barnaverndarnefnd á staðinn. Konan var þá
steindauð áfengisdauða upp í rúmi og fyrirburinn, dóttirin,
hafði hjúfrað sig að henni og lá grátandi með höfuðið hulið
þungri sæng móðurinnar. Og harmleikurinn hefur haldið
áfram síðan.
„Er staðan metin svo að það sé
ekki forsvaranlegt að taka frekari
áhættu enda sé líf barnsins í
bráðri hættu þegar varnaraðili
drekki frá sér ráð og rænu," er
meðal þess sem lesa má í umsögn
Barnaverndar Reykjavíkur um
konu sem Hæstiréttur hefur
dæmt að skuli svipt kornungri
dóttur sinni næstu tólf mánuð-
ina.
Konan, sem er 36 ára eignaðist
í fyrra barn tíu vikum fyrir tím-
ann. Hún hefur átt við langvar-
andi drykkjuvandamál að stríða.
Meðal annars var forræði sonar
hennar fært til föðursins fyrir
nokkrum árum þegar hann var
um tólf ára gamall.
Tvisvar á meðgöngutíma dótt-
urinnar var óskað lögregluað-
stoðar vegna ölvunar konunnar.
Barnaverndarnefnd svaf
I jólamánuðinum í fyrra barst
barnaverndaryfirvöldum tilkynn-
ing frá heilsugæslustöð í borginni
vegna gruns um áfengisneyslu
konunnar. Þrátt fyrir þekkta for-
tíð hennar var þó ekkert annað
gert en að boða hana í viðtal
meira en mánuði síðar, eða 1.
febrúar 2005.
Áður en til viðtalsins kom
skarst þó faðir litlu telpunnar í
leikinn. Tilkynnti hann um það
27. janúar að konan hefði drukkið
svo mikinn vodka að hún gæti
ekki sinnt dótturinni vegna rænu-
leysis.
Lágur grátur undart sæng
Starfsmenn Barnaverndar
Reykjavíkur fóru þó ekki fyrr en
daginn eftir á heimili konunnár til
að kanna ástandið:
„Enginn svaraði þá á bjöllu en
lágur grátur barnsins heyrðist
hins vegar öðru hvoru. Faðir
barnsins var þá kallaður til og
hleypti hann starfsmönnum
barnaverndar inn í íbúðina. Þar
fundu starfsmenn konuna rænu-
lausa í rúmi sínu. Barnið lá hins
vegar undir handarkrika konunn-
ar með höfuðið á þykkum kodda
og með stóra sæng yfir höfðinu.
Illa gekk að vekja konuna og var
hún drafandi í tali, illa áttuð og
jafnvægislaus. Konan var ósam-
vinnufús og vildi ekki viðurkenna
að hún væri undir áhrifum. Að
mati starfsmanna var konan ekki í
viðunandi ástandi til að annast
barnið og tryggja öryggi þess. Þá
kvaðst faðir barnsins ekki tilbúinn
að taka barnið til sín þar sem
hann væri húsnæðislaus. Var þvf
tekin ákvörðun um kyrrsetningu
barnsins á grundvelli 31. gr.
barnaverndarlaga og ákveðið að
barnið skildi vistað á vegum
bamaverndaryfirvalda til 8. febrú-
ar 2005."
Lét ekki sjá sig
Rúmum tíu dögum eftir þessa
heimsókn mat Barnaverndamefnd
Reykjavíkur stöðuna svo að öryggi
litlu stúlkunnar væri ekki tryggt í
umsjá konunnar að óbreyttum for-
sendum. Konan neitaði hins vegar
að samþykkja að dóttir hennaryrði
vistuð annars staðar en á heimili
hennar. Úrskurðaði barnaverndar-
nefndin þá að stúlkan skyldi vistuð
utan heimilis mæðgnanna í tvo
mánuði.
Konan heimsótti dóttur sína
ekkert frá því komið var á heimili
þeirra í lok janúar og fram til 10.
febrúar. Eftir það hafi hún komið
og heimsótt stúlkuna á hverjum
degi og hugsað mjög vel um hana.
Skrifaði undir og fékk barnið
Konan barðist fyrir forræði yfir
dóttur sinni. Um miðjan mars
skrifaði hún undir yfirlýsingu um
meðferðaráætlun. Það fól meðal
annars í sér forsjárhæfnismat, að
hún skyldi annast barnið daglega
á Vistheimili bama, standa við
áfengisbindindi og vinna með
áfengisvanda sinn með því að
sækja AA fundi fjórum sinnum í
viku og setja upp prógramm með
Óttari Guðmundssyni geðlækni.
Bæði Óttar og Áskell Örn Kára-
son sálfræðingur töldu konuna
geta annast stúlkuna svo framar-
lega sem hún næði tökum á áfang-
isdrykkjunni.
Varð úr í byrjun apríl að barna-
verndarnefnd Reykjavíkur lét kon-
una hafa litlu stúlkuna gegn því að
hún skrifaði undir ítarlegu með-
ferðaráætlunina. Átti konan að
standa við áfengisbindindi og
veita dóttur sinni örugg uppeldis-
skilyrði. Konan samþykkti líka
óboðað eftirlit á heimili sitt sem og
að svara án undantekninga þegar
dyrabjöllu væri hringt.
Datt í það strax
Sælan entist stutt. Þann 4. júní
barst tilkynning um að konan væri
aftur orðin full:
„Erfiðlega gekk í framhaldinu
að ná sambandi við konuna og
þann 6. júní virtist hún hafa verið
að drekka. Hafði faðir bamsins
þann sama dag tekið bamið til sín
þar sem konan var fallin á áfengis-
bindindinu. Eftir ítrekaðar tilraun-
ir starfsmanna til að ræða við kon-
una á heimili hennar náðu þeir
sambandi við hana í gegnum
dyrasíma seinnipart þriðjudagsins
7. júní síðastliðins. Augljóst var að
konan hafði verið við áfengis-
neyslu og samþykkti hún að barn-
ið dveldi hjá föður fram að fundi
barnaverndarnefndar," segir í
dómsskjali.
Dóttirin í lífshættu
Upp úr miðjum júní ákvað
barnaverndarnefnd að taka litla
fyrirburann aftur af konunni í tvo
mánuði og leita eftir heimild dóm-
stóla til að vista bamið utan heim-
ils mæðgnanna næstu tólf mán-
uði. Markmiðið er að stúlkan
komist síðan í varanlegt fóstur til
18 ára aldurs. Faðirinn sagðist ekki
geta tekið barnið að sér enda væri
hann sjálfur húsnæðislaus.
í greinargerð starfsmanns
barnaverndarnefndar sagði:
„Barnið er fyrirburi sem þarfn-
ast sérstakrar örvunar og um-
hyggju sem ekki er hægt að tryggja
hjá konunni þrátt fyrir góðan vilja
hennar að því er virðist. Stuðn-
„Eftir ítrekaðar til-
raunir starfsmanna
til að ræða við kon-
una á heimili hennar
náðu þeir sambandi
við hana í gegnum
dyrasíma."
ingsaðgerðir og eftirlit hafa ekki
skilað árangri og er staðan metin
svo að það sé ekki forsvaranlegt að
taka frekari áhættu enda er líf |
barnsins í bráðri hættu þegar kon-
an drekkur frá sér ráð og rænu."
Fallin eina ferðina enn
Dómstólar bentu á að konan
hafi ítrekað drukkið sig ofurölvi á
meðan hún hafi haft dóttur sína í
umsjá sinni og að barnið hefði ver-
ið í lífshættu vegna ölvunar og
rænuleysis hennar. Hún væri því
að svo stöddu óhæf til að bera
ábyrgð á og sinna uppeldisskyld-
um gagnvart dóttur sinni.
I sumar fór konan í áfengis-
meðferð og eftirmeðferð sem ljúka
átti í byrjun október. Sagt ér að
hún hafi tekið góðum framförum:
„Svo virðist sem áfengismeð-
ferð konunnar gangi vel og jafn-
ffamt að hún hafi góðan vilja og
fastan ásetning til að standa sig og
halda sig frá áfenginu. Hún verður
þó að sýna að hún geti haldið
bindindið," sagði í dómi Héraðs-
dóms Reykjavíkur 23. september
þegar staðfest var að stúlkan yrði
sett í tólf mánaða vist.
Konan sætti sig ekki við niður-
stöðu dómsins og áfrýjaði til
Hæstaréttar sem í fyrradag stað-
festi dóm héraðsdóms með þess-
um sorglegu viðbótartíðindum af |
lífi hinnar ógæfusömu móður:
„Af nýjum gögnum sem lögð
hafa verið fyrir Hæstarétt sést að
konan mun hafa lokið þeirri
áfengismeðferð 29. september og
hafið nær strax áfengisneyslu að
nýju." gar@dv.is