Símablaðið - 01.01.1972, Blaðsíða 6
Vinnutími va'ktafólks.
Eins og kunnugt er átti vinnutími vakta-
vinnufólks að breytast í 40 klst. á viku,
frá 1. jan. 1971. Samfara þessari breyt-
ingu skyldi vaktafólk fá fasta kaffitíma
og vinna, unnin um nætur og helgar,
reiknuð þannig að 50 mínútur á vakt jafn-
giltu einni klukkustund.
Á miðju sumri hugðist póst- og síma-
málastjórn koma á breyttum vöktum, í
samræmi við þessi ákvæði. Gerðar voru
nýjar vaktatöflur fyrir allmarga vinnu-
staði, með fyrirmælum um að eftir þeim
skyldi unnið.
F.f.S. gerði þegar athugasemd við þessa
framkvæmd og taldi að samráð bæri að
hafa, við starfsmenn og félagið, um breyt-
ingar á daglegum vinnutíma. í framhaldi
af því voru áðurnefndar vaktatöflur tekn-
ar niður og breytingum frestað.
Nokkrar viðræður áttu sér stað um
vinnutímann en samkomulag náðist ekki,
þar sem stofnunin taldi sig ekki hafa
heimild til þess að semja um niðurfellingu
kaffitíma og styttingu vinnutímans sem
því næmi, þrátt fyrir að hún væri því
fylgjandi. Félagið taldi það hins vegar for-
sendu þess, að samkomulag gæti tekist um
breytingar á vöktunum.
Sumarbúðamál.
Á sl. sumri var ákveðið að byggja fjögur
fjölskylduhús á landi félagsins við Apa-
vatn. Samið var við Húsasmiðjuna h.f. í
Reykjavík um smíði húsanna. Samningar
voru undirritaðir 17. september og á verk-
inu að vera lokið fyrir 15. apríl n.k. Stað-
setning húsanna var ákveðin í samráði við
skipulagsarkitekt sl. haust. Þá voru und-
irstöður byggðar og var það að miklu leyti
gert í sjálfboðaliðsvinnu. Sl. haust voru
einnig lagðar allar rafmagnsleiðslur, svo
og vatns- og skolpleiðslur. Nú er byrjað að
reisa húsin á undirstöðurnar, en þau eru að
mestu leyti smíðuð á verkstæði. Húsin
verða tekin í notkun á komandi sumri.
Sumarbústaðurinn í Vaglaskógi var
stækkaður sl. sumar og mikið endurbætt-
ur. Lagt var í húsið rafmagn, bæði til
ljóss og hita. Einnig var lagt inn rennandi
vatn og vatnssalerni sett í það. Þá var
einnig lögð skolplögn og útbúin rotþró.
Ný húsgögn voru keypt og margs konar
annar húsbúnaður. Þessar framkvæmdir
hafa gjörbreytt allri aðstöðu í Vaglaskógi
og aukið notagildi bústaðarins verulega.
Bústaðurinn í Tunguskógi var einnig
endurbættur mikið, en þar hafði komið
í ljós töluverður fúi. Um leið og lagfær-
ingar fóru fram vegna fúans, voru gerðar
breytingar á innréttingu hússins. Ný eld-
húsinnrétting var smíðuð og raflögn end-
urnýjuð.
Þá voru nokkrar endurbætur gerðar á
bústaðnum í Egilsstaðaskógi. Var húsið
m. a. málað og skipt um allar rúmdýnur.
22. maí sl. tók F.Í.S. formlega við húsi
sínu í Munaðarnesi og með því bættist fé-
laginu fimmti orlofsheimilastaðurinn.
Alls voru í orlofshúsum félagsins 52
rúmstæði á síðasta ári og með nýju hús-
unum við Apavatn verða þau 80 á kom-
andi sumri.
Eins og áður, var samið við stofnuriina
um að í stað skemmtiferðar fyrir starfs-
fólkið, rynni áætlaður kostnaður hennar
til sumarbústaðaframkvæmdanna. Hækk-
un fékkst á þessu framlagi og var það nú
700 þúsund krónur.
Nú hefur fjármálaráðuneytið hins veg-
ar tilkynnt að framvegis verði slíkar
skemmtiferðir afnumdar, svo og allar
greiðslur í þeirra stað.
S I MAB LAÐ IÐ