Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2005, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2005, Side 7
DV Barnabækur FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 7 Hermikrákur við ysta haf Það vakti nokkra athygli fyrir fá- einum vikum þegar Gunnella sem lýsir sögu Bruce um hermiþörf hænsna við ysta haf var verðlaunuð vestan hafs fyrir verk sitt. Þar er Bruce þekktur höfundur, hefur reyndar sett sögur sínar niður hér á landi þar sem hann er fastagestur og ævinlega velkominn. Þau bæði setja fram ísland í verkum sínum sem er blanda minninga og veru, draums og hiilinga. Þar er landið til að lifa'á því og fólk bjargar sér sælt með sitt. í offlæði vörunnar er ágætt að einhver kenni gamla kristna kenningu um að fólk skuli láta sér lítið nægja. Offlæðið er alltaf óhollt og jafnvel iífshættulegt. Það eru konurnar í þorpinu við bjargið sem lenda í vandræðum með hænsnin sín sem á endanum eru farnar að haga sér eins og þær. Svo konurnar grípa til þess ráðs að láta eins og fuglarnir í bjarginu og á endanum flytja hænsnin sig í bjarg- ið. þetta er einföld hugmynd: Bruce kann þá list að ljúka sögunni með setningu sem kemur lesandanum á óvart, en þess í milli er sagan einföld í framsetningu á fjarstæðukenndu söguefni. Málverk Gunnellu eru sér- kennileg blanda, vísa stundum til Scheving en í annan tíma til Kar- olína og jafnvel næfista. Þær eru skemmtilega bjartar og bernskar á klunnalegan hátt og hæfa söguefn- inu vel. Fyrir hvem er þessi samsetning- Hænur eru hermi- krákur Bruce McMillan Gunnella Þýðing: Sigurður A, Magnússon Salka Verð 1990 kr. ★ ★★★☆ Barnabækur ur? Fullorðna fyrst sem ættu oftar að lesa barnabækur sér til áminningar, og síðan krakka sem geta lesið sjálf, þótt hér takist á stuttar og langar lín- ur, svo náttúrulega litlu sponsin sem geta heimtað endalausan lestur langdvölum hafi þau komið sér vel fyrir og eigi hlýðna lesara að. pbb&dv.is Steinhjartað Sigrún Eldjárn Mál og menning Verð 2990 kr. Beint inn í ævintýrið Steinhjartað er þriðja og síðasta bók Sigrúnar Eldjárn í þríleiknum um systkinin Stínu og Jonna og vin þeirra Skapta, sem þau hafa hingað til heimsótt að Háhóli, en stefnir nú í þéttbýlið til þess að endurgjalda heimsóknirnar. Steinhjartað er lip- urlega skrifað ævintýri og spennandi frá fyrstu síðu. Við kaflaskil fer les- andinn milli sögupersóna, sem sam- einast þegar hátindi spennunnar er náð. í fyrsta kafla hittir lesandinn Skapta sem greinilega er kominn í mikinn vanda. Bókin er þegar orðin æsispennandi. Það er ekki fyrr en seinna að maður áttar sig á því að fyrsti kaflinn var í raun og vem hluti af kafla inni í miðri bók. Þarna er um snilldarbragð að ræða, lesandinn dettur beint inn í ævintýrið og legg- ur ekki frá sér bókina fyrr en henni er lokið. Barnshugurinn sem getur átt erfitt með að bíða eftir því að „eitthvað gerist” er strax hrifinn inn í ævintýrið. Spurningarnar eftir fyrsta kaflann em margar, sem öll- um er svarað þegar líður á bókina. Bókin gerist í nútímanum, en börnin ná þó í gegnum dagbók tengslum við látna móður sína. Tím- inn er afstæður og líður ekki með sama hætti alls staðar. í fyrstu bók þrfleiksins glímdu bömin við móð- urmissinn í þessari síðustu bók upp- lifa þau að þrátt fýrir að móðirin sé farin frá þeim lifir hún og líf hennar áfram með bömunum. Eins og í fyrri bókunum um þau Stínu, Jonna og Skapta spila ýmis þekkt minni inn í frásögnina. Álfar og dvergar eiga sinn þátt, rúnaletur og aparnir þrír sem halda fyrir eyru, augu og munn fá stórt hlutverk í at- burðarás bókarinnar. Þessir apar sem losna við hið illa með því að hvorki segja það, heyra það né sjá það, fá í sögunni stórt hlutverk í bar- áttu góðs og ills. Ef allir hjálpast að er hægt að koma í veg fyrir glund- róða og stríð, enginn má vera óvirk- ur. Eins og oft áður í sögum Sigrún- ar skipta allir máli, það er ekki sjálf- gefið að sá sterkasti eða vitrasti beri sigur úr býtum, hinn minnsti skiptir líka máli, hver og einn hefur sitt Iflutverk. Myndlýsingar Sigrúnar sjálfrar em í fullu samræmi við atburðarás og texta bókarinnar. Þessi bók eins og hinar tvær fyrri er í óvenjulega litlu broti og pappírinn mjúkur við- komu og mildur á litinn. Heildar- mynd bókarinnar er algjör, sagan myndimar og útgáfan öll í fullu samræmi. HHdur Heimisdóttir \ Barnabækur Mamma er best Björk Bjarkadóttir Mál og menning Verð 2.290 kr. ★ ★★☆☆ Mæðuraföllum stærð- um og gerðum Mamma er best skemmtitega mynd- skreytt og líkleg til að vekja upp kátínu unqra iesenda. Björk Bjarkadóttir hefur sent frá sér nokkrar barnabækur fýrir yngstu lesendurna. Bókin mamma er best er falleg bók með einfaldri sögu um togstreitu tveggja ára drengs þegar móðir hans tilkynnir honum að hún eigi von á öðm barni. Aðalsöguhetjan Tommi litli er harla ósáttur með að komast ekki lengur fyrir í faðmi móður sinnar vegna stóm kúlunnar og ætlar að bregða á það ráð að finna sér nýja móður sem hefur tíma til að sinna honum. Með vængjum ímyndunaraflsins fer hann á vit nokkurra mæðra úr dýraríkinu en meðferð þeirra er ekki eins og hann telur best á kosið. Eftir nokkrar pmfúr kemst Tommi litli að því að ef til vill er mamma hans best og sagan endar á því að hann og litli bróðir hans kúra saman í faðmi móður sinnar. Bókin er skreytt skemmtilegum myndum sem unn- ar em með blandaðri tækni. Litim- ir eru fallegir og mjúkir auk þess sem skepnumar sem Tommi reyn- ir að fá til að ganga sér í móðurstað ættu að vekja upp kátínu meðal lesanda. Það em helst fullmikil lík- indi mynd'anna og frásagnarinnar við teikíflmynd sem sýnd var í sjón- varpinu sem tmfla mig. Sagan sjálf stendur þó vel fyrir sínu og er vel þess líkleg að falleg ungum lesend- um í geð. Karen Kjartansdóttir -i< Lúlli litli UlfLöfgren Lúlli Þarfað iæra ýmislegt og ekki teksthonum alltaf nógu veltil. LVLU Lúlli ÚlfLöfgren Þýðing: Sigriður Rögnvalds- dóttir Mál og menning Verð: 790 kr. ★ ★★ Bókin Lúlli eftir Ulf Löfgren er sú fyrsta í flokki smábamabóka upp gáskafullu kanínuna Lúlla. Eins og lítil böm þarf Lúlli að læra klæða sig rétt í föt, hegða sér sóma- samlega við borðhald, tannbursta sig og fara upp í rúm á skikkanleg- an hátt. Þessi einföldu atriði geta þó vafist fyrir ungum og reynslu- lausum manneskjum og það sýnir Lúlli kanína lesendum sínum á skemmtilegan hátt. Myndimar em mjög einfaldar og textinn sömu- leiðis eins og búast má við í bók sem ætluð eru langyngstu lesend- unum. Fín bók fyrir litla spaugara sem em að skoða sínar fyrstu síður. Karen Kjartansdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.