Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2006, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2006, Blaðsíða 12
72 MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 2006 Fréttir 0V Nafnlaus ohroður Reynir reymr oð no / skott- id o þeim $em vego úð mannorðum nafngreititíra manna undir duinefnum. ■> Sterling ógnarSAS Lággjaldaflugfélagið Sterling ætlar að höfða meira til fólks úr viðskipta- lífinu með því að bjóða flug á morgnana og kvöldin. Verður flogið til helstu áfangastaða í Evrópu en mesta áherslan verður á flugleiðir á milli höfuð- borga á Norðurlöndum. Ekki verður eingöngu flogið til flugvalla sem liggja í jaðri stórborganna. Hægt verður að fljúgja út að morgni og koma heim aftur að kvöldi. SAS flugfélagið hefur verið sterkt á þessari flugleið og bíða margir spenntir eftir viðbrögðum þeirra. Spá danskir fjöl- miðlar verðstríði á þessum flugleiðum. Hvasst á Suðurnesjum Verulegt tjón varð á Suðurnesjum um helgina vegna hvassviðris. Lögregl- an í Keflavík fékk nokkrar tilkynningar á laugardags- kvöld vegna veðursins og hafði þá meðal annars fok- ið uppsláttur af húsi við Álfatjörn í Innri-Njarðvík, með þeim afleiðingum að hann féll niður. Björgunar- sveitin Sigurvon var einnig kölluð út vegna hættu á að þakplötur fykju og tókst að koma í veg fyrir það. Mynd- in er frá Víkurfréttum. Listaháskól- inntekurvið umsóknum Listaháskóli íslands er byrjaður að taka við um- sóknum um skóla- vist á næsta skóla- ári fyrir nám í myndlist, leiklist, tónlist, hönnun og arkitektúr. Um- sókn um nám í kennslu- fræði til kennsluréttinda opnar síðar. Skólinn sækist eftir hæfileikamiklum og hugmyndaríkum einstak- lingum með góða almenna undirstöðumenntun og grunnþekkingu á viðkom- andi sviði. Umsóknafrestur er mismunand eftir deild- um ffá mars til maí. \Dnn\inc Reynir Traustason ritstjóri Mannlífs er kominn í krossferð gegn nafnlausum óhróðri sem birtist á spjallþráðum eins og malefnin.com. Hann kallar eftir ábyrgð og skorar á almennilegt fólk að veita sér upplýsingar um þá hina nafnlausu sem vega úr lausátri. Magnús Þór Hafsteinsson frábiður sér að Sigurður Ingi Jónsson, sem er orðaður við slík skrif, sé kenndur við Frjálslynda flokkinn. Reynir Traustason, ritstjóri Mannlffs, er kominn í krossferð gegn þeim sem dreifa óhróðri um nafngreinda menn í skjóli nafn- leyndar. Á Mannlífsvefnum hefur því verið haldið fram í athuga- semdakerfinu að einn sem standi á bak við slík skrif sé Sigurður Ingi Jónsson og hann skrifi undir dul- nefninu Rebook. Áður en til umræðunnar kom birtist á Mannlífsvefnum klausa um draugasíðu með slóðina www.dag- legurvidbjodur.blogspot.com. Innihélt síðan níðskrif um nafngreinda menn. Henni hefur nú verið lokað. Þar var að finna klásúlu um Sigurð Inga: „Fyrir síðustu al- þingiskosningar var Sigurður Ingi Jónsson, Frjálslynda flokknum, áberandi sem leiðtogi í fyrsta sæti í Reykjavík norður. Hann var hárs- breidd frá því að ná kosningu." Reynir ritskoðaður á malefnin.com í samtali við DV segist Reynir ekki geta fullyrt að um Sigurð sé að ræða en svo einkennilega vilji til að klukkustund eftir að þessu var hald- ið fram á vef Mannlífs þá var áður- „malefnin.com búa við öfugsnúnar reglur en þar er viðurkennt að nafngreina megi menn og kalla öllum illum nöfnum meðan samhHða er níðingun- umhlíft." nefndri síðu lokað sem og heima- síðu Sigurðar sij.is. Og Rebook virð- ist hafa gufað upp af malefnin.com þó eftir sitji svívirðingar hans. „Ég get ekki staðfest að þarna hafi Sigurður Ingi verið á ferð. En eftir að ég hóf þessa umræðu hef ég fengið fullt af ábendingum. Og ég skora á gott fólk að upplýsa hverjir eru inni á malefnin.com, undir „nikkum" að setja fram svæsinn óhróður." Reynir, sem nú rannsakar nafn- leysingjana, nefnir að malefnin.com búi við öfugsnúnar reglur en þar sé viðurkennt að nafngreina megi menn og kalla öllum illum nöfnum meðan samhliða sé níðingunum hlíft. „Ég hef sett þarna inn tvö inn- legg og var ritskoðaður af því að ég nafngreindi einstakling sem að baki ákveðinni nafngift er." Sigurður Ingi -í? og Frjálslyndir Æ Magnús Þór Mt telur að þarna sé ^RXp. ekki stór hópur I manna heldur H ákveðnir ein- ffliL staklingar, sem Tp telja sig eiga ein- hverra harma að 8 hefna, með nokkur nöfn í gangi sem þeir Mi svo nota í stórfellt J8| skítkast. Og hann HH Sigurður Ingi Jons- son Magnús Þór frábiðursér að hann sé kenndur við Frjálslynda flokkinn. undirstrikar að Sigurður Ingi hafi ekkert með Frjálslynda flokkinn að gera. „Þegar fyrir lá að Sigurður Ingi hefði stórtapað kosningunni þá sagði hann sig úr flokknum fáum dögum eftir landsfundinn. Síðan höfum við ekki heyrt af þessum manni utan þess að hann hefur stundað níðskrif gegn forystu flokks- ins og þá einkum mér á heimasíðu sinni. Eg hef hins vegar ávallt látið hjá líða að svara honum." Ekki hefur náðst í Sigurð Inga undanfarna fjóra daga þrátt fyrir símhringingar og skilaboð. Netmenn í felum Reynir hefur lagt upp í krossferð gegn þessu sem hann kallar ófögn- uð. Og kallar eftir ábyrgð. En hann gerir sér jafnframt grein fyrir því að þetta sé vandmeðfarið mál. Hann hefur nú ítrekað reynt að ná í Stefán Helga Kristinsson, þann hinn sama og stjórn- ar malefhin.com, en án árangurs - hvorki svarar hann síma né skilaboð- um. „Það er ekkert hægt að sækja á hann af því að þetta er dott com vefsvæði. Persónuvernd I hefur krafið hann um É .jsíf upplýsingar og hann » komist upp með það að láta þær ekki af hendi." Á Reyni er að skilja að ýmsar aðferðir séu mögu- legar til að kom- ast að IP töl um, til dæmis með lögreglurann- sókn, sem hljóti að koma til greina. Reyndar hefur sljákkað mjög í heift- úðugri umræðunni á malefnin.com eftir að Reynir hóf skæruhernað Þingmenn ekki líklegir til afreka Málið er alþjóðlegt sem þýðir þó ekki að getum ekki haft á því skoð- anir. íslendingar ættu ekki, að mati Reynis, að vera slíkir molbúar að geta ekki hugsað þetta heildstætt. „Verðugt verkefni fyrir þessa þingmenn, sem varla rísa undir starfsheitinu, að fara í þessar pæl- ingar og koma böndum á óhróður- inn á heimi Netsins. Ég held að við séum ágætlega settir með lög og reglu á öðrum sviðum. Málið er stórt - líklega of stórt fýrir þetta lið sem situr á Alþingi íslendinga. Þar eru menn sem dúkka upp þegar lýður- inn æpir - í stöku mál- um, segir Reynir sem vill eiga þess _________s kost að sækja þann til saka sem í skjóli nafn- leyndar ber á sig óhróður. jakob@dv.is Stefán Helgi Kristinsson Á vefsvæðið malefnin.com sem virðist utan íslenskrar lögsögu þarsemþað er vistað utan landssteina. Reynir Traustason Skorar á gott fólk að upplýsa um óhróð- ursmennina sem dreifa niði um nafngreinda menn á Netinu „Við frábiðjum okkur að Sigurður Ingi Jónsson sé kenndur við Frjálslynda flokkinn. Hann sagði sig fyrst úr flokknum fyrir tæpum tveim árum, í mars 2004. Síðan gekk hann í flokkinn aftur íyrir landsfund í mars á síðasta ári til að hjálpa Gunnari örlygssyni vini sínum að velta mér úr varaformannsstðli," segir Magnús Þór Haf- steinsson varaformaður Frjálslynda flokksins. Ivlagnús Þór Hafsteinsson Þingmaðurinn segirSigurð skrifa nlð um sig á vefnum. „Það var þorrablót á föstu- daginn og mikið um að vera, “ segir Gunnlaugur Jónasson hótelstjóri Hótels Egils- staða Landsíminn og meðlimur í þorrablótsnefnd. „Blótið varhaidið I Iþrótta- húsinu því það sprengdi samkomuhúsið utan afsér. Við seldum 530 miða. Þarna voru ýmis skemmtiatriði þar sem gert var saklaust grln af fólkinu I sveitinni."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.