Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2006, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2006, Page 32
32 MÁNUDACUR 23. JANÚAR 2006 Menning DV Flugur BERGÞÓRA JÓNSDÓITIR blaðakona spyr á laugardag í Mogganum hver sé stefna borgar- yfirvalda f Reykjavík í tónlistar- málum. Tilefnið er sú deila sem lengi hefur staðið um styrki til tón- listarskóla í borginni, en þeir eru nú takmarkaðir við 25 ára aldur og lögheimili í Reykjavík. Styrldr til nemenda úr öðrum sveitar- féiögum eru ekki veittir skól- unum. Fyrir bragðið hafa tón- listamemendur stofhað samtöktil að beijast fyrir réttindum sínum. SVEITARFÉLÖGIN eru að berj- ast um krónuí og takmarka þá val- kosti sem nemendur hafa til tón- listamáms, Hér er vegið að fram- tíðaimenntun þjóðarinnar í tón- list með skammtímasjónarmið og hrepparíginn gamla að vopni. En Bergþóra sér víðar: hún spyr hver stefna borgariiinar í tónlistarmál- um sé yfirleitt og finnur bara tóma kofa. Eng- inn meirihlutaflokkanna hefur skýra stefiiu í þeim efnum, minni- hlutinnekki heldur. ÞEGAR Salurinn reis í Kópa- vogi tókst Gunnari Birgissyni og kó að ræna tónlistinni frá Reykja- vík. Þar sátu menn og biðu þess að öll mál ^ ^ leystust með Tónlist- f ^ arhúsi. Karlakór * Reykjavíkur hafði reist sér hurðarás um öxl með byggingu Ýmis og Kvennakómum var komið þar inn. Kammersveitin og Kamm- ermúsikklúbbur- inn vom í kirkjum, poppið sá um sig sjálft, Iðnó varð aldrei tónlist- arhús, Listasöfnin glæddu starf- semi sína með tónleikahaldi. Borgin var stikkfrí. OG SVO er enn: að vísu styrkir menningarmálanefhd starfsemi tónlistarhópa. Kammersveit Sal- arins fær styrk frá Reykjavík til að spila í Kópavogi. Tríó Reykjavfkur spilar í Hafharfirði. Kjömir fulltrú- ar forðast það eins og eldinn að koma upp fastri aðstöðu með rekstrarsfyrk fyrir tónleikahald í borginni. Þeir geta ekki til þess hugsað að hér verði rekið tónlist- arhús - fyrr en Landsbankamenn og félagar taka að reka Tónlistar- húsið mikla. LAGT var til að menn nýttu tækifærið og skilyrtu styrki menn- ingarmálanefhdar til flutnings í einu húsi og reyndu með því móti að ná saman reynslu um rekstur minni sala í Tónlistarhúsi. Kom til greina að taka Austurbæjarbíó undir þann rekstur með tilstyrk Borgarinnar. En borgarfulltrúar ætla að þrjóskast við og halda áffam stefnuleysinu. Og á meðan heldur Reylgavík áfram að tapa stöðu. Nú þegar við blasir að reist verður Óperuhús í Kópavogi er sýnt að enn einn hlutinn af tón- listarlífinu tapast þangað. Undrar engan: þetta er sönglaust lið og hugsjónasmátt að auki. Utrás og innrás í sögulegu Ijosi / Áfram heldur hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags íslands um útrásina. Á morgun flytur Þór Sigfússon hagfræðingurer- h indi sem nefnist „Útrás og innrás í sögulegu Ijósi". Þar mun Þór rekja stóraukin umsvif islenskra fyrirtækja i útlöndum undanfarin ár og skoða sögulega forsendur þeirra. Einnig mun hann fjalla um vaxandi innrás erlendra fyrirtækja í islenska hagkerfið. . Hádegisfundurinn er að venju í Þjóðminjasafni fslands og hefst kl. 12:10. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Upphafserindi forseta fslands í röðinni vakti mikla at- hygli. Forseti fór fögrum orðum um „útrásina" og verður .1 fróðlegt að heyra mat hagfræðings á eðli hennar . Þór Sigfússon er forstjóri Sjóvár. Hann hefur skrifað þrjár bækur um ísland i útrás og alþjóðavæðingu. Þór Sigfusson hagfræðingur. Umsjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbb@dv.is Ljóðaverðlaun veitt í Kópavoginum Ort um blátt myrkrið Ljóðstafur Jóns úr Vör er árleg ljóðlistarverðlaun sem veitt eru að lokinni samkeppni þar sem öllum er frjálst að senda inn frumsamin ljóð á íslensku, og undir dulnefni. Hér takast því á reyndari skáldin og þau yngri í jöfnum leik. Ásamt því að fá hinn silfurbúna ljóðstaf Jóns úr Vör til varðveislu í eitt ár, og verðlaunagrip til eignar, hlýtur vinningshafinn 500.000 krónur í verðlaun. Að þessu sinni voru inn- send ljóð 365. Verðlaunin eru veitt við hátíðlega athöfn á fæðingar- degi Jóns úr Vör þann 21. janúar ár hvert. Fyrri handhafar Ljóðstafs Jóns úr Vör eru: Linda Vilhjálms- dóttir, Hjörtur Magnússon, og Hjörtur Pálsson. Eftir vandlegan lestur komst dómnefridirí að þeirri niðurstöðu að verðugur haftdhafi ljóðstafs Jóns úr Vör árið 2006 sé Óskar Ámi Óskars- son fyrir ljóð sitt „í bláu myrkri". Dómnefndin segir „Ljóðið „í bláu myrkri" er ort fyrir munn þeirrar nafnlausu veru sem ávajlt er reiðubúin að birta manneskj- unni hina ljóðrænu möguleika til- vistarinnar, staldri hún við og leggi við hlustir. Hér eru myndir spunn- ar úr orðum af mikilli list og Óskar Árni hrífur okkur með sér í undur- samlegt ferðalag sem hefst í ljósa- skiptunum, hefur viðkomu í haf- inu, minninu, hanskahólfinu og draumunum, og lýkur hjá tungl- inu, fjallinu og stelpunni við bensíndæluna. En lýkur þó eJdd, því þróttmikil rödd ljóðmæland- ans ómar áfram í huga þess sem les eðaheyrir." Samkvæmt þeirri hefð sem myndast hefur við veitingu ljóð- • stafs Jóns úr Vör veitir dómnefndin einnig tvær 100.000 króna viður- kenningar fyrir ljóð sem vöktu sér- staka athygli hennar. Þau eru „í klæðaskápnum" eftir Draumeyju Aradóttur og „Uppskera (úr Aðal- dalsljóðum)" eftir Ára Jóhannes- son. í dómnefnd sátu Hjörtur Páls- son, Ijóðskáld oj þýðandi, Soffi'a Auður Birgisdóttir, bókmennta- fræðingur, og Sjón, rithöfundur, sem var formaður dómnefndar. Óskar Ámi sson fæddist í Reykjavík 3. október 1950. Hann ólst upp í Þingholtunúm og gekk í Miðbæjarskólann. Hann stundaði nám í Samvinnuskólanum á Bif- röst 1969 -1971. Hann sendi frá sér sína fyrstu ljóðabók, Handklæði í gluggaldstunni, árið 1986. Sam- hliða ritstörfúm hefur hann lengi starfað sem bókavörður. Óskar Árni hefur einkum fengist við ljóðagerð og ljóðaþýðingar og meðal annars sent frá sér þrjár bækur með japönskum hækuþýð- ingum. Hann ritstýrði og gaf út bókmenntatímaritið Ský sem kom út á árunum 1990 - 1994. Ljóð eftir Ný sýning í London um H.C. Andersen Áhugamaður um Kanadíski leikhúsmaðurinn Ro- bert lepage er að frumsýna í vik- unni einleik sinn um H.C Andersen í Barbican leikhúsinu í London þar sem Vesturport sýndi Woyzeck sælla minninga. Er einsmannssýn- ing Lepage hluti af þeirri röð verka sem voru pöntuð í röð verka um unga snillinga. Sýning Lepage er ekki sú fyrsta sem hann flytur sjálf- ur og byggir á ævisögulegum bút- um um virt skáld. Fyrir fjölda ára vann hann rómaða sýningu um Jean Cocteau sem varð raunar fyrst til að vekja á honum verulega at- hygli. Nú situr hann á heiðursstóli í Ontario með fúlgur fjár í höndum, rekur sitt eigið leikhús og serídir sýningar sínar víða um heim. Frumsýningjn í London var frumflutt í Ástralfu í fyrra og byggir á brotum úr ýmsum textum Ander- sen, einkum dagbókum hans. „Hann var heillaður áf vændishús- um og á ferðum sínum til Weimar, Napolí og Parísar keypti hann sér þjónustu vændiskvenna til þess eins að horfa á þær, fór svo heim á hótel og fróaði sér. Það er fulljóst," segir Lepage, „að hann var í skápn- um enda hvorki kenndur við karla né konur." Lepage segist hafa mikla samúð með Hans Christian og umsagnir Óskar Árna hafa birst í fjölmörgum tímaritum og sýnisbókum, íslensk- um sem erlendum. Árið 2004 hlaut hann viðurkenningu Rithöfunda- sjóðs Rískisútvarpsins. Helstu verk Öskars eru ljóða- söfnin Einnar stjömu nótt (1989), Handklæði í gluggakistunni (1986), Myrkrið kringum ljósastaurana (1999), Norðurleið (1993) og Veg- urinn til Hólmavíkur (1997). Þá hefur hann sent frá sér örsögur í söfhunum: Lakkrísgerðin (2001) og Tmflanir í Vetrarbrautinni (2004) um sýninguna frá Ástralíu segja hana afar fagra og skáldlega sem hefur löngum einkennt sýningar Lepage. Hann segist þekkja til til- finninga litla ljóta andarungans. Sjálfur er hann samkynhneigður og missti allt hár á unga aldri. Hann segist því þekkja þá tilfinningu að falla ekki í hóp. Nú þegar hann er orðinn einn virtasti leikhúsmaður í heimi segir hann mikilvægast að halda takmörkum sínum og vera óhræddur við það sem fyrir ber. The Andersen Project er sýnt í Barbican, London EC2 (frá 26. janúar til 18,. febrúar. Project Andersen Robert Lepage á sviði í verkinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.