Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV Eiffel Bar Vett- vangur gleðskap- arins igærþar sem Rúnarfagn- aði óskarsverð- launatilnefning- unni ásamt skóla- félögum slnum. Síðasti bærinn Stuttmynd Rúnars var tekin á Vestíjörðum. Hringtorg við farfuglaheimili Gera á hringtorg við far- fuglaheimilið á Sundlauga- vegi samkvæmt tillögu full- trúa R-listans í skipulags- ráði Reykjavíkur að breyttu deiliskipulagi lóðar far- fuglaheimilisins. Þetta sé í samræmi við ítrekaðar ósk- ir íbúa. Sjálfstæðismenn í skipulagsráði er andsnúnir tillögunni því með ráð- gerðri stækkun farfugla- heimilisins aukist umferð- arvandi verulega. „Aukið byggingarmagn við gatna- mót Dalbrautar og Sund- laugavegar mun auka enn frekar á umferðarvandann og slysahættu í hverfinu," segja sjálfstæðismenn en R-listamenn segja jákvætt að farfúglaheimilið fái „svigrúm til að vaxa". Reynt að bjarga húsi Unnin hefur verið ný til- laga að deiliskipulagi vegna umdeildra framkvæmda sem unnar voru í óleyfi á Heiðargerði 75. Hæstiréttur hefur áður mælt fyrir um að viðbót við húsið skuli rifm en nú freista eigendur hússins þess að bjarga mál- inu með nýju deiliskipulagi sem lagt verði fyrir ná- granna í átta húsum við Heiðargerði. Skipulagsráð hefur samþykkt að nýja til- lagan verði kynnt nágrönn- unum en segist þó leggja sérstaka áherslu á að gerðir sé allir fyrirvarar um enda- lega afstöðu þar til hags- munaaðilar hafi kynnt sér tillöguna. Hætta við Melaskóla Ætlunin er að grípa til ráðstafana til að bæta ör- yggi barna í umferðinni við Melaskóla. Foreldraráð skólans segir skólabömun- um vera hætta búin af bíl- um sem em stöðvaðir við Furumel. Á síðasta fundi Hverfisráðs Vesturbæjar var ákveðið að heimsækja Melaskóla, skoða umferð- armálin við Furumel og hitta fuiltrúa skóla og for- eldraráðs til að skoða frek- ari tillögur. Fram kom á fundinum að hægt væri að setja niður staura, stöpla og umferðarspegla til að tryggja betri umferð og koma í veg fýrir að hægt sé að leggja bflum uppi á gangstétt. Stuttmynd Rúnars Rúnarssonar, Síðasti bærinn, hefur verið tilnefnd til óskarsverð- launa sem afhent verða 5. mars. Rúnar fagnaði vel í Kaupmannahöfn i gær en þar stundar hann nám i Danska kvikmyndaskólanum. Næst á dagskrá er að leigja sér smóking fyrir óskarshátiðina. fagnaði Eiffel Bar Rúnar Rúnarsson hefur verið tilnefndur til óskarsverðlaunanna fyrir stuttmynd sína, Síðasti bærinn. Rúnar stundar nám í Danska kvikmyndaskólanum og var að vonum himinlifandi í gær þegar honum bárust fregnirnar yfir hafið til Kaupmannahafnar. „Ég sat í tíma í skólanum þegar ég frétti þetta og gat lítið gert vegna þess að ég þurfti að ljúka verkefn- um,“ sagði Rúnar þegar DV ræddi við hann í gær, nokkrum mínútum eftir að tilnefningin spurðist út. En svo stóð mikið til: í strætó „Ég sit núna í strætó númer 66 á leið úr Hólminum og út á Kristjáns- höfn þar sem skólafélagarnir ætla að fagna með mér á Eiffel Bar," sagði Rúnar, en Eiffel Bar er einn sá þekktasti í Kaupmannahöfn og bregður oftar en ekki fyrir í þeim dönsku sakamálaþáttum sem ís- lendingar hafa verið að fylgjast með í sjónvarpinu. Barinn er opinn lengur en aðrir í Kaupmannahöfn og vel sóttur af listafólki alls konar sem leggur mikið upp úr bjór- drykkju sér til sáluhjálpar. Rauður speglasalur „Þetta er einn af þremur bestu börunum í Kaupmannahöfn og vel við hæfi að fagna þar,“ sagði Rúnar sem þá var að stíga út úr leið 66 á Torvegade með stefnuna beint í Wildersgade þar sem Eiffel Bar stendur og lætur ekki mikið yfir sér. Barinn er allur rauður að innan og minnir einna helst á speglasal í skemmtigarði. Svartur smóking „Næst á dagskrá er að leigja sér svartan smóking og fara úttil að vera við verðlaunaafhendinguna sem verður 5. mars," sagði Rúnar um leið og hann skaust inn á Eiffel Bar. Tak- markinu náð í tvennum skilningi. Víðförull bóndi Stuttmynd Rúnars fjallar um gamlan bónda, leikinn af Jóni Sigur- björnssyni, og konu hans. Þau eru *■ Runar Runarsson Hefur slegið í gegn svoum munar með Síðasta bænum. síðustu ábúendur í af- viknum dal og þurfa að takast á við nútímann. Kjartan Sveinsson í Sigur Rós samdi tón- list við myndina en síðustu misseri hefúr Rúnar flakkað vítt og breitt um heiminn með mynd- ina og hlotið Qölda verð- launa. „Hún hefur verið sýnd í öll- um heimsálfum nema Suður- skautinu. Verst að enginn vill kaupa hana til sýningar á íslandi. Flestir ís- lendingar eiga því eftir að sjá hana.“ Rúnar er með nokkur ný verkefni í vinnslu með framleiðendum sínum hjá Zik Zak, sem gerðu Síðasta bæinn með honum. Skaðabætur fyrir áhugaleysi á risakleinum Það skemmtilegasta sem Svart- höfði gerir er að sækja myndlistar- sýningar. Verst að hann er alltaf einn að gaufa þetta í hinum ýmsu sýning- arsölum. Sér aldrei hræðu. Þess vegna er hann ánægður með að rík- ið skuli hlaupa undir bagga með myndlistarmönnunum. Og skjóta á þá nokkur hundruð milljónum í skaðabætur fyrir þetta áhugaleysi menningarsnauðra labbakúta sem landsmenn eru upp til hópa. AfþvíaðSvarthöfðiveitaðsnilld- in fer fram hjá þorra almennings ætlar hann að reynahið ómögulega:' Upplýsa menn um af hverju þeir eru að missa. Margrét H. Blöndal ér til dæmis mikill meistari. List hennar er algerlega ómögulegt að lýsa með orðum. En skúlptúrar Margrétar eru samsettir úr fundnum: leifum eins og svampi, múrbrotum, boltum, gúmmíslöngum og blöðrum. Sem betur fer fær Margrét nú tveggja ára starfslaun.- Bins og varaþingmaður- :m er pú eng- myndíistinm. Hug- myndafræði hans er svo einföld að Hvernig hefur þú það? „Ég hefþað mjög fínt þakka þér fyrir," segir Friðrik Ómar Hjörleifsson, söngvari og þátttakandi I Söngvakeppni Sjónvarpsins.„Það er nóg að gera. Ég er að kenna krökk- um ísöngskólanum Maríu. Skólinn var aö byrja aftpr o^jpg^er það er erfitt að átta sig á henni. En hún hvetur mann til þátttöku, hvort sem er í sjálfri sér eða lífinu sjálfu. Þetta er með öðrum orðum: Snilld. Þá er hún Sara Björnsdóttir fá- gætur gimsteinn en hún gerir skrýtna hluti og fer með texta um þá auk þess sem hún raðar trékubbum á gólfið. Því miður virðist skrfllinn frekar vilja vera í legó heima hjá sér og missir því af snilldinni. En sem betur fer fær Sara tvö ár frá Þorgerði Katrínu. Sem og hinn virti Kristinn . E. Hrafnsson. í verki sínu „Stöðug óvissa" varpar hann ljósi á stabflasta ástandið í lífinu og listinni: Óviss- una. Því miður fær gjörningalista- konan Hekla Dögg Jónsdóttir ekki nema eitt ár. Svo Svarthöfði reyni nú að upplýsa óuppdreginn lýðinn þá hóf hún feril sinn um miðjan síð asta áratug með því að baka risakleinur með glassúr sem hún raðaði á satínklætt borð sem sumpart líktist rúmi. Og svo framdi hún gjörning með því að fldæðast nælonsokkum fylltum þeyttum rjóma. Hún fór í hver sokkaplöggin af öðrum svo rjóminn spýttist allt um kring og fætur hennar líktust einna helst fflslöppum. Því miður fengu aðrir listamenn minna en ættu að fá meira. Miklu meira. Fyrir að standa í þessu basli fyrir fóik sem ekki kann gott að meta. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.