Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006 Fréttir 0V 60 óskoðaðir Lögreglan í Hafnarfirði boðaði 60 bfla til skoðunar eftir eftirlit í bænum í fyrrinótt. Að sögn lögreglu var tilkynning sett á alla bfl- ana til að vekja athygli á því að boðunarmiði hefði verið límdur ofan á skoðunarmiða bflsins á númeraplötunni að því er fram kemur á vikur- frettir.is. Fá bfleigendur nú vikufrest til að færa bfla sína til skoðunar. Lögregla segir það algjöran trassaskap bfla- eigenda að færa ekki bfla sína til skoðunar á réttum tíma. Umræddir bflar virtust þó almennt hafa verið í þokkalegu ástandi. Algjör fálki á Borðeyri „Þetta virtist vera alger fálki því hann hélt greinilega að hann væri að fá samkeppni um matinn og sat sem fastast þrátt fyrir að komið væri mjög nálægt honum," segir á strandir.is um gæfan fálka sem á mánudag sást gæða sér á bráð við þorpið Borðeyri við Hrútaijörð. „Ef fálkar hefðu hendur, þá hefði verið hægt að heilsa honum með handabandi, svo rólegur var hann. Því næst settist hann á staur við Grunnskólann og sat þar g'óða stund sem fyrir- sæta fyrir börnin sem höfðu fróðleik af,“ segir á strandir.is. Deyr íslenskan? Sigurjón Brink tónlistarmaöur. „Nei, ég held að hún komi ekki til með að deyja út þótt það sé mikið afslettum I málinu. Þaö er eitthvað I þjóðarstoltinu sem leyfir ekki að hún deyi út. Hún á kannski eftir breytast eins og hún hefur alltafgert en það er ekkert til að hafa áhyggjur af. Það er samtgott að hafa það bak við eyrað." Hann segir / Hún segir „Ég held hún geti veríð i hættu svo lengi sem við stöndum ekki vörð um hana. Ég hefþá trú á jafnt ungum sem öldnum að þeir láti hana ékki, deyja út. Tungan er hluti afokkar sjálf- stæöi sem þjóð. En ég hvet alla til að standa vörð um hana.“ Guörún Ásmundsdóttir leikkona. Árni Guðmundsson, æskulýðsfulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, segir vandamálasíður sem haldið er úti á folk.is séu stórhættulegar. Síðurnar auglýsa ráðgjöf sína og svara spurningum unglinga varðandi kynlíf og samneyti kynjanna á afar ófag- mannlegan hátt. Zuilma Gabriela Sigurðardóttir, dósent við sálfræðideild Háskóla íslands, segir síðurnar vandamál. Zuilma Gabriela Sig urðardóttir Dósent við sálfræðideild Há- skóia isiands teiurafar vafasamt að það séu ólærðir á bak við vandamálasíðurnar. klámkynslóðarinnar „Þessar síður geta verið stórhættulegar," segir Árni Guð- mundsson, æskulýðsfulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, um ís- lenskar vandamálasíður á netinu sem hafa sprottið upp að undanförnu. Folk.is hýsir nokkrar síður sem nafnlaust fólk heldur úti. Markhópur þeirra er ungir krakkar sem vilja fá að- stoð við vandamálum sínum en fá afar ófagmannleg svör. Flestar spurningarnar eru um þyngd eða kynlíf og sumar þeirra eru sláandi. „Það er mjög alvarlegt ef fólk heldur úti svona síðum og þykist vera ráðgjafar," segir Árni um heimasíðuna „Ég hjálpa". Stúlka, sem kallar sig Dagný, heldur úti síð- unni og segir sjálf að hún sé 22 ára sálfræðinemi. Við eftirgrennslan kom í ljós að engin Dagný er í sáí- fræðideild Háskóla íslands. Spurn- ingar unglinganna eru'af mörgum toga og misalvarlegar. Kynlíf 13 ára? „Þetta er brenglað siðferði og ábyrgðarlaust," segir Árni grafalvar- legur og talar þar um vafasöm svör Dagnýjar varðandi kynlíf. „Þetta er brenglað siðferði og ábyrgð- arlaust Dæmi eru um að þrettán ára stúlkur spyrji hvort eðlilegt sé að stunda munnmök og kynlíf og þykir Dagnýju ekkert að því svo lengi sem viðkomandi unglingur sé tilbúinn. Árni bendir á að krakk- ar eigi að leita sér aðstoðar hjá þeim sem þeir þekkja persónulega eða fólki sem getur bent þeim á viðeigandi hjálp hvað þetta varðar. Siðferði kynlífs „Það er augljóst að spurningarn- ar brenna á unglingunum og þeim þarf að svara," segirÁrhi sem bend- ir þó á að það sé alvarlegt ef rangur aðili svarar þeim. Árni segir að skólarnir þurfi að taka upp umræðu varðandi siðferði kynlífs en ekki bara kenna fræðilegu hliðina. Ef unglingar vilji leita sér svara séu fagsíður á netinu með sér- fræðingum þar sem spurningum þeirra er svarað. Eins og frumskógur „Þetta er auðvitað Vcmdamál," segir Zuilma Gabriela Sigurðardóttir, dósent í sálfræði í Háskóla íslands um vandamálasíð- urnar. Hún segir að nemar í Ég hjálpa þér, treystu mérÁ heimasíðunni má finría sláandi spurningar og svör. Árni Guðmunds- son Æskulýðsfulltrúi Hafnarfjarðar telur vandamálasíðurnar stórhættulegar. sálfræði séu alls ekki hvattir til þess að halda úti slíkum síðum. ZuOma telur það vafasamt að ekki séu fagaðilar að baki heima- síðum sem þessum og bætir við að það þurfi að fræða ung- lingana um hætt- urnar sem geta fylgt 1 þeim. „Þetta er bara eins og frumskóg- ur," segir Zuilma um ráðgjöf sem finna má á netinu. valur@dv:is 22 mánaða fangelsi fyrir tíu þúsund króna þýfi Notuðu sveðju við tvö vopnuð rán ásamadegi ' Tveir menn voru í gær dæmdir í Héraðsdómi Reykjavflcur fyrir tvö vopnuð rán sem framin voru í sumar. Annar þeirra, Gísli Valur Eggertsson, fékk tólf mánaða fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundna. Hinn, Andri Ragnarsson, var dæmdur í tíu mán- aða fangelsi en enginn hluti dómsins er skflorðsbundinn. Saman fóru þeir Gísli Valur og Domino's við Spöngina Gísli spurðistarfs- mann þar hvort hann vildi deyja og rændi tlu þúsund krónum. Andri inn í Lyf & heilsu við Austurver í sumar og ógnuðu afgreiðslustúlku. Gísli Valur var vopnaður sveðju og öskraði á afgreiðslusttOkuna að segja sér hvar lyfið Mogadon væri geymt. Eftir að hafa sannreynt að ekkert Mogadon væri í apótekinu héldu fé- lagamir á brott. Þeir höfðu ekkert þýfi með sér. Síðar sama dag ruddist Gísli Vaiur inn á sölustað Domino’s við Spöng- ina vopnaður sömu sveðju og fyrr. Hann tilkynnti starfsmanni að um rán væri að ræða og spurði hann jafii- framt hvort hann vildi deyja. Gísfi hafði rúmar tíu þúsund krónur upp úr krafsinu. Enn síðar sama dag voru þeir fé- lagar Gísii og Andri handteknir af lög- Lyf & heilsa Hingað komu Glsli og Andri og heimtuðu lyfið Mogadon en fengu ekki. fannst smáræði af hassi og e-pfllum á mönnunum. Þeir eru báðir á þrítugs- aldri og eiga nokkuð langan sakaferil að baki. Ránin tvö reyndust félögimum afar dýrkeypt. Ránsfengurinn reynd- ist h'tiU sem enginn en samanlagt fá þeir 22 mánaða fangelsisdóm. Er löngum sakaferli þeirra einna helst um að kenna. andri@dv.is Vélsleðar víki af skíðasvæði Forstöðumaður Skíðamið- stöðvar Fjarðabýggðar vill að settar verði takmarkanir á utan- vegaakstri vélsleða á skíðasvæð- inu. Hefur forstöðumaðurinn unnið tillögu um þetta ásamt tfl- lögum að ferjuleiðum fyrir vélsleðana. fþrótta- og tóm- stundanefnd sveitarfélagsins féllst á tiOögur forstöðumannsins um takmörkun umferðar vélsleðanna og segist styðja hug- myndir hans um ferjuleiðir fyrir sleðana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.