Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006 Fréttír DV Kristmundur í héraðsdómi Framhald aðalmeðferðar í máli Kristmundar Sigurðs- sonar fór fram í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær. Kristmundi er gefið að sök að hafa tekið fjórtán ára ungling hálstaki, dregið hann á eftir sér og skellt honum upp við vegg í sept- ember 2004. Kristmundur neitar sök vegna þess að drengurinn í slagtogi við annan veittust að syni Krist- mundar að hans sögn. Kristmundur er faðir Sig- urðar Freys sem er ákærður fyrir morð á Braga Halldórs- syni í ágúst á síðasta ári. Önnur tveggja sakborninga í umsvifamiklu ávísunarfölsunarmáli sem upp komst hér á landi í sumar, Susan Hyns, fékk í gær endurgreiddar rúmlega átta hundruö þúsund krónur sem lögregla geröi upptækar við handtöku hennar í Danmörku. Fórnarlömb svikaranna hafa ekki fengið greidda krónu af þeim rúmlega þremur milljónum sem parið hafði af þeim. Lögreglu gert að skila fjársvikara peningum Mál Sýslumannsins í Hafnarfirði gegn Árna Elvari Þórðarsyni var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Árna er gefið að sök að hafa haft í vörslu sinni í febrúar í fyrra 64 grömm af kannabisefiium, 10 grömm af amfetamíni, 17 grömm af kókaíni og fjóra skammta af ofskynjunarlyfinu LSD. Árni játaði sök í héraðsdómi í gær og er dóms að vænta í málinu innan skamms. Ámi er góðkunningi lögreglunn- ar og var, ásamt öðrum, dæmdur fyrir alvarlega lík- amsárás í nóvember 2004. Kjálkabraut mann með keðju Framhald aðalmeðferðar í máli Jörundar Ármanns Ás- grímssonar fór fram í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær. Hann er ákærður fyrir alvar- lega likamsárás þar sem hann kjálkabraut mann með keðjuhlekkjum íVestmann- aeyjum í september 2004. Honum er einnig gefið að sök að hafa stolið bíl í Kefla- vík, ekið honum án ökurétt- inda og undir áhrifum vímu- efna. Hann er líka ákærður íyrir að hafa rænt sölutum- inn Lukkustjömuna vopnað- ur hnífi í október 2004. Jör- undur játaði brot sín. Norræna Susan reyndi að flýja land með Norrænu dsamt félaga sínum d stoln- um bílaleigubflum. Héraðsddmur Reykjavíkur úrskurðaði í gær að Lögreglustjór- anum í Reykjavík bæri að skila rúmlega átta hundruð þús- undum króna til Susan Hyns, líberískrar konu. Hún var í nóv- ember dæmd af Hæstarétti í fimm mánaða fangelsi fyrir um- svifamikil fjársvik. Peningana gerði lögregla upptæka þegar konan var handtekin og framseld hingað til lands í júní. Fjársvikarar Joshua Olayiwola Oladapo stundaði ýmis svik d Islandi með Susan Hynsi fyrra. Síðasta sumar stundaði Susan Hyns ýmis svik í félagi við annan mann, Joshua Olayiwola Oladapo, bandarískan ríkisborgara, hér á landi. Alls er talið að þau hafi prettað um 3,3 milljónir af fólki og fyrirtækj- um. Susan og Joshua reyndu svo að flýja land með Norrænu á stolnum bflaleigubílum en vom handtekin í Danmörku og framseld til íslands. Lögreglan á ekki að innheimta Lögreglustjórinn í Reykjavík neitaði að skila peningunum sem gerðir voru upptækir við hand- tökuna í Danmörku og benti á að upphæðin sem gerð var upptæk væri margfalt lægri en skaðbæt- urnar sem parið var dæmt til að borga fómarlömbum sínum. Og á raunar enn eft- ir að greiða út. Amgrímur ísberg héraðsdómari benti hins vegar á í úrskurði sínum að samkvæmt lögum um meðferð opinberra máia er ekki gert ráð fyrir að lögreglan innheimti skaðabætur, sem dæmdar hafa verið, eða skipti þeim á milli eigenda krafna, eins og lögreglustjóri hugðist gera við pen- ingana. Fölsuðu ávísanir Susan Hyns hefur lokið afplánun fangelsisdómsins sem hún fékk fýrir fjársyikin. Henni er því frjálst að yfir- gefa ísland með peningana sem lög- reglustjórinn ætlaði fórnarlömbum hennar. Peningarnir sem hún fær í hendur em allir í reiðufé. Um 116 þúsund í íslenskum krónum, 9.550 í evrum, fimm pund og einn dollari. Féfagi hennar í fjársvikunum, Joshua Oladapu, afþlánar hins vegar enn sinn dóm en hann var dæmdur í Hæstarétti í 15 mánaða fangelsi. Sannað þótti að Joshua væri höfuðpaurinn í fjársvikun- um sem aðallega fólu í sér prentun á fölsuðum ávís- unum sem parið framvís- aði í íslandsbanka og Landsbanka. Upp komst um svikin þegar bank- amir gátu ekki innleyst ávísanimar hjá bönkum í Bandaríkjunum. andri@dv.is 3,3 milljónir Talið er að Susan og Joshua hafi prettað um 3,3 millj- ánir króna af fólki og fyrirtækjum. “BS • r ■ ■ —ntf. »né>í .4 „Lögreglustjór- inn í Reykjavík neitaði að skila peningunum sem gerðir voru upp- tækir við hand- tökuna í Dan- mörku." Dánartilkynningar og jarðarfarir í RÚV Orðið kostar 159 krónur „Dýrt er Drottins orðið,“ segir séra Pétur Þorsteinsson, sóknar- prestur í Óháða söfnuðinum, um dánarfregnir og jarðarfarir í Ríkisút- varpinu en þar kostar orðið 159 krónur. Dagskrárliðurinn nýtur Kistan Það ererfidrykkjan og tónlistarat- riði sem hleypa kostnaði við jarðarfarir upp. Ekki auglýsingataxtar Rlkisútvarpsins Hvað liggur á? mikilla vinsælda og er útvarpað dag- lega klukkan 12.50 og aftur klukkan 18.50. Um helgar er aðeins einn slík- ur auglýsingatími að kvöldi. „í sjálfu sér er þetta lítill kostnað- ur þegar meðal jarðarför kostar á bilinu frá 200 þúsund krónum og upp í 400 þúsund krónur. Það er helst erfidrykkjan og tónlistar- t atriði sem hleypa þeim kostn- aði upp,“ r H segir Pétur sem „Ég vinn myrkranna á milli við að reyna að ná mér íatkvæði,"segir Guðriöur Arnar- dóttir, veðurfréttakona og frambjóðandi Iprófkjöri Samfylkingarinnar I Kópavogi. „Ég er mikið I simanum en svo hefég lika verið að skrifa greinar.Allt tilþess að koma stefnu- málum minum á framfæri. Ég þori ekki að vera bjartsýn. Ég geri bara mitt besta I þessu prófkjöriog svo sjáum við tilhvernig fer." telur að langflestra sem falla frá sé getið í þessum auglýsingatímum Rfldsútvarpsins. „Þetta er kannski í eina skiptið sem nafn viðkomandi er nefnt í út- varpinu og það getur haft tilfinninga- gildi," segir séra Pétur í Óháða söfnuðinum. „En þarna hefur Ríkisút- varpið vissu- ! lega tryggar tekjur," bæt- ■ ir hann við. Séra Pétur Þor- steinsson Ofti eina skiptið sem nafn viðkomandi er nefnt í útvarpinu. Börn fundu pípu Tvær litlar telpur mættu á lög- reglustöðina í Keflavík nú á dög- unum með fremur ógeðfellda flösku. Þær höfðu fundið svokall- að hasslón eða hasspípu á Smáratúnsleikvellinum í Keflavík. Um er að ræða beyglaða hálfslítra plastflösku sem hafði greinilega verið notuð til hassreykinga og skilin eftir á leikvellinum. Nokkur fjöldi slíkra hasslóna finnast í hverri viku alls staðar á landinu en svo virðist sem fíkniefnaneyt- endur sjái sér ekki fært að henda þeim f ruslið og enda þær því stundum í höndum ungra barna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.