Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Page 11
I>V Fréttir MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006 7 7 Á mánudaginn var listamannalaunum úthlutað. Rithöfundar fengu talsvert meira en myndlistarmenn og aðrar vaxandi listgreinar eru hálfpartinn útundan. Guðrún Nordal, fráfarandi formaður stjórnar lista- mannalauna, segir að sjóðurinn verði að taka mark á breytingum í listageiranum. Hlynur Hallsson mynd- listarmaður vill sjá meira samræmi á milli listgreina. Vaxandi greinar þurfa meiri listamannalaun „Hönnun og dans eru vaxandi greinar og það gætiþurft að taka tillit tilþess." Listamannalaunum er úthlutað úr fjórum sjóðum. Launasjóðum rithöfunda, myndlistarmanna, tónskálda og að lokum listasjóði sem stjórn listamannalauna heldur utan um. Á hverju ári er skipt um úthlutunarnefndir en stjómin situr tii þriggja ára. í ár var síð- asta starfsár stjórnarinnar undir stjórn Guðrúnar Nordal. Guðrún Nordal, formaður stjómar listamannalauna, telur eðlilegt að endurskoða hlutföll úthlutunar úr sjóðnum milli listgreina. Rithöfundar fá talsvert fleiri mánuði til úthlutunar en myndlistarmenn en á sama tíma em fleiri umsóknir frá myndlistar- mönnum. ,AUar breytingar á rekstri sjóðsins em bundnar í lög og því þarf að fara fram lagabreyting til þess að breyta þessu," segir Guðrún. Núgildandi lög em tíu ára gömui. Síðan þá hefur myndlistarheimurinn vaxið og dafnað. Guðrún segir nauð- synlegt að hafa vakandi auga með öll- um breytingum og stjóm listamanna- launa muni koma þeim skilaboðum áleiðis. Vaxandi greinar Guðrún segir jafhframt að vel komi til greina að gera öðmm list- greinum greiðari að- gang að sjóðnum. „Hönnun og dans | em vaxandi ' greinar og það j gæti þurft að taka | tillit til þess,“ seg- ; ir Guðrún. Hlynur Hails- rson er einn þeirra Fékk tvöár Hlynur Hallsson er ekki alveg nógu sáttur við hlut myndlistarinnar. myndlistarmanna sem í gær fékk út- hlutað listamannalaunum til tveggja ára. „Þú getur rétt ímyndað þér," segir Hlynur aðspurður hvort listamanna- launin komi sér vel. „Það er allt annað en auðvelt að reyna að lifa á því að vera myndlistarmaður." Hlynur hefur haft myndlistina að aðalstarfi síðustu ár og þannig þénað um 100 þúsund krónur á mánuði. Að auki vinnur hann ýmis aukastörf, einkum kennslu. Kosningastjóri fyrir norðan Hlynur situr um þessar mundir á Alþingi í fjarveru Steingríms J. Sigfús- sonar sem slasaðist illa í bflslysi við Húnaver í byijun mánaðarins. „Ég verð á þingi þar til Steingrímur verður hressari. Svo er ég búinn að ráða mig sem kosningastjóra Vinstri grænna Breytinga er þörf Guðrún Nordal telur eðlilegt að endurskoða hlutföll úthlutunar úr sjóðnum milli listgreina. fyrir norðan og svo ætía ég að byija að þiggja launin," segir Hlynur sem mun þá láta af öllum aukastörfum. Myndiist fái meira Hlynur er sáttur við fyrirkomulag- ið á úthlutuninni en hann vill sjá meira samræmi á milli listgreina. „Ég er ekki alveg nógu sáttur við hlut myndlistarmanna í þessu. Það hefur orðið svo gríðarleg sprenging í mynd- listinni að undanfömu," segir Hlynur Hallsson myndlistarmaður. svavar@dv.is Takkfyrlr síðast íslenskir hönnuðir sækja í sig veðrið. Nafnlaus svæði Reykjanesbær bregður til þess ráðs að óska eftir tilfögum frá íbúum um nöfh á tvö svæði sem em í uppbygg- ingu. Þetta er meðal annars íþrótta- svæði ofan Reykjaneshallar. Það verður það stærsta á íslandi með knattspymusvæði, körfuboltavöllum, fijálsíþróttasvæði og aðalknattspymu- leikvangi Reykjanesbæjar. Einnig er verið að leita að nafhi á þjónustu- svæði eldri borgara sem á að byggja á knattspymuvelli Njarðvíkur. Frjóir íbúar eru beðnir að hafa samband við bæjarskrifstofur. Ekki er tekið fram hvort verðlaun séu í boði. Ungur innbrotsþjófur Héraðsdómur Suðurlands dæmdi sautján ára pilt frá Þorláks- höfh í þriggja mánaða skilorðsbund- ið fangelsi fyrir tvö innbrot. í febrúar í fyrra braust drengurinn ásamt stúlku inn í íbúðarhús á höfuðborg- arsvæðinu. Þau stáiu þar fyrir um 225 þúsund krónur. í seinna skiptið braust pilturinn inn í íbúðarhús og stal raftækjum og flefru fyrir 320 þúsund krónur. Pilturinn játaði á sig brotin og kvaðst fyrir dómi vera búinn að snúa við blaðinu. Uppistand, dans, söngur, giens og mikið grín! Leikkonur: Alexía, Arnbjörg Hlíf, Halldóra Geirharðs, Ólafía Hrönn, Halla Margrét, Hildigunnur, Ingrid, Sólveig og María. á Kringlukránni miðvikudagkvöld kl. 21:00 1 1 , JL 4 m Í M vu (k 11 lil > IV i Aðgangseyrir 1200 kr. Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Auglýsing um nýtt deiliskipulag og breytingar á deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík. í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar tillögur að nýju og breyttu deiliskipulagi í Reykjavík. Reitur 1.141.2, Kirkjutorgsreitur. Tillaga að deiliskipulagi reits 1.141.2 sem afmarkast af Lækjargötu, Vonarstræti, Templarasundi, Kirkjutorgi og Skólabrú. Tillagan gerir ráð fyrir, m.a. að leyfð verði mikil upp- bygging á svæðinu og umtalsvert niðurrif, aðallega er um að ræða byggingarklasa sem samanstendur af nokkuð háum og djúpum húsum sem liggja þétt upp að byggingum sem fyrir eru. Neðanjarðar verður bílageymsla með 161 stæði. Til að rýmafyrir nýbyggingum verður leyft að rífa byggingu íslandsbanka að Lækjargötu 12, foreldrahús og aðra lága byggingu við Vonarstræti 4B. Skilgreind er ný lóð undir klasann. Einnig verður leyft að hækka 2 gömul hús í norðvestur horni reitsins og að gera minni háttar breytingar á húsum á reitnum að uppfylltum skilyrðum. Sjá nánar um einstaka lóðir á kynningar- gögnum. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Hringbraut - bensínstöð. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hringbrautarsvæðis, Umferðarmiðstöðvarreits. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu og stækkun á afmörkun svæðis á vestasta hluta Umferðarmiðstöðvarreits. Á svæðinu er gert ráð fyrir staðsetningu bensínstöðvar með tilheyrandi eldsneytisgeymum og dælum. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Sporhamrar. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hamrahverfis vegna þjónustulóðar við Sporhamra. Tillagan gerir ráð fyrir, m.a. að lóð er stækkuð um 369 m2, heimilt að byggja tveggja hæða íbúðarhús eða sambýli með allt að 5 íbúðum og tengdri aðstöðu, hámarks leyfileg hæð er 8 m og þakform frjálst og suð- og norð- vestan við lóðina er sameiginleg bílastæðalóð fyrir skólann, verslun- og þjónustu og svæðið að öðru leyti, allt að 50 stæði. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 - 16:15, frá 1. febrúar til og með 15. mars 2006. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið skipuiag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi síðar 15. mars 2006. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögunar. Reykjavík, 1. febrúar 2005 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 411 3000 • MYNDSENDIR 411 3090

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.