Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006
Fréttir DV
Eiríkur Jónsson
• f sömu mund og
fregnir bárust að Þor-
steinn Pálsson hefði
óvænt verið ráðinn af
fyrrverandi aðstoðar-
manni sínum Ara
Edwald í ritstjórastól á Fréttablað-
inu spurðist að Guðmundur Magn-
ússon, fulltrúi ritstjóra, hefði látið af
störfum. Eru samsæriskenninga-
smiðir nokkuð ráðvilltir hvort þetta
tengist eða ekki. Nema' að þeir eru
skoðanabræður og
tveir slíkir hafi verið
of mikið af því góða.
Þó Guðmundur hafi
ekki verið fyrirferðar-
mikill á ritstjórn
blaðsins var hann
þeim mun sýnilegri lesendum með
sjónarmiðspistlum sínum og slúðri
á leiðaraopnu blaðsins...
• Framboð Ólafs
Egilssonar sendi-
herra í prófkjöri
sjálfstæðismanna á
Seltjarnarnesi hefur
vakið athygli. Ekki á
athyglin eftir að minnka þegar
sendiherrann fer að birtast á kosn-
ingafundum með
eiginkonu sinni sem
er engin önnur en
Ragna Ragnars, fyrr-
verandi fegurðar-
drottning Islands.
Ólafur er glæsilegur
maður á velli en frúin er þó enn
flottari. Þetta getur ekki klikkað...
• Sjónvarpsþáttur-
inn Veggfóður með
Völu Matt flyst yfir á
Stöð 2 í kvöld. Verð-
ur gaman að sjá Völu
á gamalkunnugum
slóðum á ný. í
tengslum við þáttinn er gefið út
tímaritið Veggfóður sem er hið
vandaðasta að allri gerð. í nýjasta
tölublaðinu er vel falin frétt í aug-
lýsingu þar sem staðhæft er bað-
herbergi dugi aðeins í 17 ár. Nú
klóra sér margir í kollinum; sér-
staklega þeir sem búa í eldri hús-
um með ágæt baðherbergi sem
eru kannski orðin 34 ára, eða
helmingi eldri en Vala Matt og fé-
lagar leyfa...
• Útvarpsstöðin Kiss
hefur boðað byltingu
í íslensku útvarpi frá
og með deginum í
dag. Kiss hefur til
þessa helgað sig
hefðbundnu píkupoppi en nú á að
breyta til. Er ekki að efa að Sigurð-
ur G. Guðjónsson, útgefandi
Blaðsins, sem á Kiss, standi þarna
að baki. Líklegt er talið að reynt
verði að þræða hinn óljósa milli-
veg sem er á milli Bylgjunnar, Létt
og FM 957. Sá vegur mun þó vand-
rataður...
•Annars voru sömu
aðilar að ráða Ásgeir
Sverrisson sem rit-
stjóra Blaðsins. Sá
hefur brugðist
hressilega við í við-
tölum en veit þó varla að ekki var
hann fyrsti kostur í ritstjórastól-
inn. Sigurður G. Guðjónsson var
búinn að leita með logandi ljósi og
bjóða ýmsum gull og græna skóga
en allir höfnuðu þeir boðinu. Eng-
inn dregur þó ágæti hins nýja rit-
stjóra í efa enda náfrændi Hrafns
Gunnlaugssonar...
í gær vaknaði Þorvaldur Bjarni við þær fregnir að lag hans „Til hamingju ísland“,
sem Silvía Nótt syngur, væri komið á netið. Þegar leið á daginn varð ljóst að búið var
að dreifa því um allt. Þetta brýtur í bága við reglur keppninnar. Lagið er fyrirhugað
að flytja á laugardaginn í forkeppni Eurovision-keppninnar. Aðrir höfundar hóta að
draga sín lög úr keppninni grípi RÚV ekki í taumana og vísi Silvíu Nótt úr keppni.
„Fjöldi manna kemur að vinnslu lagsins [..
einhver óvandaður hefur komist yfír lagið
og dreift því. Sem er mjög alvarlegt mál."
Silvía Nótt tdag mun
ráðast hvort hún verður
rekin úr keppni eöa ekki.
Ekki náðist ÍSilviu Igær
en Ágústa Eva ieikkona
segir þetta leiðindamál.
Lagið Til hamingju ísland eftir Þorvald Bjarna, sem er sungið af
Silvíu Nótt, fór í ólöglega dreifingu á netinu í gær. Þetta brýtur í
bága við reglur keppninnar. Höfundur í forkeppni Eurovision-
söngvakeppninnar, sem skiljanlega vill ekki láta nafns síns getið,
segir einhvern hafa gert Þorvaldi Bjarna skelfilega skráveifu. Og
talar um skemmtilegan skandal ef þannig megi að orði komast,
því dreifing á lagi áður en það er flutt, sé algerlega ólögleg. Og
brottrekstrarsök.
í gær var búið að dreifa „Til ham-
ingju ísland" - Eurovision-lagi Þor-
valdar Bjarna sem Silvía Nótt syng-
ur og semur við texta - um á netinu.
Er þetta ólöglegt samkvæmt reglum
keppninnar enda ljóst að með
þessu móti fær lagið forskot á önnur
lög. Til stóð að lagið myndi heyrast
fyrst í 3. riðli forkeppninnar í
Eurovision-söngvakeppninni næsta
laugardagskvöld.
Onefndi lagahöfundurinn full-
yrðir að ef þetta hefði gerst með lag
eftir sig myndi hann draga það úr
keppni. Og staðfestir að nokkrir
höfundar séu að íhuga í fullri alvöru
að taka lög sín úr keppninni verði
ekkert aðhafst af hálfu Ríkissjón-
varpsins. Og er þá verið að vísa til
þess að laginu verði vísað úr keppn-
inni.
Niðurstaða fyrirliggjandi í
dag
Ráðamenn Ríkissjónvarpsins sátu
á löngum fundum síðdegis í gær og
fram á kvöld og réðu ráðum sínum:
Hvemig rétt væri að bregðast við. Þar
náðu menn ekki að útkljá málið og
verður fundað áfram í dag. Jónatan
Garðarsson, Eurovision-stjóri Sjón-
varpsins, vildi ekki láta mikið hafa eft-
ir sér um málið en segir það vægast
sagt flókið og leiðinlegt viðureignar.
Niðurstaðan, hvað gert verður, mun
verða fyrirliggjandi í dag.
Málið er sem sagt snúið og rök
bæði með og á móti. Vissulega er hér
brot á reglum en erfitt er að finna
sökudólg. Og hver hagnast á verknað- ■
inum. Þeir sem koma að ákvörðun-
inni um hvað gert verður em þeir Páll
Magnússon sjónvarpsstjóri, Bjami
Guðmundsson framkvæmdastjóri,
Rúnar Gunnarsson, yfir-
maður innlendrar
dagskrárgerðar,
og svo Jónatan
og hans fólk
sem undirbúið
hefiir keppn-
Eurovision-sviðið Þriðja kvöid undankeppninnar fer hér fram á laugardaginn.
ina.
Jónatan Garðarsson
Eftir stiffundahöld var
ákveðið að funda áfram
um málið á morgun.
Þorvaldur Bjarni
Mjög alvarlegt er að
dreifa lagi sem þessu
á netinu og getur
það orðiðtilaðþau
Silvía detti úr keppni.
Gisfi Marteinn
Vonarað Silvía
Nátt geti haldiö
áfram.
Hversu bókstaflega ber að
fylgja reglum?
„Eg vona að hún geti haldið
áfram," segir Gísli Marteinn Bald-
ursson, sérfræðingur um
Eurovision og stjórnandi spurn-
ingakeppninnar sem er á dagskrá
áður en til riðlakeppninnar kemur
á skjánum. Gísli vill ekki láta hafa
meira eftir sér um málið sem er gíf-
urlega viðkvæmt.
Víst er að menn munu horfa til
þess að af átta lögum sem keppa í
undanriðli komast fjögur áfram
auk þess sem tvö þau stigahæstu í
5. sæti, sem hafa hlotið hlutfalls-
lega flest stig hverju sinni, fara
einnig áfram.
Ljóst er að erfitt verður að gefa
fordæmi með því að gera undan-
tekningu á reglunni en menn
spyrja sig nú hversu bókstaflega
beri að taka þessum reglum.
Dreifðist hratt um netið
Höfundur lagsins, Þor-
* valdur Bjarni, var að
vonum mæddur þegar
i DV náði af honum tali í
íf gær. Hann vinnur nú
S fram á nótt við að
undirbúa söngleik sem hann er
með í pípunum. Þegar Þorvaldur
vaknaði í gær var pósthólfið hans
orðið fullt og fólk að segja honum
af þessu. Þegar á daginn leið var
ljóst að lagið var komið út um allt á
netinu.
„Þetta er leiðinlegt en við sjáum
hvernig fer. Þetta hefur gerst svo
hratt."
Þorvaldur Bjarni bendir á að
erfitt sé að eiga við þetta og nefnir
sem dæmi að milljarðabíómyndir,
geymdar í sprengjuheldum hvelf-
ingum rammlega læstar af, séu
komnar á netið fyrir frumsýningu.
Slæmur grikkur
„Það er erfitt að eiga við þetta.
Fjöldi manna kemur að vinnslu
lagsins, hljófæraleikarar, bak-
raddasöngvarar, pródúsentar...
einhver óvandaður hefur komist
yfir lagið og dreift því. Sem er mjög
alvarlegt mál. Og besta leiðin til að
koma í veg fyrir að þetta fái notið
sín. Þetta er demó af laginu," segir
Þorvaldur Bjarni.
Miklum tíma, fé og fyrirhöfn
hefur verið varið í að gera lagið
hæft til flutnings. Og ljóst að þeir
sem dreifðu laginu um netið hafa
gert Þorvaldi, Silvíu Nótt og
þeirra fólki slæman grikk.
Ágústa Eva Erlends-
dóttir leik- og söngkona
- konan á bak við
Silvíu Nótt - vildi í
gær ekki tjá sig um
málið að öðru
leyti en því að
segja þetta
leiðindamál.
jakob@dv.is