Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006 27
Lesendur
Framsóknarmaðurinn segir
XJV Fréttir
Vopnuð nálum í baráttu gegn meinum
„Með nálastungunum er hægt
að vinna á fjölda sjúkdóma," segir
Þórunn Birna sem er nýkomin
heim frá Kaliforníu þar sem hún
stundaði nám í nálastungulækn-
ingum og nuddi. Hún saknaði ís-
lands og fannst nauðsynlegt að
bjóða löndum sínum upp á aðra
möguleika en hefðbundnar lækn-
ingar.
Hún segir að fólk sé í auknum
mæli að leita sér lækninga og bóta í
austurlenskum lækningafræðum
þar sem vitundin er að aukast um
samspil líkama og hugar í lækning-
um.
„Við höfum aðgang að yfir fimm
þúsund ára reynslu Kínverja í
lækningum með nálar. Ég fékk
áhuga á þessum ífæðum eftir að
hafa fengið meina minna bót í
gegnum grasalækningar, en fyrstu
nálastunguna fékk ég hérna heima
vegna hnévandamála sem reyndist
frábærlega," segir Þórunn sem
hafði um árabil stundað íþróttir af
kappi, þar á meðal ftmleika og
dans.
„Það er ótrúlegt hvað nála-
stungur geta hjáipað fólki. Sem
dæmi má nefna að nálastungur
geta verið mjög áhrifaríkar þegar
fólk á við kvilla eins og meltingar-
vandamál, þvagvandamál og fleira.
Ofvirkni og síþreytu er líka hægt að
meðhöndla með góðu móti og eins
reynast nálastungur líka vel gegn
þunglyndi."
Þórunn segir alls konar mein
hrjá landann.
„Það er fyrst og fremst streitan
sem er að gera út af við okkur ís-
lendingana," segir Þórunn. „Dugn-
„Dugnaðurínn og
harkaii sem viö ger-
um svo mikið út á
geta nefnifega reynst
okkur skeinuhætt."
aðurinn og harkan sem við gerum
svo mikið út á geta nefnilega reynst
okkur skeinuhætt. Mér finnst þess
vegna frábært að geta fundið
meinið og unnið á vandanum
undir eins, í stað þess að fólk fari
heim með uppáskrifuð lyf og bíði
lausnar vandamálsins."
biSmnn Birna er dóttir þeirra Guðmundar Lárussonar og Birnu Smith. Hún ut-
SSssfacSœœr
í Kaiiforníu, sem og nuddgráðu í almennu og knwenku nudd. fra sama
skóla Hún útskrifaðist þaðan 2001 og vann fyrst við nalastungur a sjUKra
húsum í Kaliforníu en hefur rekið eigin stofu í Reykjavik undanfarið ar.
Jón Einarsson
segir trúarbrögðin
Maðurinn sem
hélt að Guð væri til
í sumum borgríkjum hins forna
Grikklands var lögbundinn átrún-
aður á tiltekin goð og skylda að
færa þeim fórnir. Ef út af var brugð-
ið varðaði það refsingu. Á þeim bik-
ar heimsku og hjátrúar varð heim-
spekingurinn Sókrates að bergja og
heimspekin er fátækari fyrir vikið.
Útbreiðsla íslams á miðöldum er
samfelld saga ofbeldis og þvingana
og af svokölluðu Jótlandspóstsmáli
má ráða að ofbeldi og ógn er enn
sem fyrr fylgifiskur íslams. Og
kristnir trúboðar eyðilögðu marga
forna menningu með þeim orðum
að um „heiðni" væri að ræða. Stórir
fjársjóðir mannsandans eru þar
með að eilífu glataðir.
Þetta sýnir að fyrsta skrefið í átt
að öruggari heimi er að fólk varpi
frá sér trúarbrögðunum, þessu eitri
sem lamar sjálfstæða
hugsun. Nú eru
aðgengilegar
upplýsingar
sem sýna og
sanna að öll
trúarbrögð
eru mann-
annaverk, að
það er
enginn
„þama
uppi". Við
eigum ekki
að taka því
sem sjálf-
sögðum hlut ef einhver lýsir því yfir
að hann eða hún trúi á yfirsldlvit-
legar vemr, hvort sem þær em látn-
ar heita Guð, Gáttaþefur eða Garð-
skaga-Móri.
Við reynum að lækna fólk sem
er haldið ofskynjunum, heyrir
raddir og sér sýnir. Hví sinnir eng-
inn þeim sem trúa á yfirskilvitlegar
vemr sem ekki eru til?
Kirkja Framsóknar-
maðurinn segir fyrsta
skrefið I átt að öruggari
heimi vera að fólk varpi
frá sér trúarbrögðunum.
Khomeini hefur íslamska byltingu
Á þessum degi árið 1979 sneri
Ayatollah Khomeini aftur til írans
eftir 16 ára útlegð. íranskeisari og
fjölskyida hans höfðu flúið landið
tveimur vikum áður og biðu róttæk-
ir múslimar þess með eftirvæntingu
að byggja upp íslamskt ríki með
Khomeini sem leiðtoga. Þessi dagur
er því talinn upphafsdagur ís-
lömsku byltingarinnar.
Khomeini fæddist við upphaf 20.
aldarinnar. Faðir hans var kennari í
íslömskum fræðum og lét Khomeini
læra Kóraninn utan að. Eftir
klerkanám í Shia-íslam átti hann
miklum vinsældum að fagna og
safnaði hann fjölda fylgismanna.
Árið 1941 var íran hertekið af
bæði Bretum og Rússum. Þeir komu
Mohammad Reza Pahlavi til valda
sem annar nútímakeisari landsins.
Hann tók að miklu leyti upp vest-
ræna hætti, bæði í einkalífi og
stjórnsýslu, þar á meðal áætlanir
um jafnræði kynjanna og minni
áhrif trúarbragða. Khomeini var sá
fyrsti til að mótmæla þeim áætlun-
um og fékk fjölda fólks til liðs við
sig. Hann krafðist afsagnar keisar-
ans en var þess í stað handtekinn og
í dag
er 71 ár liðið siðan
áfengisbannið var
afnumið. Það hafði þá
staðið í ein 20 ár.
rekinn úr landi árið 1963. Hann
settist að í írak, rétt við landamæri
Irans og sendi þaðan upptökur af
prédikunum sínum og ' ræðum.
Þannig náði hann að halda áhan-
gendum sínum við efnið í þau 16 ár
sem útlegð hans stóð yfir.
Mynd tekin 1. febrúar 1979 Khomeini
um borð i Boeing 747-þotu Air France sem
flutti hann heim til írans eftir 16 ára útlegð.
Úr bloggheimum
Speki...
„...Kannski maður
skjóti að einni djúp-
viskunni...Þú stafar
hvorki Ruglaður né
ringlaður án„Glaður“.
Og þú stafar hvorki
Kjáni né Bjáni ánjá". Enn-
fremur er hreint og beint ómögulegt að
stafa Sambandsslit án„Samba.“Og eins og
allir vita, þá er Samba kátur dans :D Svo
mikiöervlst..."
Svavar Knútur Kristinsson - sim-
net.is/muzak
List
„ígær fór ég á listopnun I
listagalleríi. Mér fannst
það ágætt. List getur ver-
ið ágæt, en lika svolltið
óþolandi. Einu sinni átti
ég kærasta sem hét List.
Hann var oft óþolandi. Nema
þegar hann vandaði sig. Þá var hann góð-
ur.“
Margrét Hugrún - maggabest.blog-
spot.com
„Sonurminn Byltinga-
maðurinn fór á Álráð-
stefnu á föstudaginn.
Ekki tókst honum að
fremja nein hryðjuverk
íþað skiptið, þarsem
hann var afvopnaður við
innganginn. Hið skæða vopn,
penninn hans var gerður upptækur og
tókst eigi að endurheimta hann að ráð-
stefnu lokinni. Ekki fmnst honum mikið
koma til báráttuandá kynslóðar sinnar.
„Brauð og ieikar, það er málið", segir hann
og ygglir sig. „Rómverjar vissu hvað þurfti
til að gelda almúgann og þaðgildir enn.
Svo framarlega sem fólk hefur nóg að éta
og fótbolta eða annað afþreyingarefni i
sjónvarpinu, er þviskitsama hvað er að ger-
asti kringum það. “ Stundum fínnst mér
eins og ég heyri sjálfa mig tala igegnum
hann.“
Eva Hauksdóttir - reykjavikur-
drama.blogspot.com
Hvarer uppeldið?
„Var engum öðrum en mér
kennt það I æsku að maður
mætir ekki irin á lesstofu
með fullan poka afpistasiu-
hnetum og bryður þær eins
hátt og hægt er? Já og fyrir utan
hversu sóðalegt möns það er. ..éger að spá
I að mæta næst með páfagaukafóður eins
og Ace Ventura var með inni á skrifstofu Lois
Einhorn sem varlraun RayFinkle.“
Kalla - kalla.kvadratrot.net
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar.
Kjaradómur 09 olurlaun
Bjami Valdimaisson skrifar:
Æðri köstin í þjóðfélaginu fengu
8,5% launahækkun samkvæmt úr-
skurði Kjaradóms. Allur almenn-
ingur fékk 2,5%. Þingheimur er
greinilega búinn að fá nóg af
skapnaði sínum, Kjaradómi, því
sett voru lög sem skipa flottræflun-
um með á bekk alþýðu. Bera svo
mikla ábyrgð? Hvaða? Og Kio
Briggs skellihlær.
Lesendur
Dómarar eru með múður. Lög
láta þeir sig engu skipta? Þetta ætti
að koma öldruðum og öryrkjum til
góða.
Ef ógreidd ofurlaun eru
stjórnarskrárvarin er greiddur líf-
eyrir fyrir það líka. Tryggingastofn-
un hefur verið iðin við að rukka
aftur í tímann lífeyri, þannig að
fórnarlömbin eiga ekki fyrir mat,
hvað þá þorramat! Dómarar hafa
dregið línuna: „Að Tryggingastofn-
un hætti endurrukkun þegar í stað
og endurgreiði með vöxtum það
sem hún hefiir ranglega haft af
fólki," löglegt en siðlaust.
Okkar vesalings ríkisstjórn ætl-
ar ekki að gera það endasleppt.
Múslimar of móðgunargjarnir
Kolbrún bringdi:
Mér finnst alveg
óskiljanlegt hversu
móðgunargjarnir
múslimar virðast vera
vegna myndbirtinga
Jyllandsposten af Mú-
hameð spámanni. Ég
skil ekki af hverju þeir
þurfa að taka svona
nærri sér að birtar séu
skopmyndir af spámanni
þeirra því ég veit ekki bet-
ur en að svipaðar skopmyndir hafi
verið birtar af Jesú Kristi og Drottni
vomm í gegnum tíðina og ekki hefur
verið gert svona mikið veður út af því.
Það jaðrar við heimsólgu vegna nokk-
urra mynda sem engan þurfa að
Brjálaðir út í Dani Kol-
brúnu finnst viðbrögð
múslima við myndum sem
birtust I Jyllandsposten ofýkt.
skaða og hef ég á tilfinningunni að
múslimar séu bara að nota þessar
myndir sem ástæðu til að auka á óvild
á milli hins kristna heims og þeirra.
Er ekki nóg af hörmungum í heimin-
um til þess að þurfa ekki að búa til
ósætti og illindi út af engu?
Þess ber að geta að í grein um
fríhafnarverslun, sem birtist í blað-
inu í gær, urðu þau mistök að ríöfn
Haldið til haga
Eysteins Jónssonar, stjómarmanns
hjá Flugstöð Leifs Eiríkssonar, ög
Sigurðar Jónssonar, ffamkvæmda-
stjóra Samtaka verslunar og
þjónustu, víxluðust með mynda-
texta. Við biðjumst velvirðingar á
þessum mistökum.