Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Side 38
38 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006
Síðast en ekki síst DV
Stærstu villuskilaboð á íslandi
„Við vorum að vinna í skiltinu og
þess vegna gerðist þetta," segir Frosti
Heimisson, rekstrarstjóri Upplýs-
ingasjónvarpsins sem sér um auglýs-
ingaskjáinn við Kringluna.
Nú á dögunum birtist heljarstórt
villuskilaboð á auglýsingaskjánum
sem tölvuunnendur vilja meina að
sé stærsta villuskilaboð á íslandi. Það
hefur fengist staðfest að þetta sé
stærsti tölvuskjár á íslandi og má því
halda fram að lýsingin sé
r T FV rétt.
„Þetta gerðist við uppfærslu á
hugbúnaðinum og er bara mjög eðli-
legt en við þurfum að fara að skján-
um persónulega til þess að slökkva á
því. Við erum búnir að keyra skjáinn
síðan í byrjun desember og við rek-
um hann í góðri samvinnu við þá
sem búa þarna í kring. Það er aðeins
kveikt á skjánum frá sjö á morgnana
til níu á kvöldin," segir Frosti.
Skjárinn er hvorki meira né
minna en 26 fermetrar sem telst góð
stúdíóíbúð í miðbæ Reykjavíkur. Það
fékkst ekki uppgefið hvað auglýs-
ingaplássið kostar en það þykir ljóst
að eigendur skjásins tapi ekki á
honum.
„Við pössum að efni sem fer á
skjáinn stingi ekki í stúfa við um-
hverfið og að sama skapi gætum við
velsæmis, við myndum til dæmis
Skjárinn við Kringluna
Sendi vegfarendum risa-
vaxin og villandi skilaboð.
ekki auglýsa súludansstaði," segir
Frosti.
Spurður um hvaða hugbúnaður
sé á bak við skjáinn segir Frosti:
„Windows."
Hvað veist þú um
Agustu Evu
Erlendsdóttur
1. Hvað heitir persónan
sem hún leikur á Skjá ein-
um?
2. Hvað heitir þátturinn
sem þessi persóna birtist í?
3. í hvaða hljómsveit er
hún?
4. Hvaða hlutverk mun
hún leika í Mýrinni?
5. Hvað er hún gömul?
Svör neðst á síðunni
Hvað segir
mamma?
„Hún hefur ver-
ið að skrifa frá
blautu barns-
beini,“segir
Guðmunda
Ólafsdóttir,
móðirSigur-
bjargar Þrast-
ardótturrit-
höfundar.
„Hún byrjaði
snemma að
skrifa Ijóð,
svona sjö ára.
Hún ólst upp hérna á Akranesi en hefur
búið I Reykjavlk I mörg ár. Ég er rosalega
stoltafhenni og finnst hún vera að gera
góða hluti. Finnst gaman að lesa verkin
hennar. Við erum alltafað hittast enda
ekki langt að fara frá Akranesi til Reykja-
vlkur, göngin bjarga öllu. Frábært hvað
henni gengur vel og að hún hafi fengið
þessi listamannalaun. Ég held að þetta sé
í þriðja skiptið sem hún fær þau en hefur
ekki fengið listamannalaun I heilt ár
áður."
Guðmunda Ólafsdóttir er móðir Sig-
urbjargar Þrastardóttur rithöfundar.
Sigurbjörg er fædd árið 1973 og
uppalin á Akranesi. Fyrsta Ijóðabók-
in hennar, Blálogaland, kom út árið
1999. Hún hefur hlotið ýmsar viður-
kenníngar fyrir verk sín, meðal ann-
ars hjá Stúdentablaðinu og Ríkisút-
varpinu. Sigurbjörg fékk á dögunum
rúmar þrjár milljónir í listamanna-
laun frá íslenska ríkinu.
taka Rússa I bakariiö og sameina þjóö-
ina I sigurvlmu.
1. Hún heitir Silvía Nótt. 2. Hann heitir Sjáumst með
Silvíu Nótt. 3. Hún er í hljómsveitinni Ske. 4. Hún mun
leika Evu Lind, dóttur Erlends lögreglumanns.
5. Hún er 23 ára gömul.
SUS-arar sagDir maka krókian
Fjarstæðukenndan vefiréttir
„Félagagjöld í SUS nema háum
upphæðum árlega og stjórnin hefur
umráð yftr miklum peningum. Stór
hluti þeirra fer í utanlandsferðir,
fatakaup og veitingahúsaferðir
stjórnarmeðlima."
Svo hefst frétt á veffréttaritinu
alvaran.com sem Hrafnkell Daníels-
son á Borgarnesi á og rekur. Og
áfram heldur fréttin: „Þetta er
nokkuð útbreiddur sannleikur
innan SUS og virðist vera samþykkt
athæfi enda þykir mönnum þarna
greinilega nokkuð eðlilegt að fáir
klifri upp á hausinn á hinum og grípi
allt sem þeir geta. Dæmi eru um að
einstakir stjórnarmeðlimir með kort
frá SUS borði á góðum veitinga-
húsum flesta daga vikunnar."
Þegar DV hafði samband við
Borgar Þór Einarsson formann SUS
vísaði hann því sem þarna er sett
fram sem algerri fjarstæðu.
„Gott ef satt væri. Ég segi ekki
annað. Þetta er náttúrlega alveg út í
bláinn. Margt má um okkur segja en
ég held að enginn sé að bjóða sig
fram í SUS til að maka þar krókinn
peningalega séð," segir Borgar Þór
sem veit ekki hvort hann á að hlæja
Hrafnkell Daníelsson Rekurveffréttamiðil
þarsem segirafmiklum spillingarmálum
ungra Sjálfstæðismanna.
eða gráta. Hann bendir á að velta
fjárhagsársins hjá SUS, sem telur tvö
ár, sé um þrjár til fjórar milljónir. Og
þar inni í sé eitt stöðugildi, en fram-
kvæmdastjóri félagsins sé á launum.
„Að menn séu að maka krókinn
persónulega er algerlega út í bláinn.
Ef menn halda að flokkstarfið
sko, fjármunirnir eyðast
flokksstarfi. Þetta er fjar-
stæða."
í frétt Hrafnkels
kemur hins vegar fram
að algengt sé að
stjórnarmeðlimir
skreppi í helgarferðir
til heimsborga; „þar
sem þeir drekka og
borða og búa á fínum
hótelum án þess að
greiða sjálfir krónu. Þetta
er nokkuð þekkt meðal
þeirra sem þekkja til þarna
og endurskoðendur gera engar
athugasemdir við þetta og
eru ársreikningar
alltaf sam-
þykktir
gagn- /
rýnis-
landsfundarfulltrúum SUS."
f fréttinni, sem styðst ekki við
neina nafngreinda heimildarmenn
né að vitnað sé í heimildir,
og telst því varla mark-
tæk, er því haldið
fram að þessi spill-
ingarhneigð trilli
svo upp allan stig-
ann og ráðherrar
telji sjálfsagt að
lifa á annarra
kostnað.
Ekki tókst að
ná tali af Hrafh-
keli í gær.
jakob@dv.is
Borgar Þór Einars-
son Veit varla hvort
hann á að hlæja eða
gráta - svo fjarstæðu-
kennd þykir honum
frétt Hrafnkels.
laust
aðal-
fund-
u m
Fór aldrei ósnyrt í morgunmat
„Að taka þátt í Eurovision er einn af
stóru viðburðunum í mínu lífi," segir
Helga Möller söngkona.
Gamla myndin að þessu sinni er
tuttugu ára gömul og er frá fyrstu
Eurovision-keppninni sem ísland tók þátt
í. Keppnin fór fram f Noregi árið 1986 og
var framlag íslendinga lagið Gleðibank-
inn. Helga Möller, Pálmi Gunnarsson og
Eiríkur Hauksson dönsuðu og sungu sig
eftirminnilega í hjörtu Evrópubúa.
„Það var mikið lagt í þetta á vegum
bæði Sjónvarpsins og norska ríkisins. Við
fórum þarna út og það var farið með okkur
eins og stórstjörnur. Við vorum með plan
og prógramm alla þá daga sem við vorum
úti. Vorum vakin á morgnana, förðunar-
dama klæddi mig, greiddi og málaði svo
ég fór aldrei ósnyrt í morgunmat," segir
Helga.
„Við vöktum mikla athygli enda að taka
þátt í fyrsta skiptið. Einnig þótti tónlistar-
myndbandið við lagið okkar það flottasta
og enn þann dag í dag stendur það fyrir
sínu," segir Helga sem reynir alltaf að
fylgjast með aðalkeppninni.
Gamla myndin
Gleðibankinn Þremenning
arnir Pálmi, Helga og Eiríkur
tóku fyrst allra íslendinga
þátt í Eurovision-keppninni
áriö 7 986 í Noregi.
Krossgátan
Lárétt: 1 pár,4skömm,7
laða,8 greinilegur, 10
amboðs, 12 gímald, 13
bút, 14 hlið, 15 hreyfast,
16 dvöl, 18 sauðskinn,
21 seðlar,22 himna,23
tæp.
Lóðrétt: 1 blóm, 2 dýja-
gróður, 3 döpur,4 skrýtl-
an, 5 sjór, 6 akagi, 9 laun-
um, 11 fæða, 16vitur, 17
Iftil, 19 heiðir, 20 hnd-
legg.
Lausná krossgátu
uue 03'ejæ 61 '?ujs zi 'sja 9t 'jnggg j j 'jdneij 6'sau 9'jeuj s'ue6esdo>|s
V'ujijq6jos £ 'Á|s z 'sgj i :«ajgoq umeu £z 'ue>|s ZZ 'Jegjiu iz 'ejæ6 g j 'tsjA
91 'BQ! S L 'ngjs y t 'qqn>| £ l 'de6 z l 'spo o t 'JA>js 8 'e>j>|0| zé'u?ujs y 'ssjj j :«ajeq
Veðrið