Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Page 39
0V Síðast en ekki síst
Hvað finnst þér um
listamannalaun?
Allir kannast við hugtakið „fæðingarþunglyndi“.
Brátt mun orðið „fæðingarorlofsþunglyndi" öðlast sama
sess í málinu. Þetta er það sem við eigum við að etja, við
heimasettir karlmenn á besta aldri, menn í feðraorlofi.
Allt í einu rankar maður við sér á þriðjudagsmorgni um
ellefuleytið og uppgötvar að maður er að búa um hjóna-
rúmið. Maður er ekki að gera mikið annað en að búa um
hjónarúmið. Og morgunninn hefur farið í tiltekt og
strauj. Þá skyndilega hellist þunglyndið yfir og maður
hengslast út að svefnherbergisglugganum og gónir
magnvana út á hús nágrannans sem maður veit að flaug
til Stokkhólms í morgun til að gera milljarðasamninga.
En hér húkir maður með fölan innisvip og rúmteppi í
hönd, eins og miðaldra geldingur.
Það er ekki auðvelt að gerast húsmóðir. Maður þarf ,
bæði að breyta um kyn og eðli. Það tekur á. Eftir nokkr- I
ar vikur heldur maður að maður sé að ná tökum á 1
þessu þegar þunglyndið þéttist að manni eins og þoka. *
í hvert sinn sem konan hringir heyrir maður iðandi
þjóðlífskvikuna í bakgrunninum hvar ffjálsir menn
stökkva út úr bílum og inn í banka með símtal í hendi,
plana hitting í hádegi, bjórkvöld og bíóferðir á bak við
rödd frúarinnar sem er full af glænýrri karlmennsku, Á
orku og þori. Maður hlustar bljúgur á afrekin, allt Jj
þetta sem hún er að gera, og endar svo símtalið með 8[
því að segja: „Allt í lagi elskan mín. Gangi þér vel." \
Maður er farinn að nota sömu semingar og mömmur
okkar allra notuðu um miðja síðustu öld. Maður er orð-
inn kelling.
Lágpunktur þunglyndis kom laust fyrir helgi þegar ég
tók að mér að klippa út fréttir úr blöðum vikunnar
sem snerust um framboð konu minnar og prófkjör
Samfylkingarinnar. Til bráðabirgða hengdi ég úr- j
klippurnar á ísskápinn með þar til gerðum seglum. ,
Brátt voru þeir hinsvegar á þrotum og áður en ég
vissi af var ég farinn að plana innkaupaferð í bæ-
inn daginn eftir: „Muna: Kaupa ísskápssegla." Það /
versta var þó að ég fann að ég hlakkaði til ferðar-
innar. Líf mitt var orðið svo fábreytilegt og hvers- f
dagslegt að ég var farinn að hlakka til þess að J
kaupa ísskápssegla. Til að geta hengt upp
afrek eiginkonunnar á ísskápinn. Ég
var orðinn meira en kell-
ing. Ég var orðinn að
konunni á bakvið mann-
inn. Konunni sem fórn- I
ar sér fyrir karlinn.
Kannski hefur Bolur- '
inn bara rétt fyrir sér.
Kannski er fæðingarorlof
ekkert fyrir fullfríska karl
menn. Kannski er okkur ekki ______________^
eðlislægt að hanga heima yfir
börnum og bakkelsi. Samkvæmt slembikönnun mun
___ feðraorlofið ekki tekið alvarlega nema í hverf-
"N unum kringum Alþingishúsið. í Bolabyggð-
\ um fussa menn við heimavistinni og líta á
I orlofið sem skemmtilegan kaupauka, jafn-
I vel helsta kostinn við það að eignast börn.
J Kerfið er misnotað eins og íslendingum er
^ einum lagið. Menn halda fullri vinnu en
þiggja launin í svörtu og sækja svo orlofspening
að auki. Eða eins og hraustur maður fyrir austan fjall
__ orðaði þetta á dögunum: „Þetta feðraorlof er bara
fyrir mjúkkana í hundrað og einum."
Ég er víst einn af þeim og held áffarn barátt-
y unniviðfæðingarorlofsþunglyndið;reynieinsog
ég get að vera NÝR KARLMAÐUR. Það gengur
upp og ofan en best þegar maður gleymir aukaverk-
unum og man eftir aðalatriðinu; þegar átta kíló af lífs-
þorsta koma skríðandi, hlæjandi og slefandi á móti
manni. Þá man maður allt í einu til hvers þetta er:
Til refsingar fyrir 5000 ára skilningsleysi erum
\ við karlmenn dæmdir í þriggja mánaða stofu-
jÍfangelsi og gert að afþlána það með lífinu
sjálfu. Og þegar maður fær að sjá kornabarn-
pFWjs - Pftið vakna að morgni og skima með stýruaug-
um út í morgunrökkvann, með svip sem
’Jtt&Jt/minnir helst á heilt mannkyn vakna til lífsins,
ðfþá fattar maður að þetta er einn besti dómur
maður hefur fengið. Halelúja!
Félagsmálapakk
/ var orðim
kclling. Ea \
orðmn aðlco
unni á bak
\ vlomann-
\ »n.“
,Mér finnst þetta lið vera félagsmálapakk. Menn
eiga að standa á sínum eigin verðleikum."
Friðfinnur Kristinsson nemi.
„Lista-
mannalaunin
eiga rétt á sér.
Þeir vinna þarft
starfog list
verður ekki
nógu hátt verð-
lögð."
Þóra Soffía
Guðmunds-
dóttir nemi.
bara ekkert að
pæla í því. En
jújú, mér finnst
það fínt mál að
þeir fái lista-
mannalaun."
Bryndís Björk
Ásmunds-
dóttir nemi.
„Ég þarf
nú sjálfur að
vera á spenan-
um. Mér finnst
offáirlista-
menn fá styrk."
Ragnar Ey-
þórsson kvik-
myndagerða-
maður.
„Mér
finnst það fínt
mál að þeir fái
laun hjá ríkinu.
Listamenn eru
ekki á það háum
launum fyrir."
Margrét Soffía
Einarsdóttir
nemi.
148 listamenn fengu alls 262 milljónir (listamannalaun. Sumir eru ekki sam-
mála því að listamenn eigi að fá fé frá ríkinu til þess að iðka sína list en aðrir
telja það nauðsynlegt og að list sé í raun of lítils metin.
Hallgrímur Helgason
í Borginni ef sú
fWJFW staða kemur upp. í
■ i|3| því felst hins vegar
stór hætta fyrir
Framsókn og Hall-
dór persónulega. Færi
r . \ svo, að Framsókn mynd-
j aði nýjan meirihluta í
/ Reykjavík með Sjálf-
stæðisflokknum er
hækjustimpillinn endanlega
kominn á flokkinn. Halldóri
verður kennt um ef uppalningur
hans tryggir völd Sjálfstæðis-
manna í Reykjavík. Þá hefúr
hann Framsókn undir forystu
hans endanlega kosið sér það
hlutverk í íslenskum stjórnmál-
um að tryggja völd Sjálfstæðis-
flokksins.11
„Framsókn glímir «
[...] við klassískan t ’ ‘ *
vanda smáflokks á ^
niðurleið. Hún er^^£^G
hrjáð af alvarlegum
innanmeinum. Þingmennirnir
eru fullir vantrúar á getu for- /
ystunnar til að vinna sig úr erf- í
iðleikunum, og þeim finnst i
greinilega að það sé kominn
tími á nýja forystu. Þetta hljóm-
ar kaldranalega, en svona er líf-
ið í stjórnmálunum. Lögmálið
segir einfaldlega að við þær að-
stæður sem nú ríkja innan Fram-
sóknar fari uppreisnarmenn
með öxi og sverð á stjá - og þeir
eru komnir á ferð.“
fRÉTttóW OV ■ \
SEFUR ALDREI
Framsókn flokkur í stórhættu
„Framsóknarmenn eru dauð-
þreyttir og uppgefnir á samstarf-
inu við Sjálfstæðisflokkinn í rík-
isstjórn. Hjarta grasrótarinnar,
og sveitarstjórnarmanna um allt
land, slær ekki lengur í takt við
það. Því samstarfi er öðrum
þræði kennt um ófarirnar, og
það er rétt. Sjálfstæðisflokkur-
inn skilur Framsókn alltaf eftir í
erfiðum málum en hirðir af
þeim umhun fyrir góð verk.
Við þessar aðstæður er F
flokkurinn að komast í stór- L jn
hættu, og þarmeð loga eld- I ’
ar um undirstöðuna að
áframhaldandi stjórnmála- -
ferli formannsins sjálfs, Hall-
dórs, í Reykjavík. Það, hvernig
flokkurinn vinnur úr kosningum
í Borginni í vor, skiptir miklu ^
máli fyrir framtíð Fram- /
sóknar og Halldórs sjálfs.“ / ‘
Ungutyrkirnirí rr*
kringum Halldór í
„Kjósendur munu V , k
refsa Framsóknar-
flokknum grimmilega fyrir það.
Það sem kynnu að verða tíma-
bundin völd og áhrif flokksins -
og Björns Inga sérstaklega í
Reykjavík - myndi að öllum lík-
indum leiða til þess að Fram-
sókn þurrkaðist út af þingi í höf-
uðborginni og ferill Halldórs
\ \ Ásgrímssonar yrði á enda.
\ Það myndi gleðja Guðna
I og Siv - og skapa Birni
|| ,/ Inga færi í þarnæstu þing-
kosningum. Það væri því
fróðlegt að vera fluga á vegg
þegar þeir hittast næst félagarn-
ir þrir að spjalla um pólitísku
framtíðina, Björn Ingi, Páll
\ og Ámi Magnússynir. Er
hugsanlegt að það sem
vakir í hugskoti
JH J hinna ungu
Í00Þ' tyrkja í kringum^ p.
Halldór sé að mynda * >
meirihluta með Sjálf- ’•
stæðisflokknum í vor til
að knýja þannig fram Wtf' ■
forystuskipti og rýma y\ j
til fyrir nýrri for- f
Uppalningur Halldórs V '
„Það er auðvelt að
skilja að Fram-
IPk . WBk sóknarflokkurinn
*\ , - og Björn Ingi -
. \\ j staðnæmist við
v. - maL/ þann möguleika að
meirihluta
P7 mynda
með Sjálfstæðisflokknum
Spurning dagsin
Hallgrímur Helgason skrifar um hið nýja orð
„fæðingarorlofsþunglyndi".
Innanmein Framsóknarflokksins
Viðtökum við
fréttaskotum allan
sólarhringinn. Fyrir hvert
fréttaskot sem birtist, eða
er notað í DV, greiðast
3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000.
Fullrarnafnleyndar
er gætt.
Síminn er
Össur Skarphéðinsson ritar á ossur.hexia.net
MIÐVIKUDAGUR I. FEBRÚAR 2006 39