Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2006, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006
Fréttir DV
Byggja byggð
Samningar á milli bygg-
ingafyrirtækisins Eyktar og
Hveragerðisbæjar voru
undirritaðir á bæjarskrif-
stofunum í Hveragerði í
fyrrakvöld. í
samningnum er
stefnt að bygg-
ingu 800 til 900
íbúða hverfis
austan Varmár á
næstu 12 árum
þar sem ríflega 2000 ein-
staklingar munu búa.
Gangi uppbyggingaráform-
in eftir munu þau kalla á
nýjan grunnskóla og 6
deilda leikskóla í Hvera-
gerði. Strax verður hafist
handa við athuganir á
landssvæði þvl sem um
ræðir og í kjölfar þeirra
hefst vinna við deiliskipu-
lag að því er fram kemur á
sunnlenska.is
Hólmanet
Hólmvfldngar eru vel
tengdir þessa dagana en
þeim býðst loksins ADSL-
kerfi en það er Síminn sem
býður upp á það auk að-
gangs að stafrænni sjón-
varpsþjónustu. Nýlega lok-
aði Síminn þjónustumið-
stöð sinni á
Sauðarkróki,
sem hafði
sinnt þjón-
ustu við
Stranda-
menn, og
mun þjón-
ustumiðstöðin á fsafirði
taka við þjónustunni. Þá er
gert ráð fýrir því að samið
verði við verktaka á Hólma-
vík um vettvangsþjónustu á
ströndum.
Gettu betur
eða Meistarinn?
Sverrir Bergmann
sjónvarpsmaður.
„Gettu betur er betri þáttur,
ekki spurning. Mér finnst
Meistarinn einhvern veginn
ekki vera nein keppni i raun-
inni. Þetta eru bara einhverjar
tvær manneskjur sem voða
takmarkaður hópur þekkir.
Þetta nær ekki til mín alla-
vega. Gettu betur er aftur á
móti gamalt form og alveg
gríðarieg stemming. Ég fylgd-
istalveg sérstaklega vel með
Gettu betur á slnum tlma og
finnstþað mjög skemmtilegt."
Hann segir / Hún segir
„Ég er löngu hætt að horfa á
Gettu betur, maður lifði sig inn
i þetta á menntaskóiaárunum.
Ég fylgdist mikið með þessu
þá. En ég er á þvi að það hafi
lengi vantað þátt eins og
Meistarann. Fiann ersvona al-
vöru, vitrænn spurningaþátt-
ur. En ég fagna báðum þátt-
um, mér finnst þeir báðir góðir
en Meistarinn hefursamt
vinninginn hjá mér. Efég væri I
framhaldsskóla myndi ég alis
ekki missa afGettu betur."
i
Sigríður Arnardóttir
sjónvarpskona.
Meðlimir Garðabæjarklíkunnar Tuddarnir mættu í Héraðsdóm Reykjaness í gær
til að svara til saka fyrir fjölda líkamsárása sem Ríkissaksóknari hefur ákært þá
fyrir. Sú alvarlegasta var í október í fyrra. Foringi klíkunnar, Tindur Jónsson, er
ákærður fyrir að hafa þá veist að ungum dreng vopnaður sveðju og látið höggin
dynja á höfði hans og líkama. Tindur er ákærður fyrir tilraun til manndráps og á
von á margra ára fangelsisdómi.
Tuddarnir neituðu
■■■ A ■ / v |/ ■
sok i heraðsdomi
„Þetta er rangt, ég er saklaus," sagði Tindur Jónsson í Héraðs-
ddmi Reykjaness þegar borinn var undir hann fjöldi ákæra, sem
Ríkissaksóknari hefur gefið út á hendur honum og félögum
hans. Tindur er meðal annars ákærður fyrir tilraun til mann-
dráps með því að hafa ítrekað höggvið með sveðju í höfuð og lík-
ama drengs í Garðabæ í fyrra.
Sveðjuárásin í Garðabæ í október
í fyrra vakti óhug margra. Drengur-
inn sem varð fyrir árásinni hlaut
sprungu á höfuðkúpu og blæðingu
við heila.
Kalla þurfti á Vfkingasveitina til
að handtaka Tind Jónsson og tvo fé-
laga hans. Þeir eru saman í klíku í
Garðabæ sem nefnist Tuddamir.
Drengjunum tveimur, Þórði
Kárasyni og Helga Guðmundssyni,
var sleppt skömmu síðar en Tindur
situr hins vegar enn í gæsluvarð-
haldi á Litfa-Hrauni og mun gera
það þar til réttarhöldunum í máli
hans er lokið. Auk þeirra þriggja em
Árni Þór Skúlason, Helgi Mar Finn-
bogason og Þorsteinn Pálsson
ákærðir í málinu sem nær í allt yfir
fjórar líkamsárásir. Tindur er talinn
eiga þátt í þeim öllum en félagar
hans mismikinn þátt í hinum þrem-
Hrottalegar árásir
Auk sveðjuárásarinnar
r Tindur ákærður fyrir að hafa í
Huldu andlit sitt Félagar Tinds eru líka
ákærðir fyrir þátt sinn I nokkrum árásum.
ágúst í fyrra slegið ungan dreng ít-
rekað í höfuðið með gaddakylfu, og í
maí ráðist á um þrítuga konu, barið
hana í höfuðið með
flösku og gengið síðan í skrokk á vin
hennar, kýlt hann og sparkað í höf-
uð hans.
Tindur neitaði sök í öllum meiri
háttar ákæruliðum við þingfesting-
una í gær. Sömu sögu er að segja um
félaga hans. Þeir höfnuðu einnig
skaðabótakröfum sem fórnarlömbin
í málinu lögðu fram.
Skilorðsbrot hjá Tindi
Tindur Jónsson var á síðasta ári
dæmdur í þriggja mánaða óskil
orðsbundið fangelsi fyrir lík-
amsárásir og fíkniefnabrot.
Tindur var aðeins sextán ára
þegar hann framdi brotin.
Hann réðst á sautján ára
dreng á Laugaveginum,
skallaði hann í andlitið og
sló með krepptum hnefa. Þá
réðst hann ásamt félaga
sínum á annan dreng fyrir
utan verslunarkjarnann
Garðatorg í Garðabæ og
sparkaði í andlit hans þar
sem hann lá í sárum sínum.
ur.
Dómurinn var skilorðsbundinn
til tveggja ára. Tindur hefur því rofið
skilorðið verði hann fundinn sekur
um þau brot sem eru til meðferðar
nú. Verði það raunin er ljóst að
margra ára fangelsisvist bíður hans.
Aðalmeðferð fer fram í málinu í
byrjun mars.
andri@dv.is
"nndur Jónsson Ákærð-
ur fyrir tilraun til mann-
dráps en neitarsök.
Tindur hefur því rofíð skilorðið
verði hann fundinn sekur um þau
brot sem eru til meðferðar nú.
Yerði það raunin er Ijóst að margra
ára fangelsisvist bíðurhans.
Verjandi Magnúsar Einarssonar segir Hæstarétt setja ný viðmið með úrskurði sínum
Kristinn Bjarnason
Verjandi Magnúsar
l segir að þyngsti
Idómursemfalliðhafí
I isambærilegu máli
I sé átta ára fangelsi.
Hæstiréttur bætti tveimur árum við dóm morðþngja
Hæstiréttur Islands þyngdi í
gær dóm Héraðsdóms Reykja-
ness yfir Magnúsi Einarssyni
úr níu árum í ellefu.
Magnús sem varð eigin-
konu sinni, Sæunni Páls-
dóttur, að bana á heimili
þeirra í nóvember árið
2004, bar fyrir dómi að
sjúkleg afbrýðissemi hans
hefði fengið hann til
verknaðarins. Hann
bar að skömmu
fyrir morðið
hefði Sæunn
skýrt hon-
Magnús Einars-
son Sagði að orð-
um Sæunnar væri
um að kenna að
hann myrti hana.
um frá samböndum sín-
um við aðra karlmenn.
Enginn annar er til
frásagnar um það
sem á milli Magnús-
ar og Sæunnar fór
síðustu mínúturnar
áður en hún lést. Því
var meðal annars byggt
á þessari frásögn þegar
ákvörðun var tekin um
refsingu Magnúsar.
Héraðsdómur
Reykjaness og
Hæstiréttur
telja að það
andlega
ástand sem
Magnús hafi
komist í við
fféttirnar
um framhjá-
hald Sæunn-
ar hafi átt þátt í því að hann myrti
hana. Með öðrum orðum að Sæunn
hafi komið honum í slíkt ástand
með orðum sínum að hann geti
ekki að fullu borið ábyrgð á því sem
eftir fylgdi.
Kristinn Bjarnason, verjandi
Magnúsar, segir erfitt að meta hvað
búi að baki þessari ákvörðun Hæsta-
réttar en augljóslega sé verið að setja
ný viðmið.
„Þyngsti dómur sem fallið hefur,
þegar dæmt hefur verið eftir þessu
refsilækkunarákvæði, er átta ára
fangelsi," segir Kristinn Bjarnason,
verjandi Magnúsar Einarsson. „Ell-
efu ára fangelsi er því ansi mikið."
Að sögn talsmanns aðstandenda
Sæunnar Pálsdóttur er fjölskyldan
enn í sjokki vegna niðurstöðu
Hæstaréttar og vill því ekki tjá sig
um málið.
andri@dv.is