Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2006, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2006, Blaðsíða 17
PV Sport FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 17 Báðir leikirnir í Höllinni Valsmenn hafa náð samkomulagi við svissneska liðið LC Briihl frá St. Gallen um að báðir leikir liðanna í 8 liða úrslitunum í áskorendakeppni Evrópu fari fram í Laugar- dalshöllinni helgina 10. til 12. mars. Þetta verða fyrstu tveir útileikir LC Brúhl í keppninni því svissneska liðið keypti útileikina gegn króatísku og makedónsku liði í fyrstu tveimur umferð- um keppninnar. Frands kominn til NewYork Steve Francis er kominn til New York Knicks í NBA- deildinni eftir að Orlando Magic skipti á honum og þeim Penny Hardaway og Trevor Ariza. Francis mun því spila við hlið Stephon Marbury hjá Knicks en New York-liðið hefur tapað 17 af síðustu 19 leikjum sínum. Francis lenti oft upp á kant við Brian Hill, þjálfara Or- lando, í vetur en fyrir tveimur árum kom Francis til Orlando frá Houston í skiptum fyrir Tracy McGrady. Francis var með 16,2 stig, 4,8 fráköst og 5,7 stoðsendingar að meðaltali með Orlando í vetur. Tap í loka- leiknum KR-ingar urðu að sætta sig við 0-1 tap fyrir Odd Grenland og þar með áttunda og neðsta sætið á æf- ingamótinu á La Manga á Spáni. Sigurmark norska liðsins kom úr víta- spyrnu á lokamínútu fyrri hálfleiks. Bjarnólfur Lárus- son var fyrirliði KR-liðsins í leiknum en f liðið vantaði marga lykilmenn vegna meiðsla, þar á meðal mið- verðina Gunnlaug Jónsson, Dalibor Pauletic og Tryggva Bjarnason. Ásgeir Aron As- geirsson og Kristinn Jó- hannes Magnússon léku saman í miðri KR-vörninni í leiknum. Fyrir fjórum árum hlutu Norðmenn flest verðlaun á vetrarólympíuleikunum í Salt Lake City í Bandaríkjunum. Væntingar voru miklar í Noregi og var stefnt að því að bæta árangurinn nú. Fyrir fjórum árum unnu Norðmenn þrettán gullverðlaun en nú eru þau ekki nema tvö þegar þrír dagar eru til loka leikanna. Vondur draumur? Ole Einar Björndalen er gjör- samlega örmagna I markinu. Engu líkara en að hann sé sofnaður I snjónum. Nordic Photos/AFP f f f Norsk martroo i T onoo Norðmenn stefndu að því í Tórínó að verða fyrsta þjóðin til að vinna eitt hundrað gullverðlaun á vetrarólympíuleikunum og átti það í raun að vera formsatriði. Á síðustu fjórum leikum hafa Norðmenn unnið meira en tíu gull að meðaltali. En nú þegar leikunum er að ljúka eru hins vegar aðeins tvö gullverðlaun kom- in í hús og komu meira að segja hvorug þeirra í skíðagöngu sem hefur verið þeirra sterkasta grein. NOREGUR Á ÓL: 2002 Gull 13 silfur 5 Brons 7 Sæti 1. 1998 10 10 5 Z 1994 10 11 5 Z 1992 9 6 5 3. 1988 0 3 2 12. 1984 3 2 4 6. 1980 1 3 6 8. 1976 3 3 1 4. 1972 2 5 5 7. 1968 6 6 2 1. 1964 3 6 6 3. 1960 3 3 0 3. 1956 2 1 1 7. 1952 7 3 6 1. 1948 4 3 3 1. 1936 7 5 3 1. 1932 3 4 3 Z 1928 6 4 5 1. 1924X1 4 7 6 1. Samtals 96 90 75 ÓL 2006: Noregur* Gull: 2 Silfun 8 Brons: 8 *Prír keppnisdagar enn eftir. „Ég spái því að við fáum 25 verð- laun bara í skíðagreinunum," sagði Sverre Seeberg, formaður norska skíðasámbandsins, fyrir leikana. Átti hann þar við greinar eins og skíða- göngu, alpagreinar og skíðastökk. Slíkt hefur alls ekki komið upp á ten- inginn þó svo að bæði gull Norð- manna hafi komið í þeim greinum. KjetO Andre Aamodt stóð sannarlega undir væntingum í risasviginu og þá kom einnig norskt gull í skíðastökki sem hefur yfirleitt verið ein slakasta grein Norðmanna á vetrarólympíu- leikum. En að öðru leyti er það nokkurn veginn sama hvar er komið niður. Vonbrigði norsku þjóðarinnar em gíf- urleg. Eftir þrettán gull á síðustu ólympíuleikum em átta silfur- og átta bronsverðlaun lítil sárabót. Það er gullið sem allir muna eftir þegar fram h'ða stundir og það vita Norðmenn vel. Ole Einar Bjömdalen vann fem gullverðlaun í skíðaskotfimi á síðustu ólympíuleikum. Til þessa hefur hon- um mistekist í öllum greinum sem búnar em. Hann fær eitt tækifæri til og það kemur á morgun. Og þannig mætti lengi telja. „Ég spái því að við fáum 25 verðlaun bara í skíða- greinunum Skíðagöngukapparnir hafa valdið sérstaklega miklum vonbrigðum og náði það hámarki í boðgöngu karla þar sem norskur sigur var talinn nærri óumflýjanlegur. En í stað þess lauk norska sveitin keppni í fimmta sæti. „Ég hef varið hálfri ævi minni í kringum skíðagönguíþróttina og hef gengið í gegnum ýmislegt - hæðir og lægðir," sagði einn þjálfari norska Iiðsins, Krister Sörgárd. „En ég hef aldrei orðið fyrir jafn miklum von- brigðum og í dag. Við áttum ekki að geta lent í fimmta sæti. Þessi ffammi- staða var hins vegar bara einum of slæm.“ Árið 1988 unnu Norðmenn ekkert gull á vetrarólympíuleikunum og er það í eina skiptið sem það hefur gerst til þessa. Það var lika í eina skiptið sem Norðmenn komust ekki meðal tíu efstu þjóða á medalíutöflunni og þó svo að það gerist ef til vill ekki aft- ur nú eru vonbrigðin vissulega til staðar. En það góða í þessu öllu saman er að landinn sér sig nú knúinn til að hlúa að framtíðarólympíuförum Norðmanna og hefur sala skíða í Nor- egi ekki verið meiri á síðustu vikum síðan ólympíuleikamir voru haldnir í Lillehammer í Noregi árið 1994. Ef Norðmenn ætla að ná í 100. gullið sitt í Tórínó verður allt að ganga upp á síðustu dögum leikanna. En það myndi ef til vill gilda einu og 100. gullið yrði ef til vill súr sárabót fyrir þátttöku Norðmanna á ólympíuleik- unum í Tórínó sem hefur verið martröð líkust. Heiðar bestur íjanúar Heiðar Helguson var kjörinn besti leikmaður Fulham í janúarmánuði af gestum á heimasíðu enska úrvalsdeildarliðsins. Heiðar hafði betur eftir harða keppni við Bandaríkja- manninn Brian McBride sem spilar eins og kunnugt er við hlið Heiðars í sókn Fulham. Heiðar skoraði reyndar aðeins eitt mark í janúar en vann sér sæti í byrjunarliðinu og hefur síð- an raðað inn mörkum í síð- ustu leikjum liðsins. Bandaríski skíðakappinn Bode Miller Sneri ökklann í körfubolta Sagan endalausa af Bode Miller heldur áfram. Það nýjasta er að hann sneri sig á ökkla er hann var að spila körfúbolta með félögum sínum á miðvikudaginn. Aðalþjálfari bandaríska skíðalandsliðsins stað- festi þó í gær að Miller myndi engu að síður keppa í sviginu, lokakeppni alpagreinanna, á morgun. Miller hefur hingað til keppt í fjórum greinum og ekki tekist að vinna til verðlauna í neinni þeirra. „Ég gæti þess vegna verið kominn með fjögur gull um hálsinn," sagði Miller í ný- legu viðtali. Hvort hann teljist sigurstrangleg- ur á morgun er erfitt að dæma um en væntingar til hans hafa farið síminnkanndi með hverri greininni sem hann keppir í á vetrarólympíu- leikunum. Allir íslensku strákarnir keppa í Bode Miller Sneri ökklann I körfubolta en keppir á morgun engu að siður. sviginu á morgun en eina stúlkan, Dagný Linda Kristjánsdóttir, keppir í stórsvigi í dag. Dagný hefur náð frá- bærum árangri í hraðagreinunum, bruni og risasvigi og yrði álíkur ár- angur í dag ótrúlegur sigur fyrir hana. Eftil vill er ekki raunhæft að fara fram á það þar sem stórsvigið reynir meira á tækni en hraða. eirikurst@dv.is NJOTTU LIFSINS með HFILBRIGÐUM LIFSSTIL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.