Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2006, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006
Menning DV
Umsjón: Þórunn Hrefna Sigurjonsdottir, hrefna@dv.is
I Forstjóri Samskipa, Asbjörn I
j Gíslason og listamaðurinn,
jFinnur Arnar (t.v.).
Nýstárlegt
listaverk
UstaverkiO Afangastaður eftir Finn
r Arnar var afhjúpað við hátiðlega at-
höfn I anddyri nýja Samskipahússins I
gær en það var unnið sérstaklega fyr-
ir félagið með þá staðsetningu i huga.
Ustaverkiö er nokkuð nýstárlegt þvi
það samanstendur af Ijósgjafa undir
blárri glerplötu sem á birtlst orðið
„áfangastaöur" í hvert sinn sem skip
á vegum Samskipa nærhöfn, hvort
sem er hér heima eða erlendis.
Að sögn erhugmynd listamannsins
með verkinu að gera bæði starfsfólk
og gesti Samskipa meðvitaðri um um-
fang félagsins og tilað hugsa um sig
og Samskip i stærra samhengi. Megi
segja að þannig öðlist áhorfandinn
líka hlutdeild iþvi sem er að gerast
þegar orðið áfangastaður kemur I Ijós
á glerplötunni, lifir inokkrar mlnútur
og dofnar svo aftur. Jafnframt viti
nærstaddir að einhvers staðar i heim-
'*■ inum erskip á vegum Samskipa kom-
ið heilt I höfn.
Kjarni listaverksins, eða rót þess, er
elns og fyrr segir staðsett i anddyri
Samskipahússins en tækniiega getur
iistaverkið áttsérelns marga
„skugga", eða útstöðvar, eins og
henta þykir. Þegar hefur t.d. verið
komið fyrir skugga Imatsal starfsfólks
I Samskipahúslnu og Asbjörn Gisla-
son, forstjóri Samskipa, sagði við af-
hjúpun verksins að stefnt værl að þvl
að allar skrifstofur Samskipa yrðu
tengdar verklnu þegar fram I sækir.
Söngur og dans
íSnorrabúð
Það verður opið hús i Söngskólanum i
Reykjavlk á morgun, sannköiiuð upp-
lyfting i skammdeginu, enda I samstarfí
við Vetrarhátið í Reykjavik. I tónleikasal
skólans, Snorrabúð, verða veitingar,
fjöldasöngur, vikivakadansar og tón-
teikar burtfararnema.
Snorrabúð veröur opln frá kl. 12og
hálftima siðar hefjast fyrstu einsöngs-
tónleikar dagsins; Melstarar Mozart og
Páll. Þar syngur Guðbjörg Björnsdóttir
sópran, Exsultate, jubilate eftir Mozart
og Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sópran
Ljóðaljóð Páis Isólfssonar, en Hólmfriður
Sigurðardóttir leikur meðá píanóið.
J Kl.13.15 gefst tónleikagestum tæki-
færi tilþátttöku, bæði i fjöldasöng og að
stíga vikivakadansa. Asgeir Páll Ágústs-
son verður forsöngvari og Sibylle Köll
kennir og leiöir vikivakann.
Aðrir tónleikar dagsins eru m.a. Af
hamraborgum og huldufólki, þarsem
Helga Björk Arnardóttir sópran og
Magnús Guðmundsson tenór syngja is-
lenska og þýska Ijóðasöngva, Barna-
t
söngvar og næturljóð, en þá syngja
sópransöngkonurnar Auðrún Aðal-
steinsdóttir og Rannveig Björg Þórhalls-
dóttir Ijóðasöngva. Fjórðu og siðustu
tónleikar dagsins eru Rómantik og vals-
armeð Brahms, enþarmáhlýðaá
sópransöngkonurnar Guðrúnu Árnýju
Guðmundsdóttur, Kristinu Þóru Haralds-
dóttur og Þórunni Völu Valdimarsdóttur,
ásamt Iwonu Ösp Jagla fíytja Ijóða-
söngva Brahms, stök Ijóð og Astarljóða-
valsa, útsetta fyrir þrjár kvenraddir. I
lokin gefst svo kostur á fjölda-
söng, dansi og veitingum, svo
sem áhugi og kraftar endast.
SöngskóUnn í Reykjavik og
Vetrarhátið i Reykjavik bjóða
alla velkomna iskólann að
Snorrabraut 54, en að-
gangurer ókeypis.
Asgeir Páll Agústsson Einn þeirra
Songskólanema sem sér um að létta
fólki lundina í skammdeginu.
ém
nHflnBSuHnHi
Didy og Rui
Það er mikið um dýrðir hjá ís-
lenska dansflokknum þessa dag-
ana. í kvöld verða frumsýnd tvö
verk eftir fræga og virta danshöf-
unda, þau Didy Veldman og Rui
Horta. Verk Didy Veldman heitir
Súrt og sætt og fjallar að sögn um
kynjahlutverk og þær reglur sem
við förum meðvitað eða ómeðvit-
að eftir í samskiptum hvert við
annað. Hún lætur síðan sam-
kvæmisdansa endurspegla þenn-
an raunveruleika, en í samkvæmis-
dönsum eru mjög stífar reglur um
hvaö konur mega og hvað karlar
mega. Dansverk Rui Horta heitir
Gleðilegt ár og í því veltir höfund-
urinn fyrir sér innri og ytri átökum
okkar mannanna. Við stöndum í
sífelfdri baráttu um' yfirráðasvæði
og Horta varpar fram þeirri spurn-
ingu hvort við kunnum kannski
ekki að nálgast hvert annað í nú-
tímasamfélagi.
í þann mund sem fslendingar
voru að gíra sig upp í Eurovision
hasar var fullur salur af fólki í þeim
gamla og virta skemmtisal, London
Palladium, rétt sunnan við Oxford-
stræti. Tilefnið var önnur forsýning
á nýjum söngleik með Frank
Sinatra í aðalhlutverki. En hann er
dauður fyrir átta árum, hugsar les-
andinn.
Hálfur milljarður
Sýningin ætlar sér bókstaflega
að vekja karlinn til lífsins. Enski
leikstjórinn David Leveaux er að-
dáandi þess bláeygða. Hann hef-
ur sett saman sýningu fyrir rúm-
ar fimm milljónir punda - litlar
552 millur íslenskar - með mikl-
um sýningarbúnaði, 20 manna
danshópi og 24 manna big
bandi, og síðast en ekki síst 24
tölvum.
Leveaux er enginn veifiskati.
Hann hefur tekist á við klassík, óp-
eru og leikverk manna á borð við
Pinter. Hann er því öllu vanur.
Gamlarfilmur
Upphaf þessa var tilraun sem
Sinatra stóð fyrir þegar hann var
með sjónvarpsþátt sinn á ABC 1957
til 1958. Þá lét hann kvikmynda
sérstaklega stórt safn laga við und-
irleik lítillar hljómsveitar með
sterkri og skýrri hljóðrás, allt í lit,
hann að syngja beint í auga vélar-
innar. Það átti því að vera auðvelt
að nota þetta stóra safn sem grunn
að sýningu með lifandi undirleik.
Stórir skermar
Þetta hafði verið reynt áður á
minningartónleikum sem haldn-
ir voru 2003. Þar var sögumaður
og fjöldi gesta var talandi í mynd.
Leveaux var þá að setja söng-
leikinn Nine á svið í New York og
var ekki sáttur við árangurinn.
Hann vildi láta Sinatra sjálfan rekja
slóðina fimmtíu ár aftur í tímann.
Hann skyldi einn tala, einn syngja í
lifandi myndum. Hann er ekki
dauður.
Og stóra sviðið í London PaUa-
dium sem hefur um langa hríð ver-
ið söngleikjahús er nú fullt af stór-
um myndflötum, níu reyndar, og
sá stærsti er fjörutíu feta hár og 25
feta breiður - yfir 12 metrar á hæð
og rúmir sjö á breidd.
Gömul hugsun í nýjum
tækjum
Milli skermanna fer mynd
Sinatra og þar grípur Leveaux til
tækni sem Svoboda hinn tékk-
neski þróaði í leikhúsum Prag og
víðar frá lokum stríðsins. Nú nýt-
ur hún tölvunnar og sýningar-
véla sem senda frá sér fjórar
myndir á sekúndu - og veit ná-
kvæmlega hvar skermurinn er í
fjarlægð.
Það er tónlistin sem stýrir öllu.
Leveaux segir leikhúsið og marg-
miðlun nálgast hratt, en stóru
stökkin á því sviði verða gjarna í
sýningum sem búa við fjármagn á
þessum skala.
Maður í spottljósi
Þær Sinatra-dætur standa heils-
hugar að baki tiltækinu. Þeirra hag-
ur er jú að plötur Franks haldi
áfram að seljast.
Leveaux segist hafa heyrt lýs-
ingar á tónleikum Sinatra í Palla-
dium. Þá kom míkrófónn á standi
upp úr sviðsgólfinu í spottljósi og
inn í ljósið steig þessi grannvaxni
einstaki söngvari. Þannig byrjar
sýningin núna og húsið fyllir rödd-
in gullna: Come fly with me.
Áhugasamir Lundúnafarar eiga
þess sem sagt kost að sjá Frank
Sinatra á sviði - næstum lifandi.
Miðasala er á vefnum london-
westendtheatretickets.com.
• pbb@dv.is
Horaður strákur frá Hoboken í New
York leggur undir sig Ameríku.
iSýífS
A æfingu Dansflokksins Heimsfrægirdans
hofundar hafa samið verksem bæðifjalla um
mannleg samskipti. DV-mynd-EÓI
Jónas lætur
gamminn geisa -
f þættinum Afsprengi á Rás 1, sem þær Berglind M
María Tómasdóttir og Lana Kolbrún Eddudóttir PRV
hafa umsjón með, er leikin íslensk tónlist og rætt
við íslensk tónskáld, tónlistarmenn og aðra sem ~'W0
tengjast íslensku tónlistarlffi. Þátturinn er á dagskrá á
sunnudagskvöldum kl. 19. Einnig er hægt að hlusta á
hann í hálfan mánuð frá útsendingu á ruv.is.
Á sunnudagskvöldið kemur lætur Jónas Sen
gamminn geisa um störf tónlistargagnrýn-
andans og leikin verk sem hafa hrifið Jónas:
Serena eftir Leif Þórarinsson og Kalais eftir
Þorkel Sigurbjörnsson.
Jónas Sen Planóleikari,
tónlistargagnrýnandi og
þáttastjórnandi.
Söngverk með söngvaranum vinsæla í aðalhlutverki frumsýnt í London
Sinatra a London