Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2006, Qupperneq 25
DV Menning
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 25
f.
’
Snæbjörn Arngrímsson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, er einhver
mesti dugnaðarforkur íslensks bókmenntaheims. Bækurnar koma frá Bjarti
næstum eins og á flæðilínu og Perlumarkaðurinn verður opnaður um helgina.
En Snæbjörn þarf að taka sér frí eins og aðrir.
Forkurinn á
fæðingarorlof
„Við fórum að hugsa um það
hvernig við gætum gert bóka-
markaðinn í Perlunni enn
skemmtilegri og datt þá í hug að
bjóða upp á enn nýrri bækur en
venjulega," segir Snæbjörn Arn-
grímsson, formaður Félags ís-
lenskra bókaútgefenda, í samtali
við blaðamann menningarsíðu.
Markaðurinn hefst um helgina,
en það hefur hingað til verið
regla að bækur sem þar eru til
sölu eru ekki yngri en eins til
tveggja ára. Nú má hins vegar
finna á bókamarkaðnum þó
nokkrar bækur frá því á síðustu
jólavertíð. Snæbjörn segir að
þetta hafi einfaldlega verið krafa
samtímans og því um að gera
fyrir bókaútgefendur að bregð-
ast við henni. „Hví skyldi þessi
bókamarkaður vera lakari en
aðrir?" spyr formaðurinn og vel
er hægt að taka undir þau orð.
Innkaup fyrir allt árið
Endurnýjun hefur átt sér stað í
bókalagemum, því ekki einungis
völdu forlögin nýjar bækur af út-
gáfulista sínum, heldur var líka
tekið til í því sem ekki hefur hlot-
ið náð fyrir augum gesta í gegn:
um tíðina. „Jú, það höfðu sumir
titlamir verið á markaðnum í
fjörutíu ár en aðeins höfðu selst
eitt, tvö eintök á ári,“ segir Snæ-
björn kíminn. „Við skámm niður
íþeim flokki."
Hiklaust segist Snæbjörn geta
mælt með Perlumarkaðnum
sem ijölskylduskemmtun og
segist vita um marga sem þar
gera bókainnkaup fyrir allt árið.
„Það er hentugt að kaupa
bókagjafir fyrir öll barnaafmæli í
fjölskyldunni og spara sér
þannig heilmikinn pening.
Úrvalið er líka glæsilegra en
nokkru sinni fyrr, en um fimmt-
án þúsund titlar verða í boði."
Bókamarkaðurinn hefst á
morgun, en hann stendur ein-
ungis í tíu daga. Því geta bóka-
ormar ekki beðið of lengi með
að koma sér á staðinn.
Hasar á Bjarti
Snæbjöm er ekki maður ein-
hamur. Eins og allir vita er hann
dugnaðarforkurinn sem stendur
á bakvið bókaútgáfuna Bjart,
sem meðal annars gefur út
Harry Potter á íslensku og er líka
útgefandi verðlaunahöfundar-
ins Jóns Kalmans Stefánssonar
og krónprins íslensku glæpasög-
unnar Jóns Halls Stefánssonar.
Snæbjörn þýðir bækur og hann-
ar útlit þeirra, ýmist undir eigin
nafni eða dulnefninu Ásta S.
Guðbjartsdóttir og hann hefur
heldur betur fært út kvlamar í
bókaútgáfu. Bækur Bjarts koma
nú út bæði í Danmörku og Nor-
egi og lesendahópurinn hefur
sennilega aldrei verið jafn stór. Á
næstu dögum kemur svo út
nýjasta bókin í Neon-klúbbi
Bjarts, en það er Vitaskipið við
Black Water, eftir hinn írska
Colim Toibin, sem Helgi Gríms-
son þýddi.
Það er ekki skrítið þó að for-
leggjarinn Snæbjörn þurfi á fríi
frá Bjarti að halda, en hann er
nú á leið í tveggja mánaða orlof,
sem hann ætlar að nota til þess
að sinna ungu barni sínu.
Snæbjörn Arngrímsson, formaður
Félags íslenskra bókaútgefenda.
Hann mælirhiklaustmeð bókamark-
aðnum í Perlunnisem fjölskyldu- ■
skemmtun. DV-mynd: Pjetur.
8IS1SSS
Þorvaldur Thoroddsen
Þriðja bindi Landafræðissögu hans
er komið út hjá Ormstunqu.
Myndskreytt
Landafræðissaga
Landfræðissaga fslands er vís-
inda- og rannsóknasaga íslands
frá örófi alda til loka 19. aldar auk
þess að íjalla um ýmsa aðra þætti
íslenskrar menningarsögu. Ný,
myndskreytt útgáfa þriðja bindis,-^
er nýlega komin út hjá Orms-
tungu, en sem kunnugt er, þá er
höfundur Landafræðissögunnar
Þorvaidur Thoroddsen.
í þessu bindi greinir frá seinni
hluta 18. aldar, allt fram undir
1850. Þorvaldur fjallar fyrst um
framfarahugmyndir íslendinga og
almennt um stöðu vísindanna á
Vesturlöndum í kjölfar frönsku
byltingarinnar. Svo vfkur sögunni
að Eggerti Ólafssyni og Bjarna
Pálssyni og er sagt frá ævi þeirra
og störfum. ítarlega er líka sagt frá
Sveini Pálssyni lækni og rann-
sóknum hans, löngu áður en frá-
sagnir hans og hugmyndir birtust
áprenti.
Þorvaldur rekur aðdraganda og'
framkvæmd strandmælinga Dana
á fslandi, bæði hinna fyrri og
seinni. Þríhyrningamælingarnar
mörkuðu þáttaskil í könnun
landsins og vom þrekvirki sem
nútímamenn eiga erfitt með að
ímynda sér. Hér hefur Þorvaldur
reist mönnum eins og Lovenorn
aðmíráli og mælingamönnunum
Ohlsen, Frisak og Scheel minnis-
varða.
Rækilega er fjallað um Björn
Gunnlaugsson „spekinginn með
barnshjartað" sem mældi fyrstur ^
manna allar byggðir landsins og'
hluta hálendisins svo að unnt var
að gefa út „Uppdrátt íslands" -
fyrsta sæmilega kort af landinu
öllu. Af þeim fjölda útlendinga,
sem við sögu koma, má nefna Sir
Joseph Banks, Sir John Stanley, Sir
William Jackson Hooker, Ebenez-
er Henderson og Paul Gaimard.
Upphaflega kom Landafræðis-
sagan út hjá Hinu íslenska bók-
menntafélagi á árunum
1892-1904.
tPSSIií
Galleri Fold ■ RauSarárstíg og Kringlunni
Dögun
25.2-12.3
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir
sýnir tréristur í Baksalnum.
Velkomin á opnunina
á iaugárdaginn kl. 15.00
RauSarársfíg 14, sími 5510400 • Kringlui
Kristín Jónsdóttir
Jón Stefánsson
UppboÖ
Næsta uppboð veröur haldiö sunnudagskvöldió 5. mars.
Tekið er á móti góðum verkum á uppboðið til 27. febrúar.
ni, sími 568 0400 • www.myndlist.is