Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2006, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2006, Qupperneq 32
JT J 13 L L LJUj\ u ii Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar ^iafnleyndar er gætt. Q Z) (J U (J SKAFTAHLÍÐ24,105REYKJAVÍK [STOFNAÐ 1910] SÍMI550S000 5 690710 TlTll"? 'Ba^alÉr S Russland TímaMt að safnamot* „Já, Baggalútur hefur fengið boð um að leika á tvennum stór- tónleikum í -'“■'‘Pétursborg — snemma í aprfl. Sem er náttúrlega æsispennandi. Og emm að bræða þetta með okkur," segir Guðmundur Pálsson foringi Baggalútsmanna. Svo virðist sem heimsfrægðin blasi nú við Baggalútsmönnum sem hafa verið á hraðri siglingu: fslensku tónlistarverðlaunin fyrir lagið „Pabbi þarf að vinna" og glæsilegur sigur í Eurovision-spurningakeppni Gísla Marteins. Fátt stendur í vegi. Guðmundur upplýsir að ónefnd- ur rússneskur tóníeikahaldari hafi komist yfir diskinn „Pabbi þarf að vinna" og orðið svona hrifinn. En til ->að Baggalútar leggi land undir fót þarf eitt og annað að ganga upp. „Hvort menn komast frá. Auðvitað viljum við gera þetta með glans ef við gerum þetta. Þá þarf að fara að safna yfirvaraskeggi strax," segir Guð- mundur og telur það hið fyrsta og mikilvægasta sem huga verði að. Sjái menn Baggalút bregða fyrir með mottu, þá hefur verið tekin ákvörðun. Baggalútur tengist Rússlandi þeim böndum að banjóleikarinn, sem beinlínis fer hamfömm á frá- bærum köntrídisk þeirra, er einmitt rússneskur. Ilja Toshinsky. En er ‘ 3*reyndar búsettur í Nashville. Bagga- lútar fundu hann á netinu. Gúggl- uðu: „crasy banjo" og Ilja kom upp. Var ráðinn á staðnum. Honum vom sendir hljóðfælar og svo húrraði hann inn banjóleik. Baggalútar hafa aldrei manninn augum litið en telja sig þó tengda Rússlandi á þennan hátt. „Rússland er ofarlega á lista yfir þau lönd sem við höfum áhuga á að sækja heim. Hins vegar veit ég ekki hvort Ilja er til í að yfirgefa Bandarík- in og koma með okkur. Nógu illa gekk að fá hann til að spila á útgáfu- ’• *^tónleikunum.“ Baggalútar verða með tónleika á Græna hattinum á Akureyri í kvöld. Með ýmsa snillinga innanborðs á borð við Magnús Einarsson, Guð- mund Pétursson og Sigtrygg Baldurs- son á trommur. „Þegar við emm allir emm við svona 12. En verðum tíu í kvöld," segir Guðmundur sem nú strýkur efri vör sína og velt- ir fýrir sér 1D skeggvexti Banjó og baggalútur 0g RÚSS- TengslviðRússland. Syngja þeir um Sússa fyrir Rússa? • Gestir í Snælandsvídeói við Laugaveg urðu fyrir óvæntri ánægju þegar sjálfur strákurinn Pétur Jóhann Sigfússon var skyndilega mættur þar inn á mitt gólf. Mörgum þótti Pétur gráðugur enda var hann með mjólk- urhristing í annarri og ís í brauðformi í hinni, einhleypur maðurinn. En þegar nánar var að gáð var ís- inn fyrir unga og dularfulla konu sem beið eftir Pétri í bíi fyrir utan sjoppuna... • Á framboðsfundi Samfylk- ingarinnar á NASA 8. febrúar talaði Dagur B. Eggertsson af mikilli sannfæringu og stillti sér upp sem andstæðingi Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar. „Mig klæjar í finguma að takast á við karlinn," sagði hann. Eitt- hvað virðist fingurkláði Dags hafa dvínað eftir próf- kjörið því þegar lóðaklúðrið fúlfars- árdal stóð sem hæst gætti hinn ný- kjömi leiðtogi Samfylkingarinnar og formaður skipulagsráðs þess að tengjast málinu sem minnst. Var honum meðal annars boðið að mæta Vilhjálmi, sem hann hafði hlakkað svo mikið að takast á við, í Kastljósinu á mánudaginn til að ræða það mál en hafnaði. Sendi hann gamla reynsluboltann Alfreð Þorsteinsson í sinn stað... www.ljosin.is Vbrwnp að of (jðru'M' fró' Spówf Ljósin í bænum ^ SUÐURVERI Opið: Virka daga kl.10.00 til 18.00, Laugardaga kl.11.00 til 16.00 Stigahlíð 45 105 Reykjavík Sími 553 7637

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.