Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2006, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2006, Qupperneq 2
2 MANUDAGUR 10. APRlL 2006 Fyrst og fremst DV Útgáfufélag: 365 - prentmiðlar Ritstjórar: Björgvin Guðmundsson Páll Baldvin Baldvinsson Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 Fréttaskot: 550 5090 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is Auglýsingar: auglysingar@dv.is. Umbrot: 365 - prentmiðlar. Prentvinnsla: Isafoldarprentsmiðja. Drelfing: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og úr gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Karen Kjartansdóttir heima og að heiman i sem vonaði heitt og innilega að barnið þeirra yrði heilbrigt. Svona rétt eins og allir foreldrar gera. Þau eignuðust fallegt, hraust barn með ríkt Imyndunarafl og ríka hreyfiþörf. Draumabarn allra. Kerfið virðist þó ekki á sama máli og hefur blessað barnið nú fengið á sig stimpil sem sýnir með einhverjum óþjálum stofnana- orðum að það passar ekki f normið. Foreldrarnir láta sér þó fátt um finnast og skáluðu í kaffi fyrir greiningunni sem þeirtöldu sönnun fyrir því sem þá grunaði allan tímann. Barnið þeirra er einstakt og efnilegt og það er ekkert til að hafa áhyggjur af þótt kerfið haldi annað. í>égar Jg var í háskólanámi starfaði ég við umönnunarstörf. Það var mér mikilvæg reynsla að kynnast fötluðum einstakl- ingumog ég veit að mikið og gott starf hefur verið unnið í samfélaginu frá því ég var barn. Þá virtist öllum sama þótt heyrnarskert og þroskaheft börn væru lögð í einelti. Seinna lærðist fólki að meta þessa einstaklinga að verðleikum og skildist um leið að í samfélaginu felast verðmæti í fjölbreytni. Undanfarin ár hefur mér reyndar fundist unnið of mikið að þvi að„normalísera" fólk sem verður aldrei eins og fjöldinn. Eigum við að fela einkenni einstaklinga með einhverjum yfirbreiðslum eða reyna aö meta hvern og einn eins og hann er? Mali»áiiflSL« gera alla eins og það er afskaplega erfitt að berjast við fólk sem hefur sjálfa góð- mennskuna að vopni. Nú er unnið hörðum höndum að því að planta þeirri skoðun f fólk að skólabúning- ar séu afskaplega góð hugmynd. Þá dragi úr líkum á einelti þar sem þá verði allireins klæddir. Þeim, sem eru á móti þessari slæmu hugmynd, fallast hendur við að koma með rök gegn henni, hún er einfaldlega svo út í hött. Lifandi verur eru svo miklu margbrotn- ari en svo að föt geti gert þær eins og komið í veg fyrir mismunun. Mér er svo sem fjandans sama þótt einhverjir búningar verði teknir upp en ég veit að þeir eiga ekki að hafa nein áhrif. *o fU E aj c o Leiðari V' Þessum spurningum verður lögreglan að svara. Stjórnvöldum ber að tryggja öryggi þessara lcvenna ogað þeim sé ekki haldið hér íánauð. Björgvin Guðmundsson Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn í Reykjavík rnRÉGt-AN Löggæsla og fjölmiðlar Flestir eru sammála um að stjórnvöld- um beri að tryggja öryggi borgaranna. Skiptir þá litlu máli hvar í flokki menn standa. Við gerum þá kröfu að geta gengið örugg og óáreitt um stræti og torg allan sólarhringinn. Og að heimilið sé algjör griðastaður. Þetta er eðlileg krafa. Ottinn og óöryggið á ekld að vera hluti af okkar daglega lífi. Nú eru fréttir af ofbeldi á íslandi áber- andi í mörgum fjöfrniðlum. Það þýðir ekki lengur að loka augunum fyrir þeirri þróun sem hefur ágerst síðustu ár. Ofbeldið er tíð- ara og hrottalegra. DV hefur ítrekað greint lesendum sínum frá þessum staðreyndum eftir að blaðið var endurreist. Og gert það eins heiðarlega og hægt er. Umfjöllunin hefur ekki einskorð- ast við viðtöl við sérfræðinga, sem fjalla um þessi mál og rannsaka. Ofbeldið snýst ekki bara um tölur, línurit og töflur. Ofbeldið snýst um fóikið sem verður fyrir því - oft með hörmulegum afleiðingum. Slík umfjöllun er ekki öllum að skapi. DV hefur verið gagnrýnt fýrir að ganga of langt. í sumum tilvikum verða blaðamenn á ritstjórn DV jafnvel fýrir alvarlegum hótunum um ofbeldi. Hrottarnir vilja ekki að um þá sé fjallað á síðum blaðsins. Slíkar hótanir hafa ekki áhrif á ritstjórn- arstefnu blaðsins. Ef raunveruleikinn er sá að fóik er barið til óbóta á götu úti eða jafn- vel ráðist inn á heimili þess, þá verður um það fjallað í DV. Lögreglumenn á íslandi vinna gríðarlega gott starf, oft við erfiðar aðstæður. Árangur þeirra við að upplýsa mál staðfestir það. Vonandi bera stjórnmálamenn, sem alltof oft sóa peningum skattgreiðenda í algjöran óþarfa, gæfu til að efla lögjgæslu sé þess þörf. A móti kemur að lögregl- unni ber líka skylda til að upp- lýsa fjölmiðla og almenning inn sitt starf. Og ekki bara þegar yflr- mönnum lögreglunnar hentar. DV upplýsti á föstudaginn að brasilískum konum hefði verið komið fýrir í hús- næði í Ármúla þar sem þær seldu blíðu sína. Hörður Jóhannesson, yflrlögregluþjónn Lögreglunnar í Reykjavík og tengiliður við fjöimiðla, vildi ekki svara spurningum blaðamanns DV um málið klukkan fjögur daginn áður þar sem hann sagðist vera í fríi! I Fréttablaðinu á laugardaginn sagði hann lögregluna ekki vera að rannsaka neitt vændi í Ármúlanum. Sama dag birti DV fréttir og myndir af starf- seminni. Hvað ræður þessari framkomu Harðar gagnvart DV? Er það vegna svekkelsis yfir því að ráða ekki hvenær blaðið kýs að segja ákveðnar fréttir? Finnst honum ekki til- efni til að rannsaka skipulagt vændi á íslandi? Er þessi starfsemi kannski hluti af alþjóðlegri verslun með konur? Þessum spurningum verður lög- reglan að svara. Stjórnvöldum ber að tryggja öryggi þessara kvenna og að þeim sé ekki haldið hér í ánauð. í því sambandi á það ekki að skipta Hörð Jóhannesson máli hvort DV hafi sagt fréttafþessu máli eða ekki. 4. Ólína Þorvarðardóttlr Séra Ólina myndi rugga kirkjuskipinu rækilega. 1. Einar Oddur Kristjánsson Sérn Einar færi létt með að taka líýmsum álitamálum. 2. Styrmir Gunnarsson Sd ykkar sem syndlaus er kasti fyrsta Staksteininum. 3. Ogmundur Jonasson Séra Ögmundur fer létt með að hafa vit fyrir öðrum. 5. Þórhildur Þorleifsdóttir Sóknarbörnin kæmus t ekki upp með neitt múðurhjá séra Þórhildi Omerkileg röksemdaMa ur ovamtri att FYLLSTA ÁSTÆÐA ER TIL AÐ ÓSKA M0RG- UNBLAÐINU til hamingju með nýjan „rammahöfund". Þegar Mogganum hefur þótt sérlegur veigur í skoðun- um tiltekinna einstaklinga og þær skoðanir ríma við hagsmuni blaðs- ins og valdhafa, þá ramma þeir greinina inn og birta myndlausa svo ekkert trufli hinn kristaítæra tón. Og þessi nýi rammahöfundur Moggans er sannarlega feitur biti úr óvæntri átt: Páll Magnússon sjónvarpssjóri á Ríkissjónvarpinu. í RAMMAGREIN PÁLS FRÁ Á LAUGAR- DAG kveður við gamalkunnan tón úr herbúðum stjórnarliða. Reyndar ei- lítið úldinn og af sama meiði og hin fleygu ummæli Lyndons B. Johnson sem féllu þegar hann á barmi ör- væntingar í kosningabaráttu sakaði mótframbjóðanda um náið sam- neyti við gyltur sínar. Sagði þegar honum var bent á að þetta væri raka- laus óhróður: „Let the bastard deny it.“ Sem sagt, nú sá, að allir þeir sem leyfa sér að benda á galla í fyrirhug- uðum lögum um Ríkisútvarpið eru ótrúverðugir leigupennar eigenda sinna. Birgirsegir C um RUV sem þó má hiklaust fíokka undir B-liðinn með sína gallhörðu og siðlausu auglýsinga- deild. Fyrst og fremst ÞESSI ÓMERKILEGA RÖKSEMDAFÆRSLA ætlar ekki að duga nú þegar Þor- steinn Pálsson ritstjóri Fréttúblaðs- ins er annars vegar. Hann hefur sett fram vel grundaða gagnrýni á fýr- irhuguð lög og er fyllsta ástæða til að taka mark á. En Þorgerður Katr- ín Gunnarsdóttir menntamálaráð- herra á sjálfstýringunni leyfði sér að afgreiða gagnrýni Þorsteins á áður- nefndum nótum. Og nú syngur Páll af öllum mönnum sama sönginn. Spyr af hverju menn taka undir með Þorsteini og svarar sér sjálfur: „Þeim þykir hagsmunum eigenda sinna ógnað." Það var og. NÚ ER EINMITT TÆKIFÆRI til að velta fyrir sér hlutverki RÚV. Fjölmiðla- fræöingurinn Birgir Guðmundsson í Fréttablaðspistli vísar í rannsókn sem McKinsey gerði og segir til um þrjár tegundir almannaútvarpa: A. Útvörp sem stefna að sérhæfingu á tilteknum sviðum (menningar- legum) til að réttlæta tilvist sína. B. Stöðvar sem ganga mjög langt í markaðsáherslum í raun mjög svip- aðar einkastöðvum. C. Þama ein- hvers staðar á milli. Birgir segir C um RÚV sem þó má hiklaust flokka und- ir B-liðirm með sína gallhörðu og siðlausu auglýsingadeild. PÁLI ER V0RKUNN. Hann er keppn- ismaður en stofnunin svifasein. Og sérstök er staða hans. Úr einka- rekstri í ríkishreiður er kominn mað- urinn sem kenndi undirrituðum að fjölmiðill ætti ætíð að vera í stjórn- arandstöðu burtséð ffá því hver er í Stjómarráðinu. jakob@dv.is Neikvætt nöldur Sollu um sjallana „Raunar er undarlegt, að þetta skuli hafa verið hið fréttnæm- asta úr ræðu formannsins, það er neikvætt og frekar fúl- lynt nöldur um andstæð inga Ingibjargar Sólrún- ar. Spyrja má: Er það almennt fréttnæmt, að Ingibjörg Sólrún hallmæli Sjálfstæðis- flokknum? Það væri hins vegar stórfrétt, ef Björn Bjarnason Telur litlarfréttirþærað Ingibjörg Sólrún gagnrýni Sjálfstæðisflokkinn. hún léti flokkinn njóta sannmælis!" skrifar Björn Bjarnason dómsmála- ráðherra á síðu sína um þennan helsta fjanda sinn. Reyndar mœtti snúa þess- um ummœlum á Björn sjálf- an sem seint verður sakaður um að láta pólitíska and- stœðinga sína njóta sann- mœlis. En svona er pólitík- in á Islandi í dag. Egill og menningarvitarnir „Svo var Kanasjónvarpinu lokað eftir áskorun hundrað menning- arvita, en nokkrum árum síðar opnuðu ótal kanasjónvörp í staðinn. íslend- ingar reynd- ust ein- færir að reka þau," skrifar Egill Helgason í pistíi á vefsvæði sínu. Þjóð sína segir hann þá ameríkanseruðustu í Evrópu - menningarsnauðan skríl. Réttmœt athugasemd. En Egill virðist ekki alveg vita í hvornfótinn hann á að stíga. Né vita hvar hann á heima. Agli finnst menningarvit- arnirgegn kanasjónvarpi kjánaleg- ir en hefði sennilega ritað nafn sitt manna á lista mótmœlenda - verandi á nákvœmlega sömu skoðun og þeir voru þá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.