Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2006, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2006, Blaðsíða 7
DV Fréttir MÁNUDAGUR 10. APRlL 2006 7 Óviðunandi ástand Samfylkingin krefst þess að kjör umönnunarstétta á hjúkrunar- og dvalarheim- ilum verði bætt nú þegar í samræmi við launakjör fyrir sambærileg störf hjá Reykjavíkurborg. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á flokks- stjórnarfundi Samfylking- arinnar á laugardaginn. „Ástandið í öldrunarmál- um er algjörlega óviðun- andi og er alfarið á ábyrgð ríkisstj órnarflokkanna, Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks," segir jafn- framt í ályktuninni. Vilja kaupa Ölgerðina Nokkrir aðilar eru í samningaviðræðum um kaup á Ölgerðinni Egill Skallagrímsson. Frestur til að skila inn bindandi tilboði í fyrirtækið rann út klukkan fimm á föstudag- inn. Friðrik Einarsson hjá MP Fjárfestingarbanka seg- ir niðurstöðu ekki fengna og ekkert verði gefið upp um hugsanlegan kaupanda fyrr en síðar í vikunni. Slagsmál á ísafirði Tvenn slagsmál komu til kasta Lögreglunnar á ísafirði aðfaranótt sunnu- dagsins. Að sögn varð- stjóra urðu slagsmálin með skömmu millibili rétt fyrir og eftir lokun skemmti- staða'í miðbænum og er ölvun orsök þeirra. Tveir menn voru handteknir og fengu að sofa úr sér vímuna í fangageymslu það sem eftir lifði nætur. Þeim var svo báðum sleppt úr haldi í gærmorgun og reiknar lögreglan ekki með neinum eftirmálum af þessum uppákomum. Sjómaður slasaðist Sjómaður slasaðist um borð í íslenskum togara í gær og var þyrla Land- helgisgæslunnar kölluð út klukkan hálf flmm til að ná í manninn. Ekki er vitað hversu alvarlegt slysið var. Skipað var statt út af Vest- fjörðum og þurfti þyrlan að lenda á Rifl á Snæfells- nesi í bakaleiðinni til að taka eldsneyti. Að því loknu hélt hún til Landspítala - háskólasjúkrahúss og lenti þar í gærkvöldi. FL Group, fyrir hönd Icelandair, hefur fest kaup á tveimur Dreamliner-farþegaflugvél- um í viðbót við tvær af sömu tegund sem Icelandair keypti fyrir ári. Tvær vélanna koma i notkun til íslands vorið 2010 og má áætla að þetta verði bylting fyrir farþegana þar sem þægindi eru mjög mikil í Dreamliner-vélunum. Nviu Boeing 787 Dreamliner- vélarnar sem lcelandair tekur i notkun 2010 Alveg ný hönnun, ný lýsing, hærra rakastig, lægri loftþrýstingur og flugþreytan ur sögunni. Guðjón Arngrfmsson upplýsingafulltrúi FL Group Segir að flugfarið hækki ekki i verði þrátt fyrir aukin þægindi. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi FL Group, segir að þess- ar nýju vélar séu búnar tækni og þægindum sem farþegar hafi aldrei fýrr fengið að njóta. Flugþreyta og bólgnir fætur verða úr sögunni og auk þess segir Guðjón að farþegar muni fá sterkari flugupplifun því gluggarnir eru miklu stærri. „I þessum vélum er loftþrýstingurinn lægri sem gerir það að verkum að í stað þess að vera í sambærilegum aðstæð- um við að vera í tvö þús- und metra hæð, sem er einmitt það sem gefur fólki flugþreytu, er eins og fólk sé í þessum nýju vélum í minni hæð," segir Guðjón Amgrímsson, upplýsingafulltrúi FL Group. Guðjón segir að auk þess séu vél- amar búnar sérstökum tækjum til að viðhalda hærra rakastigi en hefur ver- ið hingað til í flugvélum. „Fólk kann- ast við að vera þurrt í munninum þeg- ar það ferðast með flugvélum en það verður úr sögunni í þessum nýju vél- um," segir hann. Nýflugupplifun „Þetta verður alveg nýflugupplifun fyrir farþegana því gluggamir í þessum Dreamliner-vél- urn eru mikið stærri og get- ur fólk séð mikið meira út um gluggana en áður," seg- ir Guðjón. Þá verði lýsingin í vélunum önnur og rnuni hún skapa aðra stemningu og þar að auki séu aliar inn- réttingar skemmtilegri. Erfitt að samræma þægindi og nýtingu „Það er erfitt að samræma þægindi farþegans og nýtingu sæta og við vilj- um að farþegunum líði vel en á sama tíma viljum við geta selt sem flest flugsæti," segir Guðjón. Hann segir að ekki sé búið að taka ákvörðun um það hversu mikið rými verði fyrir far- þegana í nýju vélunum og Boeing hafi ekki útfært neinar hugmyndir fyrir þá enn. Guðjón segir að Icelandair noti ákveðna staðla um breidd sæta og bil- ið á milii þeirra og þar komi fyrirtækið vel út í öllum könnunum. Aukaþægindi fyrirfarþega Stærri gluggar Meiriraki Minni loftþrýstingur Betrilýsing Meirarými Fallegri innréttingar Flugvélar lcelandair eins og þær líta út ídag aðinnan Allirkannastvið þessar vélar og þröngu sætin og flugþreytuna eftir langt flug. Flugfarið ekki dýrara Guðjón segir að flugfarið verði ekki dýrara fyrir farþegann þrátt fyr- ir að þægindi hans aukist. „Þessar vélar eru dýrari en aðrar en á móti kemur að þær eru sparneytnari og því ódýrari í rekstri," segir Guðjón. Hann segir að það vegi upp á móti kostnaðinum og því munu farþegar Icelandair njóta þæginda nýju vél- anna án þess «. að þurfa að kaupa ■ ' dýrarifar- miða. Hallarbylting hjá Sjálfstæöisflokknum á Höfn Albert Eymundsson „Minn tlmi Ipólitík liðinn. Bæjarstjóranum velt úr sessi Halldóra B. Jónsdóttir Aðvonum ánægðmeð úrslitin. Halldóra Bergljót Jónsdóttir sigr- aði í prófkjöri sjálfstæðismanna á Höfn í Hornafirði og mun leiða lista flokksins í næstu kosningum. Albert Eymundsson bæjarstjóri sóttist eftir efsta sætinu en hafnaði í því þriðja. Albert segir að hann muni ekki taka sæti á listanum. „Ég er að vonum ánægð með úr- slitin og vil koma á framfæri þökk- um til allra þeirra sem studdu mig í þessu prófkjöri," segir Halldóra B. Jónsdóttir. „Ég held að ástæða þess að ég náði fyrsta sætinu sé að fólk þekkir mig og mín störf hér í bæj- arfélaginu." Aðspurð um lélegan ár- angur bæjarstjórans segir hún það kannski vera ábendingu um að störf hans hafi verið umdeild en tekur jafnframt fram að Albert hafi verið ráðinn í stöðu bæjarstjóra á sínum tíma en ekki kosinn. „Ég varð fyrir miklum vonbrigð- um með þessa niðurstöðu, það seg- ir sig sjálft," segir Albert Eymunds- son. „Ég mun ekki taka þriðja sætið á listanum enda gaf ég yfirlýsingu um það fyrir prófkjörið." Aðspurður um árangurinn segir Albert að hann hafi lengi verið að vasast í bæjarmálum á Höfn og þetta sé kannski ábend ing um að hans tími í pólitík sé liðinn. Önnur óvænt úrslit voru að Björn Emil Traustason bæjarfulltrúi er ekki meðal sex efstu manna en hann keppti við Björn Inga Jónsson um annað sætið. Alls kusu 424 félagsmenn í prófkjörinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.