Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2006, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 10.APRIL2006
Sport OV
• •
NBA KORFUBOLTINN
Allen kominn
íannað sætið
Stórskyttan Ray Allen
hjá Seattle Supersonics
komst um helgina í annað
sætið yfir þá leikmenn sem
skorað hafa flestar þriggja
stiga körfur á ferlinum í
NBA-deildinni þegar hann
skoraði 38 stig í sigri liðsins
á Portland. Allen skoraði
fjóra þrista úr sex tilraunum
í leiknum og komst þar með
upp fyrir Dale Ellis í annað
sæti listans með 1.723
þriggja stiga körfur skor-
aðar á ferlinum. Hann á þó
enn mjög langt í efsta mann
á listanum sem er enginn
annar en Reggie Miller sem
lagði skóna á hilluna í fyrra-
vor með 2.560 þriggja stiga
körfur á samvisku andstæð-
inga sinna.
Nýliði Denver
skotinn
Julius Hodge, nýliði
Denver Nuggets
lenti í heldur
skelfilegri lífs-
reynslu um helg-
ina þegar hann var
á ferð í bíl sínum
á þjóðveginum í
grennd við Denver,
þegar maður í bíl
sem ók samhliða
honum hóf skot-
hríð á hann. Hodge slas-
aðist merkilegt nokk ekki
alvarlega í þessum hama-
gangi en fékk þó í það
minnsta þrjú skot í fæturna
að því er fregnir herma.
„Það er allt í lagi með hann,
honum er fyrst og fremst
bara mjög brugðið og við
getum þakkað Guði fyr-
ir að þetta atvik varð ekki
ljótara en raun ber vitni,"
sagði George Karl, þjálfari
Denver. Hodge er bakvörð-
ur og var tekinn í fyrstu um-
ferð nýliðavalsins í fyrra.
Shaq sektað-
urafNBA
Shaquille O'Neal þurfti
um helgina að punga út
fyrir 15.000 dolíara sekt sem
hann fékk frá deildinni fyrir
að gagn-
rýna dóm-
ara og for-
ráðamenn
deildar-
innar
harðlega
eftir tap
Miami gegn New Jersey
á dögunum. O'Neal þótti
hann lagður í einelti vegna
stærðar sinnar í leiknum og
var raunar ekki einn um þá
skoðun. „Ég hef aldrei orðið
vitni að annarri eins dóm-
gæslu á ferlinum. Allir vita
að dómaramir eru fárán-
lega ósamkvæmir sjálfum
sér þegar þeir dæma á mótí
mér og breyta reglunum
þegar ég er annars vegar.
Þeir gætu nú kannski falið
það aðeins betur en þetta,"
sagði O'Neal eftir leikinn.
Miðherjinn Shaquille O'Neal hjá Miami Heat er klárlega kominn af léttasta skeiði sem
leikmaður og margir vilja meina að úrslitakeppnin í vor verði hans síðasta tilraun til að
krækja í fjórða meistaratitil sinn á ferlinum.
Shaquille O'Neal er ekki körfuboltamaður í eiginlegum skilningi,
heldur er betra að lýsa honum einfaldlega sem íyrirbæri. Enginn
leikmaður í sögu íþróttarinnar hefur haft aðra eins líkamlega yfir-
burði yfir mótherja sína og „sá Stóri" eins og hann er gjarnan kall-
aður. Hann er aftur á móti orðinn 34 ára og menn spyrja sig hvort
O'Neal hafi það sem til þarf til að koma Miami alla leið í vor.
O'Neal hefur verið í sífelldri bar-
áttu við þrálát meiðsli síðan hann
gekk í raðir Miami, en það segir sína
sögu um yfirburði hans í miðherja-
stöðunni að hann skuli enn vera
talinn sá bestí í deildinni þótt hann
hafi strangt til teldð spilað „á annari
löppinni" í tvö ár.
Enginn stenst tröllinu snúning
þegar hann er í essinu sínu, en þó
verður að viðurkennast að heilsa
hins 34 ára gamla undurs vekur upp
jafnmargar spurningar og hún veitír
svör í leit Miami að fyrsta meistara-
títli félagsins.
Stoppuðu á Detroit í fyrra
Það voru öðru fremur meiðsli
Shaquille O'Neal sem hindruðu að
sterkt Iið Miami færi í úrslitin í fyrra,
en liðið barðist við Detroit alla leið í
sjöunda leik í úrslitum Austurdeild-
ar þar sem Detroit hafði naumlega
betur í oddaleik með þá O'Neal og
Dwayne Wade meidda.
O'Neal hefur verið enn rólegri
í vetur og hafa meiðsli hans og lé-
legt líkamlegt ásigkomulag gert það
að verkum að hann spilar aðeins 30
mínútur að meðaltali í leik, skor-
ar 20 stig og hirðir 9 fráköst, sem er
líklega hans lakasta tölfræði á ferl-
inum.
Shaquille O'Neal er samkvæmt
tölfræðinni í vetur eins líklegur til
að skorað 10 stig í leik og 30 stig
(sem hann hefur aðeins gert fjórum
sinnum í vetur). Því er eðlilegt að
menn spyrji sig hvort sá Stóri hafi
enn það sem til þarf til að koma Mi-
ami alla leið í úrslitin, þar sem lið-
ið þarf að öllum líkindum að fara
í gegnum mulningsvélina Detroit
Pistons sem hefur aldrei verið betri
en í vetur.
Með Wade sér við hlið
O'Neal getur huggað sig við það
að hann hefur Dwayne Wade við
hlið sér þegar í úrslitakeppnina er
komið, en Wade er einfaldlega orð-
inn einn af allra bestu leikmönnum
deildarinnar. Miami er orðið liðið
hans Dwayne Wade og fer líklega
eins langt og hann tekur það í vor.
Verði Shaquille O'Neal hins veg-
ar ekki annað en skugginn af sjálf-
um sér eins og hann hefur verið
lengst af vetrar, gerir Miami engar
rósir í úrslitakeppninni - það er á
hreinu. Shaq lætur enn stórkarla-
lega eins og honum einum er lagið,
en spurningin er þessi: Er eitthvað
eftir í tanknum hjá þeim Stóra?
Svarið verður í beinni útsendingu á
Sýn í júní.
NewJersey Nets. Liöiö vann 14 leiki I röð áður en það tapaði loksins fyrir
heitu liði Cleveland á laugardagskvöldiö, en þetta er lengsta
sigurganga liðs INBAI vetur. Þessl slgurganga hefur orðið tilþess
að marglr spá þvi að liöið valdi usla i úrslitakeppnlnni, enáþvier
engin hætta með þennan mannskap. Þú heyrðir fyrst afþvi I
þessum dálki.
Cleveland Cavatiers. LeBron James hefur þegar þetta er ritað skorað 35'
stig eða meira í 9 leikjum I röð, sem er þriðja lengsta rispa sinnar tegundar
i deildinni I meira en 35 ár. Nlu slgrar I slðustu tlu leikjum er blaut tuska í
andlit þeirra sem sögðu að Cleveland kæmist ekki i úrslitakeppnina enn
eitt árið. Ég veit ekki með þig - en ég hlakka til að sjá LeBron i úrslita-
keppninni I fyrsta sinn. Gætið ykkar.
MemphisGrizzlies. ÉinhverheföisettOrlandoiþennan dálk,enþaðerekkertað
marka þegar léleg lið taka rispu undir lok tlmabilsins og ekkert er undir. Memphis er eitt
fárra afsterkari liðum deildarinnar sem halda sínu striki á lokasprettinum og efPau Gasol
helduráfram að koma með leiki eins og um helgina (33 stig, 14 fráköst og 14stoðsendingar
gegn Milwaukee) gæti orðið breyting á slæmu gengi liðsins I úrslitakeppninni.
í kjaHuninuin:
Philadelphia 76ers. Manni hefur flogið I hug að kalla þennan dálk„New York-dálkinn“af
eðlilegum ástæðum, en efeitthvað lið hefur sk**iö á sig I vetur, erþað Philadelphia sem nú
er komið með annan fótinn i sumarfri. Liðið hefur tapað 13 afslðustu 17 leikjum sinum
og 7 af9siðustu heimaleikjum, sem er ekki málið efþú ætlar iúrslitakeppni.
Þetta færðu efþú ert nógu vitlaus til að reyna aö halda að þú getir byggt
upp lið í kring um Chris Webber. Úps.
Miami Heat: Shaquille O'Neal nældi sér I ný meiðsli. Það gerðu lika Alonzo
Mourning, Jason Williams og James Posey. NewJersey erskyndilega farið
að narta í hælana á Miami og fimm sigrar íslðustu tlu leikjum eru
taðreynd - auk enn eins tapsins fyrir Detroit. Þú heyrðirþað fyrst hér: Ef
Wade verður ekki með 40 stig og þrennu að meöaltali í úrslitakeppninni,
verður Miami I duftinu. Þá meina ég i duftinu.
Minnesota Timberwolves: Minnesota læðir sér inn I þennan dálk af
því liðið er formlega búið að sturta niður brúnlituðu ttmabitinu 2005-
06. Liðið hefur hag afþvl að enda með sem lélegastan árangur vegna
Sam Cassell-skiptanna f sumar til að Clippers steli ekki afþeim i nýliðavalinu
llka og það er dálítið augljóst að þú ert að reyna að tapa efþú lætur Kevin
Garnett spila 25 minútur ijöfnum leik. Skamm.
Einvígi LeBrons James og Dwyanes Wade markaði upphaf nýrra tíma í NBA-deildinni
Krónprinsarnir settu á svið sýning
Segja má að við-
ureign Cleveland
Cavaliers og Miami ’-4
Heat á dögunum hafi á
margan hátt verið tákn um
nýja tíma í NBA-deildinni, en
þar áttust við tvær af skærustu
ungu stjörnum deildarinnar
þeir Dwyane Wade hjá Miami
og LeBron James hjá Cleve
land. Það er kannski fulld- .
júpttekiðíárinniaðsegja 1
að leikur á þessum
tímapunktí á leik-
tíðinni marki spor
í söguna, en einvígi
þeirra LeBrons James
leiddi Cleveland tíl
7. sigursins í röð þetta
kvöldið með því að skora 47
stíg (18 í fjórða leikhluta), hirða
12 fráköst og gefa 10 stoðsend-
ingar, sem er auðvitað fáheyrð
tölfræði. Wade, sem fór fyr-
ir liði Miami eins og venju-
lega og það án Shaquille
O'Neal í það skiptíð,
í stóð James ekki langt að
baki og skoraði 44 stig
t (21 í fjórða leikhluta),
gefa 9 stoðsendingar
og hirða 8 fráköst.
„Ég á ekki tíl lýsing-
arorð yfir það sem fólk
varð vitni að í kvöld og ég
hef ekki séð annað eins
í langan, langan tíma,"
sagði Pat Riley, þjálfari
Miami, sem kallar nú
ekki allt ömmu sína.
Þeir Wade og James
klöppuðu hvor öðr-
kollinn og föðmuðust
eftírleik- inn. „Við erum góðir
vinir og viljum báðir að lið okkar nái
góðum árangri. Við elskum að spila
hvor við annan," sagði
LeBron James, en
þjálfari hans átti
ekki tíl orð frekar en
venjulega. „Ég halla
mér bara aftur í sæt-
inu og horfi á hann ná
í þrennurnar sínar og
þjálfa liðið inni á vell
inum. Hann lætur mig
alltaf h'ta út fyrir að
vera frábær þjálf-
ari," sagði Mike
Brown, þjálfari
Cleveland, og það
ekki í fyrsta sinn í
vetur.