Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2006, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2006, Blaðsíða 22
Menning DV Peningana eða heiðurinn? Menningarverðlaun DV voru veitt fyrir helgi við mjög hátíðlega athöfn á Hótel Borg þar sem var fínn matur og fínt vín og fínt fólk. Plebbar eins og yðar einlæg hafa aldregi áður verið boðnir á samk- undu sem þessa (og hefði ekki ver- ið boðið nema vegna þess að hún slysast til þess að vera umsjónar- maður þessarar síðu). Það var gaman að sjá hvað fólk var kátt og rjótt þegar það tók við Menningar- verðlauna- styttunni. Innifalið í verðlaunun- um er nefni- lega enginn peningur semverða- laúnahafar geta spandérað, heldur bara styttan fína og heiðurinn. Myndin lifir að eilífu Sum verðlaun eru peningaverð- laun en skipa ekki nándar nærri eins mikinn heiðurssess og Menn- ingarverðlaun DV. Ég man eftir því að vinur minn Eftir helgina sem er listamaður átti eitt srnn að fá fimmhundruðþúsundkaU í verð- laun/styrk frá einhverju fyrirtæki sem hann hafði lítið áíit á. Hið eina sem hann þurfti að gera var að mæta á staðinn og láta mynda sig með forstjóra fyrirtækisins. Vinur minn er mikill prinsippmaður og hann sagði: „Nei, það kemur ekki til greina. Fimmhundruðþúsund- kallinn væri íljómr að hverfa, en myndin - hún lifír að eilífu!" Sum verðlaun eru bæði ofsaleg- ur heiður og ofsalega miklir pen- ingar. Eins og Nóbelsverðlaunin. Ég man eftir viðtali við Hall- dór Laxness, þar sem spyrill gerði mikið úr þeirri stóru upphæð sem hver Nóbelsverðlaunahafi hlýtur og spurði í þaula um milljónimar. Ég man ekki alveg hvað I Ialldór sagði um verðlaunin, en hann bætti svo við þegar peningatalið hélt áfram: „Peningarnir? Það tekur því ekki að hafa orð á þeim. Maður át þá upp á einum mánuði!" Auðvitað hlýtur Laxness að hafa verið að ýkja, en þetta er skemmti- legt. Peningamir skiptu ekki mestu ináli, heldur heiðurinn. Klappað á bök AlUr voru glaðir með heiðurinn sem fylgir Menningarverðlaunum DV og einn verðlaunahafinn orðaði það svo að eftir áratuga starf væri yndislegt að láta klappa sér á bakið með þessum hætti, vegna þess að oft vildi hrós gleymast í annasöm- uin dögunum. Mér fannst þetta sætt. Sama hvað við verðum gömul og hversu hótt við komumst í líiinu, þá finnst okkur öllum gott að talca við hrósi ogiáta klappa okkur hraustlega á bakið fyrir það sem við ----- gerum vel. Umsjón: Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir hrefna@dv.is Það er auðséð á| uglunnar skúmlal blikki, að hún I hefur eigi góðan| mann að geyma. (HannesÁma- son, prestaskóla- kennari) Á fimmtudagskvöldið íluttu Hamrahlíðarkórarnir og Sinfóníuhljómsveit íslands kafla úr sálumessu eftir Eybler; Totenfeier eftir Mahler og Sálumessu eftir Mozart og Siissmayr. lil hvers liíir þú? Sinfóníska ljóðið Totenfeier, sem seinna varð fyrsti kafli annarrar sin- fóm'u Mahlers og nýtur sín betur sem hluti af þeirri stórkostlegu sin- fóníu þar sem dauðir upp rísa að lokum, á sér þann sjúklega upp- runa að Mahler ímyndaði sér að hann væri dauður og lægi í kistu sinni umkringdur blómum. Mahler var gyðingur og ef hann hefði orðið gamall maður hefði hann kannski fuðrað upp í gasofnunum án allra blóma og hátíðlegheita. Við slík- ar aðstæður hefði spurningin sem hann lagði fram, „Til hvers lifir þú“, haft eitthvert alvöruvægi. Mahler var reyndar fyrsta tónskáldið sem túlkar tvístring, öryggisleysi og stjórnleysi nútímalífs. Hann sá fram í tímann. Tónlist hans gefur hins vegar engin svör. Bara spyr með sundurtættri taugaveiklun. Leikur hljómsveitarinnar var hálf þumbaralegur, skýr og klár, en greip mann ekki. Lífsháskinn var ekki til staðar. H Dæmigerð Vínarklassík Jósef Eybler var mikilsvirt tón- skáld um sína daga og lifði það að kynnast Haydn, Mozart, Beethoven og Schubert. Enginn smáræðis lífs- reynsla það! Sálumessa hans er dæmigerð vínarklassík en samt með smávegis framtíðardráttum. Hún er áheyrileg mjög en þegar hún heyrist næst á undan Sálumessu Mozarts, jafnvel þó verk Mozarts sé fullgert af öðru tónskáldi, heyrist sláandi hver er munurinn á góðum fagmanni og snillingi í fremstu röð. Þetta var lífs- reynsla út af fyrir sig að heyra. Slétt og fellt Hamrahlíðakórarnir voru afar fjölmennir en samt var hljómur þeirra fremur lágstilltur en smekk- vís, blæbrigðamjúkur, nettlegur og jafnvel eins og dálítið til baka. í heild var flutningur þessara verka mjög vínarklassískur eins og vera ber. Þó var Sálumessa Mozarts, sem undir niðri logar af ákefð og stríði, kannski full tamin og öguð. Inngangurinn var ekkert dularfullur, dómsdagur- inn ekkert svakalegur, lakrýmósan ekkert hjartnæm og þar fram eftir götunum. Allt var fullkomlega slétt og fellt. Það er ef til vill smekksat- riði hvernig þetta á að vera. Ekki er mælt með tilfinningagosi í þessu verki en tilfinningarnar mega samt koma skýrt fram því þær eru þarna og líka dramað sem reyndar er ekk- ert smáræði. Aftur á móti voru fúg- umar óvenjulega samanreknar, skýrar og röggsamlegar, allt heyrð- ist greinilega sem í þeim er í öllum söng- og hljóðfæraröddum, fram- reitt af frábæru músikskyni. Varla hefur heyrst flottari fúgulist í Há- skólabíói. Þar hjálpaði til hvað kór- raddirnar voru skýrar og kliðmjúkar. Einsöngvararnir voru allir framúr- skarandi, þróttmiklir og skýrir, svo ekki mátti á milli sjá eða heyra rétt- ara sagt. Flutningurinn hafði mikil áhrif á hlustendur sem þökkuðu Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri Kórraddirnar voru skýrarog kliðmjúkarog áheyrendur þökkuðu fyrir af óvenju mikilli hrifningu. DV-Mynd: Hilli fyrir af óvenjulega mikilli hrifn- ingu. Það má alveg koma hér fram að áheyrendur á sinfóm'utónleikum eru þroskuðustu og öguðustu tón- Sinfóníutónleikar Efnisskrá: Kaflar úr sálumessu eftir Eybler; Totenfeier eftir Mahler; Sálumessa eftir Mozart og Sussmayr. Emsongvarar Hanna Dóra Sturludóttir, Alina i Dubik, Jónas Guðmundsson, Kouta Rasanen. Hamrahlidar- kórarnir. Kórstjóri: Þorgerður Ingólfsdóttir. Stjórnandi: Petri Sakari. Háskólabió 6. april. ★ ★ ★ M M Tónlist leikagestirnir í íslenskum tónleika- sölum. Sigurður Þór Guðjónsson. Heilar sextíu sýningar eru að baki á Eldhúsi eftir máli, leikgerð Völu Þórsdóttur á smásögum Svövu Jakobsdóttur sem Ágústa Skúladóttir leikstýrir Menningarverðlaun og miklar vinsældir Halldór Laxness Sagðist hafa étíð Nóbelsverðlaunin upp á einum mánuði. Á fímmtudagskvöldið, daginn sem Eldhús eftir máli hlaut menn- ingarverðlaun DV fyrir leiklist, var sextugasta sýning á verkinu í Þjóð- leikhúsinu. Sýnt hefur verið fyrir fullu húsi frá frumsýningu, en aðstandendur sýningarinnar höfðu fjölmargar ástæður til þess að gleðj- ast þetta kvöld. Menningarverðlaun- unum var auðvitað hampað, Sólveig Amarsdóttir .tók við hlutverkum Aino Freyju Járvela og ofan í kaupið fagnaði Unnur ösp Stefánsdóttir, ein leikkvennanna, 30 ára afrnæli sínu þennan dag. Kátína og gagnrýni I umsögn dómnefhdar sagði m.a.: „Vinna með erfitt efni fyrir svið skilaði bráðskemmtilegri sýningu sem lýsti af hugviti og hugmyndaflugi. Hér fer saman pólitískt innsæi í flókið mál misréttis og gáskafull afstaða til lífs- Lins sem smitar áhorfandann af kát- ínu og gagmýni í senn, enda hefur sýningin átt miklum vinsældum að fagna og er enn á fjölunum." Svava Jakobsdóttir hafði með skáldsögum sínum, smásögum og leikritum mikil áhrif á íslenskt menn- ingarlíf og samfélag á ofanverðri tut- tugustu öld, en með verkum sínum miðlaði hún meðal annars skarpri sýn á stöðu konunnar í samfélaginu. Með sýningunni Eldlrús eftir máli heiðrar Þjóðleikhúsið minningu Svövu. Leikendur eru auk Sólveigar Amarsdóttur; Kjartan Guðjónsson, María Pálsdóttir, Unnur ösp Stefáns- dóttir, Vala Þórsdóttir og Þórunn Lár- usdóttir. Bjöm Thorarensen er höfundur tónlistar, lýsingu hannar Hörður Ág- ústsson, búninga gerir Katrín Þor- valdsdóttir, höfundur leikmyndar er Stígur Steinþórsson og leikstjóri er sem fyrr segir Ágústa Skúladóttir. HHHHHHHH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.