Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2006, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2006, Blaðsíða 31
DV Síðasten ekki síst MÁNUDAGUR 10.APRÍL2006 31 Spurning dagsins Ætlarðu í kirkju á föstudaginn langa? Ferá The Last Temptation ofChrist „Ég ætla á Scorcese-myndina The Last Tempation of Christ í Snarrót á Laugavegi 21, svo ég kemst ekki." Ólafur B. Þórsson kvikmyndagerðarmaður. Margir eru tvigiftir, en dr. Gunni er einn af fáum sem er tvífermdur Ég verð fyrir austan um páskahelg- ina svo ég er ekki viss um að ég komist, en ég reyni mitt besta." Unnur Birna Vilhjálmsdótt- ir, ungfrú heimur. / „Ég býst fastlega við því. Ég ferí Kristskirkju." Jón Gnarr listamaður. „Nei, ég fer ekki í kirkju. Ég ætla að horfa á The Postman með Kevin Costner." Hugleikur Dagsson listamaður. „Ég ætla ekki í kirkju. Ég ætla hins vegar að fremja guðlast. Við i Vantrú ætlum að sýna kvikmynd í Snartót idukkan tólfá hádegi." Vésteinn Valgarðsson sagnfræð- ingur. . Það er fastur liður í lífi margra að sækja kirkju um páskana. Einræðistilburðir ráðherra Þingraeðið er al- varlega haldið af áður óþekktum sjúkdómi. Greinst hefur ný veira af stofni B5D7 sem sækir helst í ráðherra landsins og veldur því að þeir gleyma því að þingið er einn þátturinn í þrískiptingu ríkisvaldsins. Málsgreinin gæti verið ágætt upphaf í næstu Spaugstofu og er að sjálfsögðu sett fram í hálfkæringi. En það þýðir einmitt að ekki er eingöngu um spaug að ræða heldur er alvara á bak við spaugið. Mér finnst að ráðherrar landsins hafi að undanförnu of oft sýnt að þeir vanrækja samráð og sam- starf við þá þingmenn sem þeir sækja umboð sitt til. [...] í síðasta mánuði var send út fréttatilkynning frá fjármála- ráðuneytinu sem hófst á orðun- um: „hefur fjármálaráðherra ákveðið að gera skattalegar um- bætur sem m.a. er ætlað að nýt- ast sérstaklega fyrirtækjum á sviði rannsókna, þróunar og ný- sköpunar11. Hið rétta er að flest- ar aðgerðirnar sem kynntar voru verða ekki að veruleika nema Al- þingi samþykki lagabreytingar, engu að síður er tekið svo til orða að fjármálaráðherra hef- ur ákveðið að gera. Það þarf ekki að stafa það ofan í les- andann að inntakið í fréttatil- kynningunni er að ráðherrann ræður. Annað dæmi um ráð- herraflensuna er framkoma iðnaðarráð- herra á dögun- um sem var að kynna frumvörp BÍÍfi sín á blaðamanna- fundi á sama tíma og sömu frumvörp voru lögð fyrir stjórnar- þingmenn. Það þýðir einfaldlega að ráðherrann ætl- ar að flytja málin eins og þau eru kynnt fyrir fjölmiðlum. Þingmönnum er stillt upp við vegg, þeir eiga að sam- þykkja málin og styðja þau en fá ekki að hafa áhrif á innihaldið. Þriðja dæmið er nýlegast. Á miðvikudaginn var munnleg kynning fyrir þingflokki fram- sóknarmanna á væntanlegum drögum að fjölmiðla- frumvarpi, auðvit- að sem trúnaðarmál. Sérfræðinganefndin boðaði að hún myndi skila af sér daginn eft- ir. Elckert frumvarp var sýnt, hvorki í drögum né fullbúið. Ekki var um það að ræða að þingmenn tækju afstöðu til til- lagnanna á þessu stigi. Það bíður þess tima þegar ríkisstjórn- in er búin að afgreiða fyrir sitt leyti frumvarp og senda það til þingflokka. En viti menn, strax morguninn eftir er nákvæm lýsing á mál- inu í Blaðinu og þar kemur fram að blaðið hefur höndum drög að nýju frumvarpi. Það sama var upp á teningnum í sjónrvarpsfréttum RÚV um kvöldið. Það er augljóst að þegar búið er að kynna til- lögurnar opinberlega verð- ur af hálfu ráðherrans, sem flytur málið, menntamálaráðherrans, ætlast til að þingmenn samþykki málið í öllum meginatriðum eins og kynnt hefur verið. Fleiri dæmi eru til en ég læt hér staðar numið. ÞingræðisQensan er komin á al- varlegt stig. Nú standa fermingar yfir með sínu árlega auglýs- ingaharki og sérblöðum þar sem þekkt fólk er beðið um að rifja upp ferminguna sína og annað sem verkpínd um blaðamönnum dettur í hug að setja í þessa kálfa. Hvaða 13 ára krakki á að standast þau gylliboð sem í gangi eru? Ég segi það satt að sjálfur myndi ég ekki hika við að fermast í dag með tilheyrandi hlunnindum ef það væri í boði. Veturinn 1978-79 var ég heldur ekki í neinum vafa þótt trúin á yfirnáttúrulegar himnaverur væri jafnfráleit þá og nú. Ég lét mig hafaða að mæta til ellihrums prestsins einu sinni í viku. Það eina sem ég man frá þessu var hversu mikið við krakkarn- ir hneyksluðumst á Huldu feitu, sem var sú eina í árganginum sem lét ekki ferma sig. Hvað er að henni? hneyksluðumst við, næstum sármóðguð. Við vorum ekkert að spá í heimspekilegar hliðar þessa máls heldur einblíndum auðvitað bara á það góss sem uppreisnarseggurinn var að afsala sér. Þetta var fyr- ir tíma borgaralegra ferminga. Kannski hefði Hulda tek- ið þann pakka. Égvarvitanlegadrullustressaðurfyrirathöfninaíkirkj- unni. Maður þarf að segja eitthvað þegar presturinn tek- ur mann fyrir og ég kveið því að þurfa að opna munn- inn fyrir framan fullt af fólki. Það hafði verið siður að ættingjar fermingarbarnsins stóðu upp þeg- ar það var fermt, en sem betur fer hafði sá siður verið lagður af á þessum tímapunkti. Ekkert skammast 13 ára óhnoðaður krakki sín meira fyrir en ættingja sína. Ég drullukveið líka fyrir veislunni sjálfri. Að þurfa að vera miðpunktur athyglinnar og þurfa að þakka fólki fyrir gjaf- irnar. En þrátt fyrir allt, kvíðann og ómót- að trúleysið, var græðgin öðrum kennd- \ 2 um yfirsterkari. Stóra stundin var um það bil að renna upp og ég var að farast úr stressi þegar heppnin bjargaði mér. Á fermingar- m daginn vaknaði ég með 40 stiga hita . .vai’hfeg ófihj?e“^S>SnSu an og écrcrífu15 farsJuk- “koWl^Þegarg'est- Aldrei ^JAfirnnx. basttu vi/íí* nenia þeir / °s rauðu ÞegSr'b?Þ'*sundka,la / hu„dm, fvi'f ttlig / Eg slapp. SVOna.tr * / Það þótti ekki vænlegt að drösla mér í kirkj- una sveittum og dílótt- um. Samt var of seint að af- lýsa veislunni. Hnausþykkar tertur og majónes- sligaðar brauðtertur stóðu í hrönnum í stofunni. Búið að redda stólum hjá nágranna og allir á leið- inni. Veislan var því haldin og ég lá undir sæng í her- berginu mínu, ófermdur og með óráði. Ég lék mig eins fársjúkan og ég gat þegar gestir komu, einn í einu, til að færa mér gjafirnar. Aldrei að vita nema þeir bættu við þúsundkalli þegar þeir sæju mig svona. Uppskeran var fín. Fullt af peningum og vín- rauður Yamaha-gítar sem ég hafði valið sjálfur stuttu áður. Fyrsta plata HLH-flokksins (skipt), Queen-platan Jazz (á hana ennþá) og fleira smálegt. Það besta var svo að ég fékk aðra veislu og fleiri gjaf- ir þegar ég fermdist í alvörunni um sumarið. Náttúrlega minni veislu og færri gjafir, en samt. Þá var vinur minn kominn heim frá útlöndum og við fermdumst tveir saman í fámennri Kópavogskirkju. Annar prestur en sá sem ég hafði gengið til fermdi okkur og ég man að backstage spurði hann okkur: Þið vitið út á hvað þetta gengur, er það ekki strákar? Jú, jú, sögðum við og voila: Ég var kominn í krist- inna manna tölu. Það var svo enn auðveld- ara að sleppa þaðan nokkrum árum síðar. Bara ein undir- skrift í Hagstofunni. 11 cSl mBC a. Dr. Gunni mm £RT(J Eh M OCr APToft HoRPA k K/Ml.rpíUPPTöKU ^INNAT HVAP CrET £Cr 5A<^T? Bk HdKTÍ hugleikur *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.