Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Qupperneq 28
SÓDÓMA REYKIAVfK ER PRÓGRAMM SIRKUSS RVK. FYRIR NÆSTU DAGA. FYLGDU ÞVÍA LEKINNIYIL BÆTTRAR HEILSU. SENDU OKKUR PÓST MEB ABENDINGUM UM BRADNAUBSYNLEGA ATBURDINÆSTU HELGAR k SODOMA@365.IS. listasYningar 101GALLERÍ Steingrímur Eyfjörð er með sýninguna Bein í skriðu og stendur hún yfir til 3. júní. Síðustu forvöð góðir hálsar. CIASSIC ROCK Myndlistarsýningin „Slettur" á veggjum staðarins. ENERGlA Sandra María Sigurðardóttir heldur málverkasýning- una Moments og mun hún standa yfir til 30. júní. Við- fangsefnið er manneskjan. LISTASAFN REYKJAVÍKUR, KJARVALSSTAÐIR Sýning sem sett er upp fyrir unga listunnendur í tengsl- um við útgáfu nýrrar bókar Eddu útgáfu. Einnig eru sýnd- ar á safninu innsetningar eftir Joseph Kosuth og Ilja & Em- iliu Kabakov sem eru fremstu konseptlistamenn heimsins í dag. REYKJAVfKURBORG Stella Sigurgeirsdóttir sýnir 20 minningarstólpa til 28. ágúst. GALLERÍ HUMAR EBA FRÆGDI Sýning með hljóðtengdum myndverkum í tilefni Fjölljóðahátíðar. Finnbogi Pétursson, Haraldur Jónsson, Steingrímur Eyfjörð, Kira BCira, Ólafur J. Engilbertsson og listanemar við LHÍ sýna bókverk. CAFÉ KARÓLÍNA Gunnar Kristjánsson sýnir málverk, teikningar og prjónaskap þar sem sigurlið heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu 2006 er kynnt. GALLERÍ F0LD Málverkasýning Braga Ásgeirssonar í Baksalnum og báðum hliðarsölum Gallerí Foldar við Rauðarárstíg. Sýn- ingin er sett upp í tilefni af 75 ára afmæli listamannsins og mun standa yfir til 11. júní. GALLERÍ SÆVARS KARLS Graeme Finn sýnir 300 teikningar, sem mynda innsetn- ingu í galleríinu. KARÓLÍNA RESTAURANT Joris Rademaker sýnir ný verk. Sýningin kallast Mjúkar línur. KETILSHÚSIÐ LISTAGILI Soffía Sæmundsdóttir sýnir málverk á tré, striga og pappír. Sýningunni lýkur á sunnudag. NÆSTIBAR Undanfarin ár hefur Snorri Ásmundsson þróað með sér andlega tækni í málaralist, verk hans eru talin hafa lækn- ingarmátt svo ekki missa af sýningunni og kannski hættir hausverkurinn. AFMÆLISSÝNING UðSMYNDASAFNS REYKJAVÍKUR í tilefni af 25 ára afmæli Ljósmyndasafns Reykjavíkur færir safnið ljósmyndaeign sína nær íbúum og gestum borgarinnar. Á útisýningu á Austurvelli, Lækjartorgi og í Fógetagarði gefst áhorfendum kostur á að kanna þetta svæði í gegnum ljósmyndir frá liðinni öld og bera mannlíf og borgarmynd fortíðarinnar saman við Reykjavík dagsins í dag. HRAFNISTA í HAFNARIRÐI Eiríkur Smith sýnir í Menningarsal á Hrafnistu í Hafn- arfirði til 12. júní, en eins og allir vita er Eríkur einn ástsæl- asti listmálari landsins. LISTAHÁSKÓLIÍSLANDS LAUGARNESI 1. og 2. árs nemendur LHÍ sýna afrakstur námskeiðsins Textíll og samtíminn undir leiðsögn Guðrúnar Gunnars- dóttur.' LISTASAFN EINARS JÓNSS0NAR Fastasýning, í safninu eru seldar gifsafsteypur af frum- verkum listamannsins. Einnig eru til sölu bækur um listá- manninn, kort af verkum hans ásamt veggspjöldum af tveim ur málverka hans. LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI Spencer Tunick - Bersvæði og Halla Gunnarsdóttir - Svefnfarar. LISTASAFN ÍSLANDS Gunnlaugur Blöndal - Lífsnautn og ljóðræn ásýnd og Snorri Arinbjarnar - Máttur litarins og spegill tímans. LISTASAFN REYKJANESBÆJAR Sýningin í EYGSJÓN? Sex færeyskir málarar. LISTASAFN REYKJAVÍKUR, Asmundarsafn Ásmundur Sveinsson - Maður og efni. Sýning á úrvali verka úr saf- neign Ásmundarsafns. THORVALDSEN BAR Marinó Thorlacius með Ijósmyndasýninguna „Dreams". Ljósmyndir hans eru alveg sér á báti og hafa þær vakið mikla athygli bæði hérlendis og erlendis. Sýn- ingin stendur yfir þessa helgi og næstu svo það er um að gera að drífa sig. NÝLISTASAFNIÐ Sýningin „Gæðingarnir" með undirtitlinum „In order of appearance" verður haldin í Nýlistasafninu 14. maí til 10. júní. Meðal verkanna á sýningunni eru kvikmyndir, verk gerð sérstaklega fyrir þessa sýningu, verk sem voru gerð í kjölfar heimsóknar listamannanna til íslands 2005 og önnur verk sem voru sérstaklega valin með ísland í huga. SAFN Verk eftir listakonurnar Karin Sander & Ceal Floyer verða í Safni. Sýningarnar eru opnar til 2. júlí. Auk verka eftir listakonurnar tvær verða sýnd verk úr safneigninni. ÞJÓÐMINJASAFN fSLANDS Ljósmyndir Rob Hornstra eru afrakstur af ferðum hans um ísland og veita sýn á fslandi nútímans og vitna um samfélagsbreytingar síðustu ára. Rjúpnaskyttur hjálpuðu Bryndísi Snæbjörnsdóttur og Mark Wilson að skapa lista- verk. Sýningin stendur til 11. júní. HELGIN HJÁMERKJUNUM © Steingeit (22. des.—19. jan.) Sumarið er svo sannarlega búið að lauma sér inn í þig, stein- geitin er komin í sumarskap. Hlustaðu vel á ráðleggingar um fjármál, þau ráð munu koma sér vel fyrir þig í framtíðinni. Taktu þér tíma til að hugsa, farðu í bíltúr eða göngutúr og farðu vel yfir þín mál. Þú verður að sjá heildarmyndina, annars mun eitthvert visst mál koma sér illa fyrir þig. @Vatn$berinn (20. jan.—18. feb.) Þú hefur allt í hendi þér, ekki eyðileggja það með því að vera of gagnrýninn á sjálfan þig. Njóttu lífsins og ekki einblína á smá- atriðin, þau skipta jú máli en stundum má alveg gleyma sér. Gaumgæfðu peningamálin betur og mettu verðmæti á öllum stigum ©Fiskamir (19. feb.-20. mars) Þér gengurvel í vinnunni og færð verðskuldað hrós. Rómantíkin blómstrar þessa dagana, annað hvort með núverandi elskhuga eða í nýju sambandi. Mundu að draumlyndi fisksins veldur oft vonbrigðum í lífinu og oft gott að tileinka sér raunsærri lífssýn á ýmsum svið- Hrútur (21. mars—19. april) Þú átt erfitt með að fara leynt með tilfinningar þínar, enda ekki þinn stíll. Hugsaðu betur um heilsuna, hvfldu þig vel og ekkl gleyma að borða. Daður og rómantík er í hápunkti um helgina. ©Nautið (20. april-20. maQ Vertu hreinskilinn við elskuna þína eða ástvin og ekki vera hrædd við að tala um tilfinningar þína. Ef þú gerir það ekki muntu sjá eftir því. Þú ert uppfullur af góðum ráðum og enda- lausri ást, nýttu þessa jákvæðu orku yfir helgina. ©Tvíburamir (21. maf-21. júnQ Gakktu hægt um gleðinnar dyr og ekki vera fljótfær. Það er oft gott að vera með skjót viðbrögð en þú skalt vera var um þig um helgina. Eitt er víst að rómantíkin svífur yfir um helgina og ef þú ert í sambandi mun það styrkjast. @Krabbi(21.júní-22.pO Haltu vel um veskið þessa dagana og ekki eyða peningunum í vitleysu um helgina því það mun koma í bakið á þér. Þú getur grætt á tá og fingri ef þú ferð að öllu með gát. Tækifærin eru allt um kring. Það eina sem þú þarft að gera er að rannsaka svolítið. Mundu að eyða tímanum með ástvinum, sá tími er ómótstæðilegur. ®Ljónið (23. júlf-22. ágúst) Taktu ráðleggingar sem þér berast til greina og mundu að hvíla þig. Það er nauðsynlegt að taka sér smá tíma fyrir sjálfan sig og hlusta á líkamann. Þú ert hamingjusamur, þú hefur ákveðið það og þannig verðurþað. Meyjan (23. ágúst-22. sept) t Settu þér takmark og fylgdu því eftir. Ekki gleyma þér á miðri |JS leið heldur komdu einhverju í verk. Hlustaðu á þína innri rödd um helgina því þú veist hvað þú ert að segja, það er bara þann- ig og það er bara svo einfalt. ©Vogin (23. sept-23. okt) Þegar þú ætlar að klára eitthvað þá gerir þú það með pompi og prakt. Hafðu það hugfast um helgina og mundu að þú gerir allt með stæl ef þú bara vilt það. Þú mátt samt ekki gleyma því að hafa gaman af hlutunum því þú veist að stundum er hægt að gera tvennt í einu. Ekki gleyma að stunda líkamsrækt, útivist eða gera eitthvað annað fyrir líkama og sál, þú átt það til að gleyma því. Sporðdreki (24. okt-21. nóv) Ósk þín mun bráðlega verða að raunveruleika og þú munt kynnast nýju fólki í leiðinni. Hafðu það hugfast að gefa ekki allt upp strax, oft er gott að vera svolítið dularfullur. íhugaðu málin vandlega og taktu síðan ákvörðun. © Bogmaður (21 nóv-21. des) Það gengur á ýmsu þessa dagana. Láttu nú hjartað ráða förinni og kannaðu málin til hlítar, þú munt ekki sjá eftir neinu. Vertu við stjórnvölinn um helgina og stattu með skoðunum þínum. I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.