Símablaðið - 01.05.1995, Side 27
Fréttir .. .
Körfubolti í
Stykkishólmi
Dagana 28. og 29. des. 1994 var haldin
firmakeppni í körfubolta á vegum körfu-
knattleiksdeildar Snæfells í Stykkishólmi.
Þar voru að sjálfsögðu mættir starfsmenn
Pósts og síma í Stykkishólmi og von var á
starfsmönnum Pósts og síma í Borgarnesi og
á Akranesi. En veður eru válynd og þegar
sameinað lið Stykkishólms, Borgarness og
Akraness átti að hefja leik voru þeir enn
ekki komnir.
Nú voru góð ráð dýr því við vorum aðeins
4 en inná spila 5 menn í einu. í hálfleik vor-
um við enn bara 4 og þeir ekki komnir svo
við fengum lánaðan mann með okkur. Fyrir
fram hafði enginn trú á því að við gætum
unnið án snillinganna • frá Borgarnesi og
Akranesi. Það er skemmst frá því að segja
að við unnum þennan leik með 6 stigum.
Þegar við vorum rétt búnir hringdi Beggi frá
Akranesi og sagði að þeir hefðu þurft að
snúa við vegna ófærðar, svo ekki gátum við
búist við þeim. (Þeir hljóta að segja frá þess-
ari svaðilför í blaðinu). Sömdum við nú við
Magnús að vera með okkur áfram. Þegar
upp var staðið höfðum við unnið alla leikina
með nokkrum mun. Alls tóku 10 lið þátt og
hlutum við 1. sæti. Fyrstir til að vinna
meistarana í 2 ár, og er verið að finna bik-
arnum stað í afgreiðslusal Pósts og síma í
Stykkishólmi.
Þátttökugjald í þessari keppni var kr.
12.000 og við höfum verið að reyna að fá
Póst og síma til að styrkja okkur, en enginn
virðist geta tekið ákvörðun um málið. Þeim
málum þyrfti að kippa í liðinn svo þeir, sem
hafa hug á að taka þátt í hinum ýmsu uppá-
komum geti leitað til einhvers ákveðins að-
ila innan fyrirtækisins.
Á meðfylgjandi mynd eru talið frá vinstri:
Jakob Þór, Magnús Kiddós, Jón Helgi
(Jonny Weekend), Gummi, og Leifur.
Með bestu kveðju, Leifur Þór Ingólfsson.
Skólahátíð
Árleg skólahátíð Póst og símaskólans var
haldin 2. febrúar s.l.
Alls sóttu 449 manns nám í skólanum.
Prófskírteini fengu 21. Kennarar og próf-
dómarar voru 51.
Skólinn gefur út námsvísi fyrir þá sem
hafa áhuga á námi í skólanum.
SÍMABLAÐIÐ 27