Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Page 6
„Stemningin var rosalega góð," segir Aldís
Fjóla Asgeirsdóttir, systir Guðmundar Magna
Ásgeirssonar sem fer nú á kostum í sjónvarps-
þættinum Rock Star: Supernova. Magni kemur
frá Borgarfirði eystri og er bullandi stemning í
bænum. Fjölmenni var mætt í Veitingasöluna
Fjarðarborg á þriðjudagskvöld þegar Magni
söng lagið Plush með Stone Temple Pilots.
„Það voru mættir hingað ferðamenn og nán-
asta fjölskyldan hans," segir Aldís en fjölskylda
Magna rekur veitingasöluna.
BRÓÐIR MAGNA VINSÆLL MEÐAL FERÐALANGA
Aldís segir hópinn hafa verið afar spenntan
yfir því að horfa á sinn mann. „Það var mikið
klappað þegar það var komið að honum að
syngja," segir hún. „Hingað hafa komið
göngu- og útreiðahópar sem hafa mjög gaman
af því að fylgjast með þessu. Bróðir minn og
Magna er að vinna sem leiðsögumaður uppi á
fjaili hérna og það voru tvær bandarískar kon-
ur sem voru æstar í að hitta hann. Þeim fannst
það mikill heiður og fengu að taka af sér mynd
með honum," segir Aldís og hlær. „Það koma
hingað ferðamenn og spyrja okkur hvort
Magni sé ekki örugglega héðan."
SÖNG EITTAF UPPÁHALDSLÖGUNUM
Aldís hefur að vonum mjög gaman af því að
sjá stóra bróður sinn syngja á sviðinu. Hún
segist ánægð með frammistöðu hans á þriðju-
dagskvöldið. „Já, ef ég tala fyrir mig, þá var ég
mjög sátt. Þetta er eitt af hans uppáldslögum
og hann kann það mjög vel," segir hún. Hún
segist þó full af blendnum tilfinningum yfir
þessu havaríi. „Maður vill endilega fá hann
heim en svo kýs maður hann eins og brjálaður
maður svo hann komi einmitt ekki heim," seg-
ir Aldís. „En annars er þetta alveg frábært fyrir
hann því hann hefur verið mikill aðdáandi
Jasons Newstead frá því hann var krakki. Það
er fyndið að sjá þá núna á sama stað. Þetta var
alveg ædolið hans í æsku," segir Aldís og bætir
við að Magni hafi veitt henni tónlistarlegt upp-
eldi sem stóri bróðir og kennt henni að hlusta
á almennilegt rokk.
FRÍ í UNGLINGAVINNUNNI
Það er án efa skrítin tilfinning að horfa á
einhvern svo nákominn manni syngja fyrir
milljónir áhorfenda. Aldís tekur undir það.
„Þetta er súrrealískt," segir hún. Hún segir
bróður sinn verða betri með hverjum þætti.
„Þetta er rosalega flott að mínu mati. Mér
finnst hann alltaf vera að sýna meira hvað
hann getur í raun og í gær [þriðjudag] stóð
hann sig mjög vel." Borgarfjörður eystri er
allur undirlagður og fylgjast bæjarbúar
spenntir með gengi Magna. „Það eru allir virk-
ir og mæta hérna á kvöldin og horfa með öll-
um. Það er gefið frí í unglingavinnunni fram
að hádegi daginn eftir þáttinn ef hann er langt
fram eftir. Það styðja hann allir," segir Aldfs.
soli@mirmsirkus.is