Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Blaðsíða 21
!
SÓDÓMA REYKIAVlK ER PRÓGRAMM SIRKUSS RVKFYRIR NÆSfU DAfiA. FYLfiDU ÞVÍ k LEIDINNITIL RJETTRAR HEILSU.
SENDU OKKUR PÓST MED ÁBENDIN6UM UM BRÁDNAUDSYNLE6A ATBURDINÆSTU HEL6ARÁ SODOMA@365.IS.
SE
FðSVUDAGUR 21. JÚLÍ
CAFÉOLIVER
Gamlar konur myndu taka handahlaup ef þær væru á Oliver í kvöld, því Jóhann Bé mun
þeyta skífum eins og vindhani.
HRESSÓ
Ef Hressingarskálinn stendur einhvern tímann undir nafni, þá er það í kvöld. Hin geysivin-
sæla hljómsveitTouch mun halda uppi stuði fyrrihluta kvölds og tekur Dj Johnny við af
þeim með miklum látum fram á rauðanótt.
HVERFISBARINN
Á föstudaginn verður partí sumarsins... og verður það auglýst síðar... þó skal benda á
að undarlegir hlutir munu gerast á Hverfis frá kl. 22 til miðnættis...
PRIHB
Franz og Kristó byrja kvöldið kl. 21 og spila til miðnættis en þá tekur Óli litli „hommaling-
ur" við eins og honum er einum lagið.
VEGAMÓT
Það verður ekki aðeins bongóblíða um helgina, heldur verða bongóslættir og bassabrjál-
æði í tónlistarsetti Dj Kára á Vegamótum á föstudaginn.
SÓLON
Dj Brynjar Már verður í eldheitum ham á föstudaginn. Veggir munu nötra og fólk mun
falla í danstransmaníu, svo mikið er víst.
NASA
Starfsfólk Nasa hefur ákveðið að slá á létta strengi eftir miklar annir og taka sér frí. Verður
Nasa því lokað föstudaginn 21.
CAFÉVKTOR
Trúbbamir Óli og Arnar trúbba þig upp á milli 23 og 01 á Cafe Victor og tekur Dj Jón Gestur
svo við af þeim og setur allt á annan endann.
kringlukrAin
Hljómsveitin Upplyfting verður með svo upplyftandi dansleik á Kringlukránni að fólk mun
aldrei geta hætt að dansal
(lAUGARPAGUR 22. JÚLÍ
VEGAMÓT
Laugardagskvöldið 22. júlí slær Vegamót upp mikilli veislu í portinu hjá sér frá kl. 21-23, í
samvinnu við Rokk og rósir, Elvis og Gyllta köttinn. Tilgangurinn er að fagna komu sumars
og sýna nýjustu strauma í „second hand" fatnaði. Nýja bandið Kenya Nemor kemur fram.
Dj B-Ruff sér um tónlistina fyrrihluta kvöldsins en svo um kl. 23 mæta Dj Dóri og Dj
Rampage til leiks ásamt Benna B-ruff og spila langt fram eftir nóttu.
CAFÉVICTOR
Dj Jón Gestur verður í snarbrjáluðum gír fram á eldrauðanótt. Vertu viss um að missa ekki
af stuðinu á Café Victor. Hlökkum til að sjá þig!
SÓLON
Rikki G hjálpar Brynjari Má á laugardaginn og sértil þess að dúndrandl bassinn hækkar
um helming og þeytir öllu sem fyrir verður um koll.
PRIKW
Dj Kvikindi hitar upp frá kl. 21-24 en svo mæta Dj Gísli Galdur og Addi Oliver trommari
með sjóðheitan seið frumskógarins.
HRESSÓ
Trúbadoratvíeykið Biggi og Dóri twistar með öllum tækjum og tólum fram eftir kvöldi á
Hressó, en Dj Johnny klárar kvöldið eins og honum einum er lagið.
CAFÉ OLIVER
Vertu viss um að taka hjartalyfin áður en þú finn-
ur þungan bassa Dj JBK dynja á þér hvað eftir
annað á Oliver. Ógleymanlegt stuð fyrirtauga-
kerfið.
NASA
Og starfsmenn Nasa eru enn að slá á létta
strengi og eru því líka í fríi laugardaginn 22.
júlí.
kringlukrAin
Ef þið fenguð ekki nóg kvöldið áður, mætið aft-
ur á Kringlukrána og látið dansvænar ballöður
Upplyftingar lyfta ykkur upp í hæstu hæðir.
a$g0M8s32£
DÁTINN
Dansveislan á Dátanum heldur áfram þessa helgina. Á fóstudaginn flippfloppar Dj Skari
tónlist fyrir skarann. Það verður opið á milli 00.00-04.00 og alls konar eitruð tilboð á
barnum sem ræna þig rænunni. Á laugardaginn er svo röðin komin að „DON" Grétari G og
Dj Djanna sem hafa ábyrgst að sprengja þakið af húsinu með hreinum hljóðmassa. Athug-
ið að þá er opið frá 01.00 til 04.00.
SIALLINN
Það ætlar alit um koll að falla á Sjallanum á laugardaginn. Auddi Blöndal fer á kostum í
leikritinu Typpatal, sem fræðir konur og karla á landsbyggðinni um leyndardóma snill-
ingsins - og karlkynið. Sýningar hefjast klukkan 22.00, en húsið verður opnað klukkan
21.00. Forsala miða er í Pennanum á Glerártorgi, miðaverð kr. 2.500.
Sama kvöld verður Djangódjasshátíð haldin í Grand finale í Sjallanum og hefst klukkan
21.00. Um er að ræða glæsilega stórtónleika með hljómsveitunum Mímósu frá Reykjavík,
Hrafnasparki frá Akureyri og Blue Brasil frá Þýskalandi, ásamt mörgum góðum gestum.
Miðaverðer kr. 3.000.
YELLO
Plötusnúðurinn Andri fremur vúdúíska danstöfra á fóstudaginn svo gestir verða sem dúkk-
ur í höndum þessa fingrafima stráks.
Fjörið endar aldrei á Yello því á laugardaginn kveikir Dj Atli á græjunum og þú munt ekki
muna neitt fyrr en daginn eftir.
SEYÐISFJÖRÐUR
Rosalegir RISAtónleikar verða haldnir á Seyðisfirði á laugardaginn á milli 17-23.30. Margar
frábærar hljómsveitir, eins og Ghostitigal, Ampop, Sometime og Jeff Who?