Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2006, Qupperneq 8
42 FÖSTUDACUR 6. OKTÓBER 2006
Sport PV
fagnar meö aðstoðarmönnunum
Táel Schumacher fagrtar hér slgrinum
,ír áíarnt fylgclarliöi sirni hjá Ferrari.
Þjóðverjinn Michael Schumacher er búinn að vinna upp 25 stiga
forskot Spánverjans Fernandos Alonso í síðustu sjö Formúlu 1
keppnum og þessir heimsmeistarar síðustu sex ára eru nú efstir
og jafnir þegar aðeins tveir kappakstrar eru eftir af tímabilinu.
Sigur Schumachers um síðustu helgi fer í sögubækurnar sem
einn sá glæsilegasti í manna minnum en hann vann sig upp úr 6.
sæti á ráslínu og sýndi og sannaði af hverju hann sé af flestum
talinn besti formúlu eitt ökumaður allra tíma. Síðustu tvær
keppnirnar eru í Japan um helgina og svo í Brasilíu eftir tvær vik-
ur og formúluáhugamenn fagna því væntanlega að loksins sé
eitthvað undir í þessum tveimur síðustu kappökstrum sem oft
hafa aðeins verið formsatriði til að klára undanfarin tímabil.
„Hafði ég gaman af þessu, já það
hafði ég," sagði Michael Schumadier í
léttum tón eftir sigurinn í Kína um síð-
ustu helgi. Það var ekki að sjá að hann
væri orðinn 37 ára gamall og áratug
eldri en hans heism keppinautar. „Nú
eigum við bara tvo kappakstra eftir til
að útkijá það hver verður heimsmeist-
ari. Þetta verður mjög speimandi og
ég bíð með mikifli eftirvæntingu," seg-
ir Schumacher sem er að reyna að
vinna sinn áttunda heimsmeistaratit-
if. Sigurinn í Kína var hans 91. á ferlin-
um og sá sjöundi á þessu tímabili sem
kemur honum upp í efsta sætið þó svo
að hann og Alonso séu jafnir að stig-
um. Alonso hefur „aðeins" unnið sex
keppnir og skipar því annað sætið.
Þetta er í fyrsta sinn síðan að Schuma-
cher varð heimsmeistari árið 2004 að
hann er í toppsætinu.
Vann í fyrsta sinn í Kína
„Af síðustu þremur keppnum
þá var það keppnin í Kína sem hef-
ur valdið mér mestu vandræðum
undanfarin ár og því var erfitt að sjá
fyrir hvernig þetta kæmi út," sagði
Schumacher sem vann í fyrsta sinn
í Kína á ferlinum. „Næstu keppnir
eru betri fyrir okkur og nú verða bara
allir að senda okkur góðar hugsanir
og þá náum við að klára þetta," bætti
Þjóðverjinn við. Hann hefur unnið
flmm af síðustu sjö kappökstrum og
25 stiga forskot ÁJonsos (eftir kapp-
aksturinn í Kanada 25. júní) er orð-
ið að engu.
Missti flöskuna
Það var kannski dæmigert fyr-
ir gengi Spánverjans Femandos
Alonso að undanfömu að hann
missti stóru kampavínsflöskuna
sem hann fékk fyrir annað sæt-
ið og hún smassaðist fyrir framan
viðgerða- og þjónustumenn hans.
Alonso sem var á öruggri leið með
að vinna sinn annan heimsmeist-
aratitil í röð hefur þurft að horfa
upp á gamla refinn nálgast hægt og
rólega án þess að eiga svör. Það leit
allt vel út um síðustu helgi, hann var
fyrstur á ráspalli og leiddi fyrstu 30
hringi kappakstursins. Eftir þjón-
ustuhlé var eins og hann missti takt-
inn og 20 sekúndna forustan var fyrr
en varði orðin að engu. Schuma-
cher geystist ffam úr honum og kór-
ónaði einstaklega glæsilegan akstur
með því að koma fyrstur í mark eft-
ir að hafa byrjað sex sætum aftar á
ráspólnum.
Elstur en ekki sá hægasi
„Ég er elsti ökumaðurinn og ég
kann bara ágætlega við það, því sem
betur fer er ég ekki sá hægasti. Þeg-
ar maður lítur til baka þá er ekki
hægt að segja að það sé lítið krafta-
verk að við séum komnir í þessa
stöðu," sagði Schumacher að lokum.
Keppnin um helgina fer fram í Jap-
an aðfaranótt sunnudags og það er
ljóst að formúluáhugamenn munu
sitja límdir fyrir framan skjáinn enda
langþráð spenna komin í baráttuna
um heimsmeistaratitilinn.
Fernando Alonso
Michael Schumacher
RENAULT
epran
sportbar.is
BOLTINN I BEINNI
VEISLUSALUR
afmæli, stcggir / gæsir og einkasamkvæmi
POOL & SNOKERr
Jafnaseli og Hverfisgötu
m