Nýr Stormur


Nýr Stormur - 03.03.1967, Blaðsíða 3

Nýr Stormur - 03.03.1967, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 3. marz 1967 4tewwi 3 hefir ekki meiri hljómgrunn með þjóðinni en það, að heill stjórnmálaflokkur, sem um stund var í uppgangi og hafði á að skipa mörgum góðum mönnum, sem meintu það sem þeir voru að segja logn- aðist út af og hin svokölluðu „samtök hcrnámsandstæð- inga“, sem heilmikið hafa bramboltað á undanförnum árum, eru nú að deyja úr leiðindum og taka það helzt til ráða að reyna að hressa upp á skemmtanalíf höfuð- borgarinnar og er það fyrir- taks verkefni og samtökunum til sóma. Það er hinsvegar staðreynd að herinn á Miðnesheiði og í Hvalfirði situr sem fastast og niun sitja hér svo lengi, sem yfirboðurum hans sýnist. Þótt Einar Olgeirsson og Bjarni Benediktsson rífist og beri hverjum öðrum svik og sakir á brýn, þá tekur enginn heilvita maður mark á slíku og allra sízt þeirra, er hlut eiga að máli, en það eru stór- veldin í Atlandshafsbandalag inu. Islenzkur Framsóknarher er áreiðanlega engin lausn á her frseðilegum vandamálum bandalagsins. Engum dettur nú í hug, að taka mark á þvættingi þeim, sem kommúnistar / og and- kommúnistar hafa frammi um að Rússar og Bandaríkja- hienn séu í árásarhug gagn- vart hvorum öðrum. Hinir fjölmennu og vígreifu gulu menn, sem nú ógna hvíta kynstofninum, fá Rússum og Bandaríkjamönnum annað um að hugsa, en að troða hver öðrum um tær. íslendingar verða að sætta sig við orðinn hlut. Herinn fer í brott, þegar það hentar þeim, sem hafa hann hér. Menn vona að sjálfsögðu að það verði sem fyrst. Þátttaka íslands í Atlants- hafsbandalaginu er hreinn skrípaleikur, til þess eins að „kamofera“ herstöðvar banda lagsins á íslandi. Það verður aldrei á ísland ráðist, sem slíkt, en það geta vel orðið orrustur um stöðv- ar á íslandi. íslendingar geta engin áhrif haft á heimsmál- in og þeir verða þolendur en ekki gjörendur ef styrjöld skellur á. Þetta er sú eina staðreynd, sem máli skiptir. Hitt er svo annað mál, að landsmenn geta hæglega gert sér það til dundurs, að rífast og skamm- ast um herstöðvar, varnarlið, friðarvilja og heimsvalda- stefnu. Það skaðar engan og allra sízt unga fólkið. Ný gengislækkun Framh. af bls. 1. Allir áttu að græða á þessum gengisfellingum. Ríkið í auknum tolltckjum, Tilkynning frá Húsnæðismálastofnun ríkisins Húsnæðismálastofnun ríkisins vill hér með benda umsækjendum/væntanlegum umsækjendum um 1- búðarlán á neðangreind atriði : 1. Einstaklmgar og sveitarfélög, sem hyggjast hefja byggingu íbúða á árinu 1967 svo og einstakling- ar, sem ætla að festa kaup á íbúðum, og sem koma vilja til greina við veitingu lánsloforða húsnæðismálastjórnar árið 1967, sbr. 7. gr. A., laga nr 19/1965 um Húsnæðismálastofnun rík- isins skulu senda umsóknir sínar. ásamt til- skildum gögnum og vottorðum, til Húsnæðis- málastofnunar ríkisins eigi síðar en 15. marz 1967. Umsóknir, sem síðar kunna að berast, verða ekki teknar til greina við veitingu láns- loforða á árinu 1967. 2. Þeir. sem þegar eiga umsóknir hjá Húsnæðis- málastofnuninni og fengið hafa skriflega viður- kenningu fyrir. að umsókn beirra sé lánshæf. þurfa ekki að endurnýja umsóknir 3 Umsóknir un viðbótarlán verða að hafa borizt stofnuninni eigi síðar en 15 marz n.k. Húsnæðismálastofnun ríkisins atvinnuvegirnir sem nú fengu sannvirði vöru sinn- ar grcidda og síðast en ekki síst, græddu þeir, er gátu látið verðlitla krónu, greiða verðmiklar skuldir. Hinar auknu tolltekjur voru ekki nema að mjög litlu leiti notaðar til að leið rétta löngu úrelta og snar vitlausa skattalöggjöf. Hins vegar tóku útgjöld ríkisins risaskref upp á við og fjár festingu voru engin tak- mörk sett, sem hafði svo uppboð á vinnuafli í för með sér. Verðbólgan marséraði á- fram hömlulaust og ríkis- stjórnin undi sér vel í veizl um og tilliboðum, innan- lands og utan. Einn góðan veðurdag vakna svo hinir sofandi sauðir í ríkisstjórninni upp við vondan draum. Gengið er fallið á nýjan leik. Hver útflutningskróna er seld á margföWu verði í innflutn- ingnum, en útflutningsat- vinnuvegirnir fá ekki nema hluta af rekstrarkostnaði sínum, með hinu skráða gengi. En nú eru góð ráð dýr. Kosningar eru framundan og almenningur man alltof vel mistökin í sambandi við síðustu gengisfellingu. Rit frelsi og málfrelsi er í land inu og lygin, blekkingar eru ekki nógu vel klæddar til þess að unnt sé að treysta því, að fólkið trúi áfram þeim, sem á svo lirapalcgan hátt sviku það. Þess vegna er frestað að grípa til þcirra ráða, sem óhjákvæmilega hljóta. að vera framundan — þangað til eftir kosningar. Manndómurinn er ekki meiri en svo, að ríkisstjórn in segist ætla að greiða milljóna hundruð á árinu, án þess að hækka skatta, eða tilkynna hvar hún ætli að fá þetta fé. Sannleikurinn er sá, að þessar millifærzlur eru ná kvæmlega sama eðlis og vit leysan fyrir síðustu geng- isfellingu. Bátagjaldeyrir og fleira. Greiðslurnar eru falskar, því að þær eru teknar á ná kvæmlega sama hátt. Með álagi í útflutningskrónuna og gildir einu í hvaða mynd það álag er. Þetta verður að sjálf- sögðu lciðrétt EFTIR kosn ingar og gildir einu hvað ríkisstjórn tekur við völd- um. Enn einu sinni fer ís- lenzk ríkisstjórn í spor gjaldkerans, sem reynir að fela sjóðþurrðina í lengstu lög — en það kemur allt- af að skuldadögunum. T ilkynmng um affstöðugjald í Reykjavík Ákveðiö er að innheimta í Reykjavík aöstööugjald á árinu 1967 samkvæmt heimild í III. kafla laga nr. 51/1964 um tekjustofna sveitarfélaga og reglu- gerð nr. 81/1962 um aðstöðugjald- Hefur borg- arstjórn ákveðið eftirfarandi gjaldskrá: 0,S% Rekstur fiskiskipa og flugvéla. Matvöruverzlun ( smá- sölu. Kaffi, sykur og kornvara til manneidis f heildsölu. Kjöt- og fiskiðnaður. Endurtryggingar. 1,0% Rekstur farþega- og farmskipa. Sérleyfisbifreiðir. Mat- sala. Landbúnaður. Vátryggingar ót. a. Útgáfustarfseml. Útgáfa dagblaða er þá undanþegin aðstöðugjaldi. Verzl- un ót.a. Iðnaður ót.a. 1,5% Sælgætis- og efnagerðir, öl- og gosdrykkjagerðir, gull- og silfursmiði, hattasaumur, rakara- og hárgreiðslustof- ur, leirkerasmlði, Ijósmyndun, myndskurður. Verzlun með gleraugu, kvenhatta, sportvörur, hljóðfæri, snyrti- og hreinlætisvörur. Lyfjaverzlun. Kvikmyndahús. Fjöl- ritun. 2,0% Skartgripa- og skrautmunaverzlun, söluturnar, tóbaks- og sælgætisverzlun, blómaverzlun, umboðsverzlun, minja- gripaverzlun. Listmunagerð. Barar. Billjarðstofur. Por- sónuleg þjónusta. Ennfremur hvers konar önnur gjaid- skyld starfsemi ót.a. Meö skírskotun til framangreindra laga og reglu- gerðar er ennfremur vakin athygli á eftirfarandi: 1. „Þeir, sem ekki eru framtalsskyldir til tekju- og eignarskatts, en eru aðstöðugjaldsskyldir, þurfa að senda skattstjóra sér- stakt framtal til aðstöðugjalds, sbr. 14. gr. reglugerðarinn- ar. 2. Þeir, sem framtalsskyldir eru f Reykjavik, en hafa með höndum aðstöðugjaldsskylda starfsemi í öðrum sveitar- félögum, þurfa að senda skattstjóranum í Reykjavík, sund- urliðun, er sýni, hvað af útgjöldum þeirra er bundið þeirri starfsemi, sbr. ákvæði 8. gr. reglugerðarinnar. 3. Þeir, sem framtalsskyldir eru utan Reykjavíkur, en hafa með höndum aðstöðugjaldsskylda starfsemi í Reykjavík, þurfa að skila til skattstjórans i því umdæmi, þar sem þelr eru heimilisfastir yfirlit um útgjöld sín vegna starf- seminnar I Reykjavik. 4. Þeir, sem margþætta atvinnu reka, þannig að útgjöld þeirra teljast til fleiri en eins gjaldflokks, samkvæmt of- angreindri gjaldskrá, þurfa að senda fullnægjandi qreinar- gerð um, hvað af útgjöldunum tilheyrir hverjum einstök- um gjaldflokki, sbr. 7. gr. regiugerðarinnar. Framangreind gögn ber að senda til skattstjóra fyrir 15. marz n.k., að öðrum kosti verður að- stöðugjaldið, svo og skipting í gjaldflokka áætlað eða aðilum gert að greiða aöstöðugjald af öllum útgjöldum skv. þeim gjaldflokki, sem hæstur er. SKATTSTJÖRINN I REYKJAVÍK Reykjavik, 28. febrúar 1967.

x

Nýr Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.