Nýr Stormur


Nýr Stormur - 03.03.1967, Page 4

Nýr Stormur - 03.03.1967, Page 4
4 ^RMUR FÖSTUDAGUR 3. marz 1967 Leiðarahöfundar Morgun- blaðsins ráða sér ekki fyrir fögnuði yfir skýrslu, sem „Framfara- og efnahagsstofn- unin“ í París hefir birt um efnahagsástand nokkurra með limaríkja sinna, eins og það er orðað. Þar kemur í ljós, að fjárfesting er meiri á mann á íslandi, en í nokkru öðru meðlimaríki þessarar stofnun ar. Þetta er ekki dónalegur vitnisburður um dugnað Is- lendinga og að sjálfsögðu slær höfundur því föstu að þetta sé hinni frábæru ríkisstjórn Bjarna formanns að þakka. Þar kemur og í ljós að Bandaríkjamenn eru eyðslu- samastir, næstir koma Kanada menn og íslendingar. Þessi lönd eru líka næst Bandaríkj unum í þjóðarframleiðslu, en síðan koma Svíþjóð og Sviss. Væntanlega hækkar hagur Sviss eitthvað þegar þeir fara að framleiða ál á íslandi og fer vel á því að þessi auðug- ustu lönd heims hjálpi hvert öðru. Niðurstaðan er svo sú, að undir stjórn Bjarna formanns hafa orðið „glæsilegur árang- ur“ og frekari „sannanna“ þurfi ekki við! Fólkið á ís- ' landi lifir við háþróuð kjör, lofaður sé Bjarni formaður og hugsanir hans og þjóðin er orðin svo mótuð af hugs- unum hans og dugnaði, að hún hefir í rauninni farið langt fram úr þessum þjóð- um að tiltölu við mannfjölda og ekki nóg með það. Vinnu- semi og dugnaðurinn er svo mikill, að hér á landi láta menn sér ekki nægja þann vinnutíma, sem fyrrnefndar þjóðir eru að bauka við. Þar er ekki unnið nema 40—44 stundir á viku — en á ís- landi? Það mun vera 192 klukku- stundir í vikunni og hvern fj.... sjálfan hefir líka fólk að. gera við um 150 klukku- stunda frí á viku! Ætli það sé ekki nóg að það slæpist í 110 til 120 stundir viulega? Auðvitað er þetta hin sanna velmegun. Vinnan og gleði sú er henni á að fylgja er hin mikla fullnæging lífsins og því ættu menn að vera að neita sér um þessa fullnæg- ingu. Það er hlægileg fjarstæða að vera „gugta“ við vinnu að- eins í 8 tíma á dag svo að maður tali nú ekki um, ef það færi nú ofan í 40 stundir á viku. Það samrýmist ekki hugsun um Bjarna formanns. Það er því hámark ósvífninnar af leið arahöfundinum, að taka það ekki fram, sem þessari efna- hagsstofnun láðist, að íslend- irigar standa langtum framar öllum þessum þjóðum í vinnu- semi. Þeir geta nefnilega ekki slitið sig frá vinnunni í allt að 12—14 tíma á sólarhring! Það skiptir auðvitað ekki máli, að þótt afköstin séu eitt hvað hlutfallslega minni en hjá hinum þjóðunum pr. klst. Það er hugsunarhátturinn fyrst og fremst sem máli skipt ir. Það er þessi „glæsilegi ár- angur“ sem hugsanir Bjarna formanns hafa skapað og þær munu fleyta þjóðinni áfram á vegi farsældar og heilla um ókomin ár. Hugsað hátt og byggja stórt! Mikil var sú Guðs blessuð mildi, að Sjálfstæðisflokkur- inn skyldi ekki missa meiri- hlutann í borgarstjórn 1 vor. Hugsið ykkur ef bannsettir kommúnistarnir og hálfkomm únistarnir í framsókn hefðu nú getað ráðið því, að bless- að framfarafólkið í landinu hefði nú ekki getað byggt sér 250 ferm. íbúðir, nema með sérstöku leyfi. Geir borgar- stjqri nær varla andanum fyr ir klökkva, þegar hann hugs- ar til þess, að þessar elsku- legu fjölskyldur, sem væru tilbúnar til að neita sér um allt annað, til þess að koma sér upp „viðunandi“ húsnæði, væru hindraðar í slíku. Þessir herjans Stalíns út- sendarar eins og Einar Ágústs son og Guðmundur Vigfússon voga sér að ætla að fara að setja höft á guðs útvalda fólk. Nei, ó-ekkí. Það skal aldrei verða! Fossvogurinn okkar skal sko aldrei verða neinn lúsa- blesastaður. Það er nóg að hafa kirkjugarðinn þarna, lágkúrlegan o gsem minnir á — jæja, við skulum sleppa Hann er nú að verða full- setinn og það verður að vera eitthvað hinum meginn, sem minnir á lífið, já á hið ljúfa líf, er minnir á manndóm og þor hins frjálsborna fólks, sem kýs borgarstjórnarmeiri- hlutann í Reykjavík, á hverju sem gengur. Ekki á öreigaskríl Guð- mundar kommúnista, eða sveitalubba Einars framsókn armanns. Þetta má heldur alls ekki minna á „hið ill- ræmda fjárhagsráð“ segir ,,„Staksteina“ (gallsteina) höf undurinn og stiklar nú heldur betur á staksteinunum. Og þeir eru venju fremur hál- ir og egghvassir. Æ, það get- ur stundúm verið svo erfitt að vera ungur og hafa ekki les ið sér til um það, sem liðið er eða að vera gamall og gleyminn og muna ekki horfna dýrð: Þegar Sjálfstæð- isflokkurinn myndaði nýsköp unarstjórnin^ árið 1946 og stofnaði „hið illræmda fjár- hagsráð.“ Þá hvæsti Framsóknardel- arnir eins og grimmir kettir að hinu nýskipaða Fjárhags- ráði og formanni þess Magn- úsi Jónssyni alþingismanni, en kommúnistar, Alþýðuflokk urinn og Sjálfstæðismenn dönsuðu Óla skanz í kringum þessa nýju Búkollu sína. Það er engu líkar en að greindarvísitala stjórnmála- skriffinna Morgunblaðsins hafi færst í öfugu hlutfalli við vísitölu framfærslukostnaðar á viðreisnartímabilinu. ílla innrættur götustrákur! Svo illa er nú komið fyrir hinu virðulega Alþingi, að fréttir þaðan vekja heldur litla athygli. Þingfréttir dag- blaðanna eru fremur dálka- fyllir en fréttamatur og þeir eru ekki ýkjamargir sem lesa þær að staðaldri. Það er þó ekki vegna þess að þingmenn séu einhverjir undirmálsmenn, síður en svo. Hitt mun sönnu nær, að stjórnmálaflokkarnir hafa í raun og veru gert Alþingi á- hrifalaust. Alþingi er í raun- inni orðið að stofnun, sem hefir því eina hlutverki að gegna, að fylla út í ramma lýðræðisskipulagsins og það stjórnarform, sem við búum við. Ráðum er ráðið UTAN þingsalanna, en ekki innan. Það eru ekki fyrst og fremst núverandi stjórnarflokkar, sem hafa komið þessari skip- un á, heldur eru þar allir flokkar samsekir um. Þá heyrir til undantekn- inga ef þingmenn snúa af sér handjárn, sem hnýtt eru við úlnlið forystumanna stjórn- málaflokkanna. Þingmennirnir afsala sér í raun og veru þeim völdum, sem kjósendur hafa fengið þeim, um leið og þeir velja fáðherra í ríkisstjórn og þeir velja í rauninni ekki ráðherr- ána nema að nafninu til. Það eru innstu ráð flokkanna, sem því ráða og þar ráða miklu menn, sem ekki eiga einu sinni sæti á þingi. Það er því dálítið skemmti- legt og ber alltof sjaldan við, þegar þingmenn taka upp á einhverju af sjálfsdáðum. Þetta hefir nú borið við og er Skúli Guðmundsson upp- hafsmaðurinn að einhverri skemmtilegustu deilu, sem upp hefir komið í þingsölun- um um langan aldur. Skúli er einn af mikilhæf- ustu mönnum þingsins. Hann er fluggreindur, mikill bar- áttumaður og ekki myrkur í máli. Hann er góður hagyrð- ingur og lætur fjúka 1 kviðl- ingum. Húnvetningurinn kem ur stundum upp í honum og er hann þá ekkert lamb við að leika. Alþingi missti svip, þegar annar Húnvetningur hvarf af þingi, en það var Jón Pálmason. Hann hefði vafa- laust stutt þennan sýslunga sinn, því að Húnvetningar eru yfirleitt ekki gefnir fyrir prjál. Það er sem sé fálkaorðan, sem nú verður fyrir spjótum Skúla. Þessi orða er að sjálf- sögðu meinlaust grín og það er þetta líka hjá Skúla. Því skyldi fyrirfólkið í land inu ekki mega dunda sér við þennan hágóma, sem kostar sáralítið. Því finnst svo ein- staklega gaman að því að hefja þetta utan á sig. Það er svo sætt í selskap að hafa orðu. Verðleikar skipta hvort eð er ekki máli á íslandi leng ur. Það gildir aðeins að vera í vissum „kreds.“ En þessi skrípalæti Skúla koma dálítið við hjartað í hé- gómleikanum og landsfaðir- inn verður að fara á stúfana til að vernda fólkið sitt. Og hann dembir á hinn aldna þingmann sögunni um refinn, sem ekki náði vínberj unum, sætti sig við orðinn hlut, með því að segja að þau þæru súr. Að sjálfsögðu veit landsfað- irinn betur. Að hans áliti eru þau ekki súr. Sjálfur er hann heiðursdoktor og stendur að baki Gylfa. Ekki er það þess vegna að hann hefði ekki get- að orðið doktor í lögum, en hann hefir haft öðru að sinna. Eitt sinn var landsþekktur rithöfundur gerður að heið- ursprófessor. Það var hlegið um allt land. Hann henti titl- inum, vegna fánýti hans. Það gerir Bjarni formaður ekki. Því ekki að heiðra ráðherra frúrnar fyrir að vera rekkju nautar manna sinna, hugsa Framh. á 5. síðu irá Mjólkurhði Flfiamanna Sellossi fyrst um sinn verfinr pessi osturaðeins fðaniegur í Osta-og smjðrbúffinn) Snerrahraut 54 Osta-og smjnrsalan s.f.

x

Nýr Stormur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.