Nýr Stormur


Nýr Stormur - 03.03.1967, Qupperneq 8

Nýr Stormur - 03.03.1967, Qupperneq 8
8 HlFiO*MUU FÖSTUDAGUR 3. marz 1967 Þótt margt ömurlegt hafi verið ritað um fégimd og á- gengi manna við náunga sinn og ótal bellibrögð til að hafa fé af mönnum með svikum og þjófnaði, er þó fátt ömurlegra en þégar börn rífast um reitur foreldra sinna, að þeim látn- um. Það er léleg manngerð, sem leggur sig niður við að svíkja systkini sín um arfahlut og ásaelast meir en honum ber. Um þetta eru þó fjöldamarg- ar sagnir; slíkir atburðir hafa orðið skáldum yrkisefni, er þau reyna að lýsa hinum verri eiginleikum mannsins. Hitt er þó enn verra, er böm ræna foreldra sína, eða hafa út úr þeim fé, í þeim til- gangi að verða á undan systk- inum sínum og svíkja þannig af þeim réttmætann arf. Saga sú, er nú verður sögð, lýsir einum siíkum manni, ef mann skyldi kalla, sem gerði sig sekan um óheyrilegan fantaskap á föður sínum hel- sjúkum. Faðir þessa manns var þekktur borgari hér í bæ, en missti heilsu fyrir nokkmm árum og er nú látinn. Eftir að hann missti heilsuna, hélt dótt ir hans áfram atvinnurekstri hans og lét hann fylgjast með, eftir mætti. Hann átti þó erfitt um vik, þar sem hann var lamaður og gat hvorki hreyft sig eða mátti mæla. Hann átti nokkurt reiðufé í sparisjóðsbók og mun dóttirin hafa fengið hjá honum bókina eftir hendinni og tekið út úr henni fé í reksturinn og lagt inn í hana eftir hendinni. Mun gamli maðurinn á þann hátt hafa fylgst með rekstrinum og mun það hafa verið hon.um afþrey ing í þungri legu. Eitt sinn er dóttir hans kom í heimsókn til hans, sá hún að honum lá eitthvað sérstakt á hjarta. Reyndist honum erf- itt að gera sig skiljanlegan en þó mun hún hafa komizt að raun um að eitthvað væri það í sambandi við sparisjóðsbók- ina, sem hann hafði með hönd um. Er hún leitaði að sparisjóðs- bókinni, þar sem hann var vanur að geyma hana, var hún horfin. Mun hún hafa komist eftir því hjá gamla manninum að bróður hennar og sonur hans hefði komið í heimsókn og tekið bókina. Við nánari eftirgrennzlan kom í ljós að það var rétt. í bókinni var ailvæn upphæð, eða 480 þúsund krónur. Hafði bróðirinn tekið alla upphæðina út úr bókinni og stungið í eigin vasa. Mun hann síðan hafa leitað til lögfræð- ings hér í borginni og sagt honum frá verknaði sínum og beðið hann ráða. Lögfræðing- ingnum skýrði hann svo frá, að hann hefði sjálfur átt þessa peninga hjá föður sínum og ekki er kunnugt um hvað lög fræðingurinn ráðlagði honum. Síðar kom systir ræningjans að máli við lögfræðinginn og skýrði honum frá málavöxt- um og mun honum hafa fallið allur ketill 1 eld. Systirin og bróðir hennar og ræningjans munu reyna Frahald á 5. síðu Er það rétt að leysa eigi „Vestfjarða- Iúsina“ með því að Þorvaldur Garðar eigi að fá Landsbankastjórastöðu í staðinn fyrir þingsætið, þegar Pétur Ben. fer í Seðlabankann til að taka við yfirstjórn allra peningamála á ís- landi?!!! ^uiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiuiiii 111111111111 miiiiiiiiiiiiiiiiiiui iii ii iiiiiiiiiu ii iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiifiiiiiiiiiiiiliiiniiuiiiityiliiiii,^ ÍSOTT FÓLK OG HREKKJALIMIRj Grósserinn: — Af hverjn fáið ])ér yður ekki atvinnu, maður? Sjáið mig, ég byrjaði fyrir inn- an diskinn! Hakkarinn: — Það voru aðrir tímar þá. Nú eruð þér komnir mcð stimpilkassa. ALBERT ENGSTRÖM ÝMSOM ÁTTUM ••s-K-i-iHi-tHtSsasiKHSssssssnássaK®! Það nýjasta sem við höfum heyrt um húsaleiguokrið, er að einbýlishús í Arnar- hrauni er boðið til leigu fyrir litlar 15.000 — fimmtán þúsund krónur á mánuði — og allt fyrirfram — eða 180.000 krónur! Framtaksamur bifreiðakennari hefur tek- ið sig til og hafið námskeið í meðferð bif- reiða fyrir almenning. Þarna er um nýjung að ræða á íslandi, sem vafalítið á erindi til allra bifreiðaeigenda. Harðnandi sam- keppni í bifreiðasölu, ætti að opna augu umboðanna fyrir sölugildi slíks námskeiðs fyrir sérhverja tegund bifreiða. — Það mætti vel segja okkur, að til dæmis Opelinn rynni út ef væntanlegum kaup anda 'væri boðið upp á frítt námskeið í með- ferð bifreiðarinnar. En þetta kostar pen- ing — hagsýnin er ekki til staðar — og því er vart að búast við slíkri þjónustu hér- lendis. Þær eru margvíslegar aðferðirnar, sem hin einstöku bæjarfélög hafa til að afla tekna. Ein sú sniðugasta, sem við höfum heyrt, er frá Kópavogi. Þar er nýtekin til starfa nætursala á benzíni o. fl. efst á Kópavogshálsi. Svo hagar til, að bílastæði eru ekki fyrir nema 2—3 bíla, en margir vilja verzla um nætur í Kópavogi. Bílaeig- endur hafa engin önnur ráð en að stanza á þjóðveginum og bíða eftir að röðin kom að þeim. Myndast þarna ástundum röð bíla sem allir eru í órétti, því bannað er að stanza þarna á veginum. Lögreglan í Kópa- vogi hefur ærin verkefni við að kæra þessa bifreiðaeigendur, enda hækkar óðum sjóð- ur kaupstaðarins. Álitamál er, hvor græðir meira, nætursölueigandinn eða bæjarsjóð- ur fyrir sektir bíleiganda. — En víst er um það, að nætursalan fær að starfa áfram, enda borgar hún óbeint tvöfaldan skatt! Þá hefur aflakóngur Hafnfirðinga á tog- aranum Maí fengið gullið tækifæri frá ná- grönnum okkar Englendingum. Þeir bjóða honum þvílík kostakjör, að einna helzt minn ir á kvikmyndastjörnukauptilboð. Þetta sýn ir okkur, að fylgst er vel með því sem ger- ist á íslandi, og erlendar þjóðir eru óspar- ar á boð í afburðamenn. Merkilegt má þó teljast, að enginn íslenzkur stjórnmálamað- ur — eða fjármálasnillingur — skuli ekki fá slík boð öðruhverju. Ekki höfum við heyrt um eitt einasta. Þó má vel vera, að yfirmenn Mafíunnar í USA hafi augastað á bíssnesmönnum okkar, enda er Mafían ekki fyrir að rjúka í blöðin undir slíkum kringumstæðum. Margt er skrítið í.... Er það satt, að Áki Jakobsson þafi í undirbúningi Óháð- an framboðslista? Að Sigurður Magnússon í Kaupmanna- samtökunum skipi annað sætið? Að Friðrik Jörgensen verði boðið það þriðja? — Mun listinn stefna að: 1) afnámi skattalögrcglunnar 2) banni við „guiri pressu“ 3) eðlilegum viðskiptaháttum.

x

Nýr Stormur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.