Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2006, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2006
Fréttir DV
Glæsilegu íslensku kvikmyndaári er um það bil að ljúka en íslenskar kvikmyndir hafa gert það gott á árinu
bæði hér heima og erlendis. Landsmenn eru aftur farnir að sækja islenskt bíó og er aðsóknarmet Mýrarinnar
gott dæmi um það. Þessu frábæra kvikmyndaári lýkur með frumsýningu á spennumyndinni Kaldri slóð í lok
mánaðarins.
Elva Ósk Ólafsdóttir, Helgi Björnsson, Tómas Lemarquis og Hjalti Rögnvaldsson Leikararnireru allirsammála um að vinnan viðKalda
slóð hafi verið einkar skemmtíleg upplifun og bíða spenntír eftír frumsýningunni.
Mikil eftirvæntíng ríkir nú hj á kvik-
myndaáhugamönnum enda styttíst
óðum í frumsýningu á spennumynd
Björns Brynjúlfs Björnssonar Kaldri
slóð. Myndin segir frá rannsóknar-
blaðamanninum Baldri, sem Þröst-
ur Leó Gunnarsson leikur og eltíng-
arleik hans við sannleikann kringum
dauðsfall í afskekktri virkjun á há-
lendinu. Baldur kemst þar á snoðir
um ýmis leyndarmál, sem verður til
þess að líf hans er í hættu.
Leikarahópurinn, sem tók þátt
í myndinni er í dag tvístraður um
allar jarðir og menn farnir til vinnu
við önnur verkefni. DV náði tali af
nokkrum þeirra og spurði þá um að-
komu þeirra að myndinni. Tómas
Lemarquis, sem lék Nóa albínóa af
miklum glæsibrag, leikur Sigga, ung-
an mann sem vinnur í virkjuninni.
„Mér fannst afar skemmtilegt
að taka þátt í þessu verkefni enda
frábær hópur sem ég var að vinna
með. Það var líka gaman að vinna
svona „location"-mynd og vera ekki
í stúdíói. Ég fékk að vera með hár og
allt en veit varla hvort þetta er stórt
hlutverk því ég hef ekkert séð enn-
þá. Maður veit ekkert hvemig mynd-
in er klippt. Hins vegar skilst mér að
allir séu í skýjunum með myndina.
Ég hef verið í Þýskalandi undanfarið
að undirbúa mig fyrir lúxemborgsk-
svissneska mynd sem ég er að fara
að leika í eftír áramót og svo í gymm-
inu vegna franskrar myndar seinna á
árinu en í augnablikinu hlakka ég til
að sjá þessa mynd," sagði Tómas.
Missir af frumsýningunni
Hjalti Rögnvaldsson, sem er um
þessar mundir staddur í Sala í Sví-
þjóð, leikur Pétur, stöðvarstjórann í
virkjuninni.
„Vinnan við þessa mynd gekk
mjög vel en ég var mest í þægilegri
innivinnu eins og Flosi Ólafsson
kallar það. Mér líkaði ágætlega við
minn karakter eins og við alla vonda
menn. En eins og þú veist þá er þetta
spennumynd og ef maður tekur ofan
hattínn þá íjúka hárin. Ég hef reynd-
ar lítíð séð nema nokkra búta sem
þurfti að hljóðvinna og því miður
kemst ég ekki heim í frumsýning-
una. Ég hef verið hér útí í Svíþjóð í
leyfi frá Þjóðleikhúsinu við þýðingar
bæði á leikritum og skáldsögum en
reikna með að fara aftur í leikhúsið í
haust," sagði Hjaltí
Þröstur Leó, Elva Ósk og Lars Brygman Danski stórleikarinn sésthéraö baki aðalleikurun-
um illa aöþrengdum.
Á leið heim í jólafrí
Helgi Björnsson leikari var
staddur í Berlín þegar DV náði tali
af honum en hann rekur þar hið
fornfræga leikhús Admiralspalast
ásamt Jóni Tryggvasyni og hafa
þeir mikið umleikis. Þrjú leiksvið
eru í fullum gangi þótt enn sé ver-
ið að vinna að lagfæringum á leik-
húsbyggingunni.
„Mér leist strax mjög vel á
handritíð og við undirbjuggum
okkur vel áður en við fórum í tök-
ur. Vinnan var mjög skemmtileg
og hópurinn góður. Við höfð-
um góðan tíma í þennan undirbún-
ing og breyttum smá og löguðum tíl
þannig að það var allt klárt fyrir tök-
ur. Við vorum þarna í alvöru kvik-
myndabúðum upp við Búrfellsvirkj-
un þar sem lunginn af tökunum fór
fram þó svo að það væri tekið víð-
ar um land. Ég hef ekki séð mikið
en sá „trailerinn" í fyrsta skiptí í gær
og lýst mjög vel á. Þessar virkjan-
ir eru náttúrulega mjög sérstök um-
hverfi en það var ansi erfitt að leika
á mótí túrbínunum í 90 desibilum.
Þetta gekk þó allt mjög vel fyrir utan
nokkur smáslys. Þröstur braut tá og
Lilja datt illa á hálu gólfi og rotaðist.
Hún áttí að leika í sýningu í Þjóðleik-
húsinu um kvöldið þannig að það
þurftí eitthvað að breyta því. Svona
hlutir gerast en í heildina gekk mjög
vel og mér fannst allir vera að skila
sínu í þeim tökum sem ég tók þátt
í, þannig að ég hef góða tilfinningu
fýrir útkomunni," sagði Helgi
Eftirminnilegir tökudagar
Elva Ósk Ólafsdóttír hefur dvalið í
Barselóna síðan tökum lauk á Kaldri
slóð og var á heimleið á flugvelli í
London þegar DV náði tali af henni.
Elva leikur Freyju sem lóðsar Bald-
ur rannsóknarblaðamann um þeg-
ar hann heimsækir virkjunina undir
því yfirskini að verða þar nýr örygg-
isvörður.
„Það er auðvitað orðinn mikill
spenningur í manni að sjá myndina.
Eg hef bara séð nokkur atriði sem við
Leó Gunnarsson og Elva Ósk
Ólafsdóttir Ekki er loku fyrir skotið að í
handritinu leynist ástarsaga eins og
verðurað vera I bíómyndum.
Helgi Björnsson Þykir fara á kostum í
hlutverki sínu i Kaldri slóð. Leikarinn er um
þessar mundir störfum hlaðinn við að stýra
Admiralspalast-leikhúsinu i Berlin en
kemurþó heim ijólafríog til að vera við
frumsýninguna.
Þröst-
ur Leó Gunnarsson
Senur á ritstjórnarskrifstofu Baldurs
rannsóknarblaðamanns voru teknar i
húsakynnum DV íSkaftahlið. [myndinni er
komið inn á viðfangsefni sem tengjast
siðfræði rannsóknarbtaðamennskunnar.
þurftum að hljóðsetja upp á nýtt vegna
hávaðans sem var í túrbínunum. Við
þurftum nánast að læra texta mótleikar-
ans líka eða nota varalestur því hávað-
inn var svo mMl. Þetta var annars mjög
skemmtileg
vinna og við vorum þama á há-
lendinu í kulda og snjó þannig að þetta
er allt mjög eftirminnilegt. Persón-
an sem ég leik er eins og landið sjálft
eins konar fósturlandsins freyja, hrein
og tær en líka margslungin. Ég var afar
sátt við hana og finnst hún mjög vel
skrifuð, eins og handritið í heild sinni,"
sagði Elva. kormakur@dv.is