Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2006, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2006
Fréttir DV
Sandkorn
• Sportbarinn á Hverfisgötu 46 er
með athyglisverðan hóp starfs-
manna á bakvið barinn hjá sér.
Raunar má segja að
staðurinn sé orðinn
þriggja bassa staður.
Það vinna nefnilega
þrír bassaleikarar
við að dæla bjórn-
um í kúnnana. Þar fer
fremstur í flokki Tómas Tómas-
son bassaleikari Stuðmanna sem
vinnur þama á virkum dögum
þegar lítið er að gera í tónlistinni.
Hinir tveir eru Andri Snær Garð-
arsson bassaleikari í Vinyl, sem nú
hefur raunar lagt upp laupana, og
Stefán Gauti Stefánsson bassaleik-
ari í Bakkus og er óhætt að segja
að nafn sveitarinnar falli vel að
starfinu...
• Og enn um rektorsskiptin á Bif-
röst. Eins og kunnugt
er var Ágúst Einars-
son prófessor í Há-
skóla íslands ráðinn til
starfans í stað Runólfs
Ágústssonar. Ágúst
var ráðinn í embættið
til næstu sex ára. í ljósi þess vakti
það nokkra undrun ýmissa á fyrri
vinnustað Ágústar að hann sótti
um og fékk launalaust leyfi frá Há-
skólanum til næsm þriggja ára. Það
virðist því sem svo að Ágúst ætli sér
ekki að flengjast á Bifröst...
• Karl Iljaltested fyrrverandi vert
á Grand Rokki og nú hafnarstarfs-
maður hefur verið í fr íi undan-
farnar vikur. Notaði
hann tækifærið er það
bauðst að skella sér
I með fóni Brynjari
| Jónssyni til Tórínó á
] Ítalíu í vikutíma. Hér
var um vinnuferð hjá
Jóni Brynjari að ræða en hann var
sendur til ftalíu til að læra viðhald
á Lavazza-kaffivélum. Það virðist
sem svo að þrátt fyrir að Lavazza-
vélarnar hafi verið í notkun hér
um árabil hafi enginn, þar til nú,
verið sérmenntaður í að þjónusta
þessar vélar hér á landi...
• Við greindum frá því hér í síð-
ustu viku að lögmaður Jóakims
Karlssonar, Svians sem slasaðist
við upptökur á auglýsingu á veg-
um True North, furðaði sig á því
að hafa ekki fengið umbeðin gögn
í málinu frá Tryggingamiðstöð-
inni eftir langa bið. Hið sanna er
að TM sendi sín gögn hratt og vel
til lögmannsins en aftur á móti
hefur True North dregið lappirn-
ar í máhnu og hefur enn ekki sent
lögmanninum sín gögn þótt fjór-
ar vikur séu frá því að beiðnin um
slíktvarsend...
Á Kirkjulæk í Fljótshlíð er ión Ólafsson bóndi að reisa hof í fornum stíl og vill með
byggingunni varðveita íslenska byggingarsögu og kynna hana fyrir útlendingum og ís-
lendingum nútímans. Jón hefur unnið að því að gera upp hús fyrir Byggðasafnið að
Skógum og kann því ýmislegt fyrir sér í þessum efnum.
„Það liggja engar trúarlegar
ástæður að baki þessari byggingu hjá
mér. Það er fyrst og fremst sögulegur
áhugi og áhugi á byggingarstflnum
sem hefur orðið til þess að ég réðst
í þetta. Reyndar finnst mér að kristn-
ir menn mættu athuga sinn gang og
sýnist vart hægt að trúa á annað en
sjálfan sig nú til dags.
í minningu forfeðranna
Það var auðvitað kirkja hér áður
og kannski merkilegt að það rísi hér
hof núna en það eru fyrst og fremst
tengslin við söguna og uppruna
minn sem ég er með í huga. Hins
vegar verður þannig frá þessu gengið
að hér geti fólk gift sig, skirt böm og
fleira, alveg óháð trúarbrögðum. Mig
langar líka til að heiðra minningu
þess fólks sem byggði þetta land og
sýna hvílíkar hetjur þetta voru. Hve
mikið erfiði þetta var og þá sérstak-
lega hjá konunum. Þannig að þetta
er umfram allt gyðjuhof tileinkað
konum," segir Jón.
Njáls saga allt um kring
Sögupersónur úr Njálu, Þráinn
Sigfússon og Gunnar Lambason,
bjuggu hvor sínum megin við Kirkju-
læk. Jón rekur Kaffi Langbrók en
nafnið vísar einmitt í Njálu. Jón hef-
ur lengi verið viðloðandi Njálusetrið
og af og til sungið Hrafnagaldur Óð-
ins í fjarveru Steindórs Andersen.
Hann er líka meðlimur í söngsveit-
inni Hjónabandinu, sem skemmtir
gjarnan gestum með frumsömdu
efni og rímnasöng á Kaffi Langbrók
og víðar. Hofið segir hann tilvísun í
heiðinn tíma en það verður líka nýtt
í tengslum við ferðaþjónustu.
„Það verður væntanlega borinn
fram matur, sungið og sagðar sög-
ur í hofinu auk þess sem við reynum
að finna einhverja muni sem minna
á þennan tíma. Þetta er talsvert um-
fangsmikið hús. Innanmálið er ein-
hverjir 36 fermetrar en veggirnir eru
tveggja metra þykkir þannig að ut-
anmálið er mildu meira. Síðan liggja
inn í húsið níu metra löng göng og
Hofið á Kirkjulæk Jón ætlar að ganga frá þakinu á þrjá vegu þannig að menn geti séð
mismunandi notkun byggingarefnis eins og hún var til forna.
aðstæður haga því þannig að þau
munu opnast út í laug líkt og hjá
Snorra í Reykholti. Það verður borað
hér eftir heitu vatni í sumar þannig
að vonandi getur hér orðið baðlaug,
eins og hjá honum, í framtíðinni,"
segir hann.
íslensk byggingarefni
Jón hefur sótt burðarvirkið í skóg-
inn á Tumastöðum en þar er orðinn
mikill skógur sem ungmennafélagið
hefur plantað síðan 1946. „Þetta eru
allt að 30-40 ára tré en ég hef mest
notað greni í þessa byggingu, virki
sem fellur til við grisjun. Nú á aðeins
eftir að leggja hellurnar á þakið en
eins og hjá íslendingum til forna er
byggingarefnið að mesm sótt í nán-
asta umhverfi hússins.
Annars er hugmyndin að ganga
frá þakinu á þrennan hátt til að sýna
mismunandi byggingarstfla. Þar sem
var skógur notuðu menn birkiboli og
hrís. í Meðallandinu var til dæm-
is notaður rekaviður og melgresi en
hér í Fljótshlíðinni voru lagðar flatar
hellur undir torfið," segir Jón.
kormakur@dv.is
Jón Ólafsson Útveggir hofsins eru tveggja
metra þykkir og htaðnir á sama háttog gert
vartilforna.
Hofið á Kirkjulæk Gluggi á hofinu er
hringiaga, tákn friðar og þess aö allir hlutir
eru tengdir. Umburöarlyndi er lykilorð í huga
Jóns enda öll trúarbrögð velkomin I hofið.
Immripa
Nanikvæmt \ew York Times
Opið 7-21 alla daga vikunnar
• Humarsúpa • Fiskur á grillið
Sérverslun með sjávarfang
Verbúð 8 við Geirsgötu, 101 Reykjavík, Sími 553 1500