Freyr

Volume

Freyr - 15.08.1979, Page 12

Freyr - 15.08.1979, Page 12
Erlendur Jóhannsson: Vegna mikillar framleiðsluaukningar á mjólk á síðustu árum, samfara minnkandi neyslu á mjólkurafurðum, er svo komið, að umframframleiðslan er nú áætluð 10—15% á ári. Vegna lélegra markaða erlendis fyrir mjólkurvörur hefur mjög lágt verð fengist fyrir umframframleiðsluna. Vegna þessa eru fyrirhugaðar ýmsar ráðstafanir til að draga úr mjólkurframleiðslunni, þar á meðal er ætlunin að leggja sérstakt gjald á kjarnfóður. Því er mikilvægt, að bændur nái sem hagkvæmastri framleiðslu til þess, að sú tekjurýrnun, sem óhjákvæmilega fylgir samdrætti í framleiðslu, verði sem minnst. Þegar heildarframleiðslukostnaður á mjólk er sundurliðaður samkvæmt búreikningum, kemur í Ijós, að kjarnfóðrið er stærsti útgjaldaliðurinn eða um 25% af framleiðslukostnaðinum. Því virðast mestu möguleikarnir til að ná framleiðslukostnaðinum niður vera í því fólgnir að finna leiðir til að draga úr kjarnfóður- notkuninni án þess, að það leiði til samsvarandi fram- leiðsluminnkunar. 514 FREYR

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.