Freyr

Árgangur

Freyr - 15.08.1979, Blaðsíða 16

Freyr - 15.08.1979, Blaðsíða 16
Gildi sauðfjársæðinga Er ég undirritaður var að lesa próförk að rit- gerð um hrútasýningar haustið 1978, sem á að birtast í Búnaðarritinu síðar í sumar, tók ég saman til fróðleiks, hve margir I. verð- launa hrútar voru synir hrúta, sem notaðir hafa verið á sæðingarstöðvum. Svæðið, sem sýningarnar voru haldnar á sl. haust, var Eyjafjörður, Skagafjörður, Húnavatnssýslur og Mýra- og Borgarfjarðarsýslur. Alls hlutu 1252 hrútar I. verðlaun. Af þeim voru 524 synir hrúta á sæðingarstöðvum eða 41.9% af öllum I. verðlaunahrútum á svæð- inu. Auk þess voru margir af öðrum I. verð- launa hrútum sonarsynir eða dóttursynir sæðingarhrúta. Eftirfarandi yfirlit sýnir hverjir voru feður þessara 524 hrúta, og hve marga I. verðlauna syni hver þeirra átti á nefndu sýningarsvæði. Stjarna við nafn hrúts sýnir, að hann er koll- óttur. Nafn og nr. Angi 68-875 átti Dalur 68-834 — Hlutur 69-866 — Soldán 71-870 — Ófeigur* 71-855 — Hængur 72-889 — Klettur 72-876 — Moli 70-869 — Snær 66-843 — Snúður71-882 — Veggur 64—848 — Dindill 70-887 — Frosti 69-879 — Köggull 73-877 — Smári* 70-884 — Rassmus* 72-878 — Bátur* 68-830 — Smári* 69-862 — Blær 66-856 — Brynjar 70-886 — Funi 70-880 — Laxi 67-828 — Sopi 67-857 — Gylfi* 70-868 — Lokkur* 63-817 átti 3 I. verðlauna syni Fursti 71-871 — 3 — — — Sómi* 70-864 — 3 — — — Hnöttur* 68-867 — 2 — — — Nubbur* 70-863 — 2 — — — Jökull* 67-819 — 2 — — — Valur 71-865 — 2 — — Snær 68-835 — 1 — — Þór* 65-818 — 1 — — — Kálfur* 70-885 — 1 — — — Lappi 73-888 — 1 — — Hnallur 62-816 — 1 — — Eldur 67-829 — 1 — — — Roði* 69-873 — 1 — — — Sópur* 62-841 — 1 — — — Prúður* 63-845 — 1 — — Þjálfi 64-846 — 1 — — — Blettur 65-815 — 1 — — — Knútur* 72-872 — 1 — — — Ljómi 65—826 — 1 — — Þetta er aðeins eitt dæmi, sem sýnir, hve skjótvirk kynbótaaðferð er að nota úrvals hrúta á sæðingarstöðvum. Ekki fást með því aðeins góðir hrútar, heldur einnig margar afbragðs ær. Bestur árangur næst að sjálf- sögðu með því, að bændur velji bestu ær sínar til sæðingar og samstilli gangmál þeirra. Einnig þarf hver maður, sem fær ær sæddar, að sæða allmargar, til þess að hann fái tækifæri til þess að beita allhörðu úrvali, þegar hann velur ásetningslömbin. Val hrúta á sæðingarstöðvar er mikilvægt, þeir þurfa helst að vera afkvæmaprófaðir áður en þeir eru notaðir handa mörgum ám. Þarf nú sérstaklega að meta, hvort hrútarnir gefa mörg föll í stjörnuflokk, af því að stefna verður að framleiðslu vöðvasöfnunarfjár, sem ekki hleður á sig of mikilli fitu við eðli- legan aldur og þunga. 3. júlí 1979, Halldór Pálsson 115 I. verðlauna syni 62 — — — 52 — — — 47 — — — 29 — — 26 — — — 25 — — — 21 — — 16 — — — 14 — — — 13 — — — 11 — — — 8 — — — 6 — — 5 — — 5 — 5 — — — 4 — — — 3 — 3 — — — 3 — — — 518 FREYR

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.