Freyr

Årgang

Freyr - 15.08.1979, Side 18

Freyr - 15.08.1979, Side 18
Gísli Kristjánsson: Búfé og fóður 1978 Öryggiseftirlit Á landnámsöld báru landsdrottnar ábyrgð á því gagnvart landsetum sínum, að þeir hefðu nóg fyrir sig og skepnur sínar af forða vetur hvern. Þessvegna skoðuðu landsdrottnar birgðir sérhvers landseta að haustinu og ákváðu hve margt hver og einn mætti setja á vetur. Með útkomu Jónsbókar var þessi skylda tekin af landsdrottnum og í stað þess svo fyrir mælt, að öllum, er hey hefðu, væri skylt að selja hinum, sem í heyþrot kæmust og lá við refsing, ef ekki var laust látið það, sem þurfandann skorti eða heyið var tekið eignarnámi annars. Auðvitað var ekki á þennan hátt hægt að fyrirbyggja felli, því að þannig gátu fleiri en annars komist í heyþrot. Þessi ákvæði giltu fram á 18. öld. Um 1770 voru tillögur svo kallaðrar lands- nefndar uppi um að stofna heyforðabúr, en þau fyrirmæli voru svo smá í sniðum að til einskis gagns voru. Því var það 1786, að hreppstjórum í hverju umdæmi varveitt vald til að mæla fyrir um ásetning íbúanna á svip- aðan eða sama hátt og gerðist meðal lands- drottnaforðum. Lagafyrirmæli voru þóengin við að styðjast, aðeins var hverjum hrepp- stjóra fengið vald til að skoða að hausti fóð- urmagn og fjártölur og fyrirskipa að farga ef búfé reyndist fleira en birgðir leyfðu til eðli- legrar fóðrunar. Einnig þetta hafði sína annmarka. Leið svo fram til hallærisáranna eftir 1880, að þá var enn sýnd viðleitni til að finna úrræði, er hamlað gætu atferli horfell- iskónga. Hin svonefndu horfellislög tóku gildi, en þau sögðu aðeins refsivert ef fé féll vegna vanrækslu, en saknæmt var ekki ef fénaður féll vegna fóðurskorts. Svo er sagt, að þau lög hafi víða verið nefnd „pappírs- lög“. Á okkar öld hafa hvað eftir annað verið samin lög, ertryggjaskyldu búendum nægar birgðir handa búfé þeirra, og viðurlög við vanfóðrun og vanrækslu og skutú þau ekki rakin frekar. Hinsvegar er eðlilegt að benda á þau fyrir- mæli, sem forðagæslukaflinn í núgildandi búfjárræktarlögum, síðast endurskoðuðum 1973, mælir fyrir um ábyrgð sveitarstjórna. Þau lög eiga að vera í höndum hvers einasta oddvita og sérhver sveitarstjórn hlýtur nú að vita, að samkvæmt þeim lagagreinum, er þar standa, ersveitarstjórnin eða bæjarstjórnin í sérhverju tilviki ábyrg fyrir ásetningi bú- fjáreigenda og/eða umráðamanna búfjár og þá jafnframt árangri fóðrunar vetrarlangt í sinni sveit eða umdæmi. Á hina sveif eru ráðstafanir gerðar í sam- félaginu til þess að móta baktryggingu, sem hægt er að leita til þegar efnahagslegur vandi knýr á dyr. Bjargráðasjóður er sú baktrygging, svo langt sem geta hans leyfir til þess að hlaupa undir bagga. Þangað geta sveitastjórnir leitað um lánafyrirgreiðslu vegna sveitunganna og ábyrgst skil á þeim lánum, sem veitt eru úr sjóðnum. Þetta segir um leið, að sveitarstjórn er eiginleg forsjá 520 FREYR

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.