Freyr

Árgangur

Freyr - 15.08.1979, Blaðsíða 31

Freyr - 15.08.1979, Blaðsíða 31
Frá Búreikningastofu landbúnaðarins: Árið 1978 var hagstætt bændum Kúabúin sýndu hæstar fjölskyldutekjur. Á árinu 1978 færðu 220 bændur búreikninga í samvinnu við Búreikningastofu landbún- aðarins. Uppgjöri lauk í júlí og bráða- birgðaskýrslu var skilað til sexmannanefnd- arí lokjúlí. í aðalvinnslu eru ekki talin með68 býli sem teljast á einhvern hátt afbrigðileg t. d. vegna tekna af öðru en landbúnaði, eða af öðrum búgreinum en sauðféog nautgripum. Þeim 152 búum, sem þá eru eftir er skipt í þrjáflokkaeftirsamsetningu búanna, kúabú, sauðfjárbú og blönduð bú. Kúabúin voru 66, sauðfjárbúin 42 og blönduðu búin 44. Stærð búanna er metin í ærgildum og er ern kýr sögð jafngilda 20 kindum eða 20 ærgildum. Meðalstærð búreikningabúanna árið 1977 reyndist vera 608 ærgildi eða 5% stærri en árið 1977. Kúabúin eru stærst eða797ærgildi, blönd- uðu búin 531, og sauðfjárbúin minnst, 403 ærgildi. Meðal fjölskyldulaun af landbúnaði og vextir af eigin fé reyndust vera 5.280 þúsund kr., þegar eignir hafa verið afskrifaðar um 990 þús. kr. Að krónutölu eru þetta mun hærri tekjur en árið 1977 eða 110% hækkun. Launatekjur fyrir aðra vinnu eru að auki 247 þúsund. kr. Kúabúin sýndu hæstar fjölskyldutekjur eða kr. 5.888 þús. kr. (hækkun um 100%) en sauðfjárbúin sýndu að meðaltali 4.754 þús. kr. (hækkun 113%) og blönduðu búin 4.868 þús. kr. (hækkun um 110%). Á undanförnum árum hafa orðið nokkrar sveiflur í tekjum eftir bútegundum. Árið 1969 til og með árinu 1973 skipa kúabúin efsta sæti en árin 1974 og 1975 skipasauðfjárbúin efsta sæti. Árið 1976 eru svipaðar fjöl- skyldutekjur frá þessum þremur bútegund- um, en árið 1977 og 1978 skipa sauðfjárbúin neðsta sæti. Ein aðalástæða fyrir þessum breytingum er sveiflur í afurðamagni eftir árskú og kind frá ári til árs. Meðalnyt hefur hækkað síðustu þrjú árin en afurðir eftir kind staðið í stað. Kjarnfóður hefur einnig hækk- að minna en aðrir liðir, en sá liður er lang- stærstur á kúabúunum. finningar að hinu leytinu. Þeim mun nauð- synlegra er að taka á þessum málum með varúð og virðingu fyrir ærlegum og skyn- samlegum ábendingum, ef árangursrík sam- staða á að fást um heildarlausn. Hér að framan er aðeins lauslega drepið á nokkur atriði, sem bíða úrlausnar, m. a. til að undirstrika nauðsyn þess að hafasem flesta í ráðum, sem haldgóða þekkingu hafa hver á sínu sviði, en forðast misvitrar og óraun- hæfar lagasetningar og reglur. FREYR 533

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.