Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.1992, Qupperneq 6

Freyr - 01.08.1992, Qupperneq 6
566 FREYR 15.-16.’92 RITSTJÓRNARGREIN----------- Umhverfisráðstefnan f Rfó Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun, hin önnur í röðinni, var haldin í Rio de Janero í fyrrihluta júnímánaðar sl. Hin fyrsta var haldin í Stokkhómi árið 1972. Fram hefur komið að mat á árangri af ráðstefnunni er mis- jafnt, sumir telja hann mikinn, aðrir lítinn. Bent er á að það sé út af fyrir sig afrek að ráðstefnan var haldin, hér sé á ferð stærsta ráðstefna sem sögur fari af, hana hafi m.a. setið leiðtogar 178 þjóða og þeir hafi und- irritað merka sáttmála og yfirlýsingar. Þessi áþreifanlegi árangur ráðstefnunn- ar er eftirfarandi: 1. Undirritaðir voru tveir sáttmálar, annar um verndun andrúmsloftsins og hinn um verndun tegunda lífríkisins. Hinn síðarnefnda undirrituðu þó ekki Bandaríki N.-Ameríku. 2. Undirritaðar voru tvær yfirlýsingar, önnur um verndun skóga, en hin uin réttindi og skyldur ríkja í umhverfis- og þróunarmálum, sem er ítarleg framkvæmdaáætlun fyrir þjóðir heims um aðgerðir á 21. öldinni, 800 blað- síðna rit, og nefnt Agenda 21. Kjarni þessi er að í lífi jarðarbúa skuli stefnt að sjálfbærri þróun, en á skortir að þannig sé nú lifað á jörðinni. Svo langt sem þetta nær er allt gott um ráðstefnuna að segja. Um samþykktir og yfirlýsingar má segja að orð séu til alls fyrst, en einar og sér breyta þær þó litlu sem engu. Þar kemur að höfuð átakaefn- inu. Til að hrinda samþykktunum í fram- kvæmd þurfa stjórnvöld í hverju landi að sýna vilja sinn í verki; betur settar þjóðir að ákveða fjárveitingar og skattlagningu á þegna sína sem og að setja reglur um að draga úr mengandi efnum sem sleppt er út í umhverfið; loft, láð og lög. Fyrir fulltrúa á ráðstefnunni í Ríó voru lögð gögn sem sýna að aðgerðir manna hafa stefnt lífi á jörðunni út á hættulega braut, en jafnframt að mögulegt sé að sveigja inn á lífvænlegt spor með því að taka mark á hættumerkjunum og breyta samkvæmt þeim. Talað er um að þessi stefnubreyting þurfi að hafa átt sér stað fyrir nk. aldamót. Að ráðstefnunni lokinni lá ekkert ákveðið fyrir um að þetta muni gerast. Betur settar þjóðir eru ekki reiðubúnar að slaka á kröfum sínum til lífsgæða og fyrir- tæki og aðilar sem valda mengun með starfsemi sinni halda uppi harðskeyttri hagsmunagæslu. Má þar nefna olíuiðnað- inn. Oft hefur verið rakið hver séu helstu umhverfisvandamál jarðar. Það skal þó rifjað upp hér. Mengunar- og umhverfis- skaða má skipta í staðbundin vandamál og óstaðsetjanleg. Meðal hinna fyrrnefndu er mengað loft yfir iðnaðarhéruðum, af út- blæstri verksmiðja, og yfir stórborgum, þar sem m.a. bílaumferð og upphitun húsa skilar mengun út í andrúmsloftið. Spillt vatn má rekja til sömu orsaka en einnig hefur umhverfi spillst þar sem vatn hefur verið leitt burtu og vatnsyfirborð stöðu- vatna hefur lækkað. Þá er gróðureyðing staðbundið en þó algengt vandamál og í kjölfar þess fylgir jarðvegseyðing, sem telja má með mestu umhverfisvandamálum jarðarinnar. Undir óstaðbundin umhverfisvandamál heyra í fyrsta lagi gróðurhúsaáhrifin svo- kölluðu en þau stafa einkum af auknum koltvísýringi í andrúmslofti og eiga sér engin landamæri. Sama gildir um mengun hafsins, úthafa sem innhafa, en mestöll föst og fljótandi mengunarefni og jafnvel sum loftkennd eiga sína endastöð í hafinu.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.