Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1992, Blaðsíða 8

Freyr - 01.08.1992, Blaðsíða 8
568 FREYR 15.-16.’92 Leðuriðjan Tera Leðuriðjan Tera á Grenivík framleiðir föt og smávörur úr leðri og rúskinni Sigríður Sverrisdóttir framkvœmdastjóri f viðtali. Leðuriðjan Tera á Grenivík við Eyjafjörð var stofnsett í nóvember 1987 og fagnar því fimm ára afmœli á komandi hausti. Tera býr við þröngt húsnœði. Anna Ingólfsdóttir og Hulda Ragnarsdóttir við vinnu sína. Þetta er hlutafélag og tveir aðal- hluthafarnir í því eru Grýtubakka- hreppur og Iðnþróunarfélag Eyja- fjarðar. Eitt af markmiðunum með stofnun Teru var að styrkja at- vinnulíf í Grýtubakkahreppi, eink- um fyrir konur. Fyrirtækið er nú að skila árangri í rekstri og hefur rekstrarstaðan batnað á þessu og síðasta ári. Sigríður Sverrisdóttir veitir Teru forstöðu og er jafnframt kennari við grunnskólann á Grenivík. Hún er ein af hinum kunnu systrum frá Lómatjörn, en þær eru auk Sigríð- Sigríður Sverrisdóttir. Freysmyndir J.J.D. ar, sem er þeirra elst, Guðný, sveitarstjóri á Grenivík og Val- gerður, alþingismaður. Starfsemi Teru er á jarðhæð í gamla barnaskólahúsinu á Greni- vík. Það húsnæði er orðið óhentugt og þröngt. Framleiðsla fyrirtækis- ins er aðallega fatnaður úr rúskinni og leðri; jakkar, buxur, dragtir, frakkar og kápur en auk smærri vörur s.s. kerrupokar, töskur, hárbönd, teygjur og belti til að nýta frekar tíma og efni. Fjórar konur starfa hjá fyrirtækinu en ekki eru allar í fullu starfi. I upphafi unnu tvær konur í hálfu starfi hjá Teru og þá var áhersla lögð á að framleiða ýmsar smávörur, en síðustu þrjú ár hefur fatasaumur verið æ stærri þáttur í framleiðslu fyrirtækisins. Sigríður segir að vegna smæðar þess séu föt að jafnaði ekki saumuð á lager, en frekar eftir pöntunum og máli og framleiðslan seljist vel. - Við tókum þátt í iðnsýningu á Akureyri i júní í fyrra sumar og það varð okkur mikil lyftistöng. Við fengum heilmikla vinnu út á það og gátum kynnt starfsemi okkar. Jafnframt fengum við góða um- fjöllun í fjölmiðlum. Það er talsvert dýrt að sauma á lager en samt höfum við reynt að eiga dálitlar birgðir af smærri vör- um til að selja í nóvember og des- ember, en þeir eru mestu sölumán- uðirnir hjá okkur. Ánægðir viðskiptavinir eru lík- lega besta viðurkenningin fyrir lít- ið fyrirtæki eins og Teru. Aðra viðurkenningu hafa þær Teru-kon-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.