Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1992, Síða 27

Freyr - 01.08.1992, Síða 27
15.-16.’92 FREYR 587 plönturnar vaxa upp í víra og toppa þær þá og skipta örar um plöntur. Þessi aðferð tókst illa, því að blöð- in gulnuðu hraðar en aldin þrosk- uðust. Sá sami kvartaði einnig undan því, að þegar stönglarnir lögðust niður vildu þeir oft leggjast utan í dropaslöngurnar og kippa þeim upp. 2. Birtumagn og lýsingartími. Gúrkur eru mjög birtukræfar plöntur sem geta nýtt sér mikið birtumagn, þannig að ólíklegt er að ljósmettun náist í fullvöxnum plöntum með mikinn blaðmassa þar sem blöðin skyggja meira eða minna hvert á annað. I norsku tilraununum jókst uppskeran nánast í beinu hlutfalli við aukna lýsingu. Þannig jókst uppskeran um 48% þegar lýsingin var aukin úr 5500 lux (52 wött á m;) í 11.000 lux (103 wött á m:) og um 43% til viðbótar þegar lýsingin var aukin úr 11.000 lux í 16.000 lux (150 wött á m;). Uppskeruaukningin stafaði bæði af fleiri og þyngri aldinum. Aukin lýsing hafði jafnframt já- kvæð áhrif á aldingæðin (lengd, lit, lögun og hrjúfleika). Ráðlagt var að lýsa plönturnar með a.m.k. 12.000 lux í 18-20 klst. á sólarhring. Þung áhersla var lögð á að gefa plöntunum 4-6 klst. myrkur á sólarhring, því að gera má ráð fyrir 30-50% uppskeru- rýrnun við 24 klst. lýsingu saman- borið við 18 klst. lýsingu. Einn garðyrkjubóndinn hafði orð á því, að plönturnar hafi orðið of fljótt „gamlar“ síðastliðinn vet- ur. Hann taldi að ástæðan væri m.a. sú, að 18 klst. lýsing væri of löng, sem „stressi“ plönturnar of mikið þannig að þær eldist of fljótt. Að hans áliti voru plönturnar mun kröftugri við 13 klst. lýsingu, með sverari stöngla og stærri blöð. Næsta vetur er ætlun hans að lýsa með 12.000 lux og bara í 13 klst. á sólarhring, þ.e. að lengja daginn að morgni og síðdegis, og nota tímann frá lok nóvember og út desember til að þrífa og sótt- hreinsa húsin. í öllum stöðvunum sem heim- sóttar voru, að einni undanskil- inni, var lýst með 12.000 lux (há- þrýstir natriumlampar) í 18 klst. á sólarhring. I einni stöðinni var lýst með 15.800 lux í 18 klst. á sólar- hring. All algengt var í nágrenni Osló að vera með skyggingadúka innan á gróðurhúsunum. Þeim er bæði ætlað að draga úr útgeislun plantnanna á heiðskírum, köldum vetrarnóttum og að endurvarpa birtunni til baka inn í gróðurhúsið. Á dúknum er oft sjálfvirkur stýri- búnaður, þannig að dúkarnir drag- ast fyrir síðdegis þegar birtan fer t.d. undir 2000 lux og frá að morgni þegar birtan fer t.d. yfir 3000 lux. Ennfremur fór lýsingin oft sjálf- krafa af þegar birtan fór t.d. yfir 30.000 lux. Sumir garðyrkjubænd- anna ætluðu einnig að nota lýsing- arbúnaðinn í dimmviðri að sumri, t.d. þegar birtan er undir 30.000 lux að deginum. Þegar keypt er ótrygg raforka, skiptir miklu máli hvernig plönt- urnar bregðast við ef lýsingin er rofin um tíma. Að sögn manna á tilraunastöðinni ætti það ekki að hafa nein skaðleg áhrif í för með sér þó svo að lýsingin væri rofin í tvo sólarhringa, en hins vegar væru fjórir sólarhringar í lengsta laginu. Ef lýsingin væri rofin um tíma, ætti ekki að reyna að vinna upp tapið með því að lýsa allan sólarhringinn á eftir, en halda sér áfram við 18 klst. lýsingu. Ef lýsingin væri rofin í lengri tíma en 2 sólarhringa, ætti að lækka hitann niður í 17°C og jafnvel 15°C. 3. Staðsetning lampa. Til greina kæmi að vera með lampana annað hvort yfir göngun- um eða yfir beðunum. Af þeim stöðvum sem við heimsóttum var mun algengara að lamparnir væru yfir göngunum. Með því móti fæst betri birta niður eftir plöntunum og þar með verður minna um guln- uð blöð. Hins vegar verður vinnan erfiðari þegar unnið er við toppa plantnanna, því að menn eru þá komnir með höfuðið upp undir lampana. Æskilegt væri því að geta slökkt á hverri lamparöð fyrir sig, á meðan unnið er við plönturnar í viðkomandi gangi. Ætla mætti að talsvert bil þyrfti að vera frá lömpunum og að plöntutoppunum. Miðað við það sem við sáum og heyrðum, skiptir þetta litlu máli. Það er nánast ekki fyrr en plöntutopparnir taka að snerta lampana eða vaxa inn undir skermana, að þeir fara að skemm-

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.