Mjölnir - 20.07.1949, Blaðsíða 2
2
MJOLNIR
— VIKUBLAÐ —
Útgefandi: SÓSÍALISTAFÉLAG SIGLUFJARÐAR
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Sigurðsson
Blaðið kemur út alla miðvikudaga
Áskriftargjald kr. 20,00 árg. — Afgreiðsla Suðurgötu 10.
Simar 194 og 210
Siglufjarðarprentsmiðja h/f.
MISTDK RlKISSTIðRNARINNAD
Rikisstjórnin hefur beðið algert málefnalegt skipsbrot. Henni
hefur mistekizt allt, sem hún hefur tekið sér fyrir hendur. Aðal-
hlutverk hennar var, samkvæmt yfirlýsingum hennar sjálfrar, að
halda dýrtíðinni í skefjum, eða lækka hana. Árangurinn af þeirri
viðleitni er sá, sem öllum landsmönnum er kunnur, að dýrtíðin
hefur aukizt stórkostlega, ekki þrátt fyrir aðgerðir ríkisstjórnar-
innar, heldur þvert á móti vegna aðgerða hennar. Kaupmáttur
daglauna verkamannsins eða fastlaunamannsins hefur aldrei verið
minni en nú, síðan einhverntíma fyrir stríð.
Ríkisstjómin lofaði að koma betra skipulagi á innflutnings-
og verzlunarmálin í landinu en áður ríkti. Einnig það hefur henni
mistekizt. Helzti sjáanlegi árangurinn af aðgerðum hennar í þeim
málum er sá, að svartur markaður, sem varla þekktist hér áður
en hún kom til valda, er nú orðin einn aðalþáttur verzlunarmálanna
í landinu. Innflutnings- og gjaldeyrisleýfin ganga nú kaupum og
sölum, og mikið áf-þeim vörum, sem fluttar eru inn út á þessi
leyfi, eru seldar við okurverði á svarta markaðinum. Vöruskortur-
inn og hið bjánalega fyrirkomulag, sem hefur verið haft við
framkvæmd skömmtunarinnar, er alkunnugt og skal því ekki
frekar um það rætt.
Þegar ríkisstjómin tók við völdum lét hún það verða eitt
sínum fyrstu verkum að setja á stofn Fjárhagsráð, sem skyldi
hafa. eftirlit með og stjórn á f járfestingu í landinu. Hún lýsti því
yfir, að ekki væri ætlunin með þessu að stöðva eða koma í veg
fyrir nauðsynlegar framkvæmdir, heldur hitt, að tryggja að því
fé, sem fest yrði í húsum, atvinnutækjum og ýmsum mannvirkjum,
væri skynsamlega varið. Árangurinn af þessari ráðstöfun, sem
vissulega hefði getað orðið mjög farsæl, ef vel hefði verið á málum
haldið, er sá, að mikið af þeim mannvirkjum, sem verið var með
í smíðum þegar ríkisstjórnin tók við völdum, eru ekki fullgerð enn.
Byggingarefni er sumt selt á svörtum markaði, sömuleiðis ganga
fjárfestingarleyfin nú kaupum og sölum. Byggingabraskararnir
í Reykjavík, menn, sem hafa það að atvinnu að byggja hús til að
selja, hafa grætt stórkostlega á þessu fyrirkomulagi. Þeir kaupa
leyfin af hinum útvöldu, sem hafa fengið þau, oft á tugi þúsunda
króna, byggja síðanliúsin og selja þau. Leyfisverðinu bæta þeir
ofan á söluverðið. Vegna samdráttarins í byggingaframkvæmdum
og þar af leiðandi vaxandi húsnæðisleysis, hafa húseignir hækkað
jafnt og þétt í verði síðan Fjárhagsráð var stolfhað, til mikils
gróða fyrir byggingabraskara og fasteignabraskara. En almenn-
ingur, sem býr við húsnæðisvandræði, borgar brúsann.
Ríkisstjómin lofaði Mka að halda áfram nýsköpuninni. Efnd-
unum hefur að nokkru leyti verið lýst hér að framan. Mörg af
þeim atvinnutækjum, sem þá voru vel á veg komin eða í undirbún-
ingi, eru enn ófullgerð og óarðbær. Marshall-nýsköpunin, stolt
ríkisstjómarinnar, er farin veg allrar veraldar; dollaramir, sem
vérja skyldi til hennar, hafa verið étnir upp.
RÍkisstjómin lofaði að tryggja hag ríkisins út á við. Efndir
þess ldforðs eru á þá leið, að landið skuldar nú nærri 100.000.000,00
kr. — eitt hundrað milljónir króna — erlendis og hefur ekki verið
eins illa á vegi statt fjárhagslega gagnvart öðmm þjóðum síðan
á kreppuárunum fyrir stríð.
Ríkisstjórnin lofaði að tryggja rekstur aðalatvinnuveganna og
viðhalda atvinnu fyrir aila. Efndir: Aðalatvinnuvegur þjóðarinnar
— sjávarútvegurinn — riðar á barmi gjaldþrots, m. a. vegna þess
að ríkisstjómin hefur spillt eða eyðilagt" beztu og eðlilegustu
markaði þjóðarinnar. Atvinnuleysi er taisvert og fer vaxandi.
Ríkisstjórnin lofaði að standa dyggilega vörð um sjálfstæði
og fullveldi þjóðarinnar. Það loforð hefur hún efnt á þá lund, að
hún hefur með MarshaHsamningnum falið Bandaríkjunum yfir-
umsjón með efnahagsmálum þjóðarinnar; og með Atlanzhafs-
samningnum framselt þeim landið sem herstöð í hugsanlegri
árásarstyrjöld þeirra gegn friðimnandi þjóðum Evrópu. Banda-
rikjamenn em nú orðnir herraþjóð í landinu, friðhdgir fyrir
íslenzkum lögum, eins og framferði þeirra á Keflavikurflugvelli
og umburðarlyndi ríkisstjórnarinnar gagnvart þvá sannar ljóslega.
Hér hafa verið talin fáein af helztu loforðum ríkisstjórnar-
innar og drepið á efndir hennar á þeim. 1 raun og vem hefði þó
verið nóg að minna á loforðin, því efndirnar em öllinn kunnar.
Og efndir þeirra loforða, sem ekki hafa verið talin, em nákvæm-
lega á sömu leið og hin. Þau háfa öll verið svikin líka.
.Mistök ríkisstjórnarinnar em í því fólgin að hún hefur ekki
miðað gerðir sínar við það, sem almenningi væri fyrir beztu, heldur
rposturinn
★ Jarðarför Guðlaugs Sigurðs-
sonar, skósmiðs, fór fram s. 1.
laugardag að viðstöddu fjöl-
mennj. Skósmiðir bám kistu
hans í kirkju og úr. — Þorsteinn
Hannesson óperasöngvari söng
einsöng í kirkjunni — Sólskin
og blíða var meðan á athöfninni
stóð.
★ Jarðarför Helga Björnssonar
frá Skútu fór fram s. 1. laugar-
dag. Fylgdi honum mikill mann-
fjöldi til grafar og er víst, að
hlýjar hugsanir annarra Sigl-
firðinga, sem ekki voru við-
staddir, hafa fylgt þessum
kunna, gamla manni, siðasta
spölinn.
★ Jarðarför frú Ólinu Björns-
dóttur, er lézt hinn 5. þ. m., fór
fram s. 1. föstudag, að viðstöddu
miklu fjölmenni.
★ Jarðarför Matthíasar Hall-
grímsosnar, útgerðarmanns, er
lézt hér í bænum fyrir skömmu,
, fór fram s.l. mánudag. Allmargt
manna var við jarðarförina.
★ Mætti gera betur. — Það er
nokkuð langt síðan, að Bæjar-
pósturinn kom með tillöguna
um vatnsbílinn á göturnar. —
Rétt á eftir var farið að útbúa
vatnstanka með dreifara til að
setja á vörubíl. Hefur bíll þessi
sézt á ferli síðan, þegar ryk hef-
ur verið mest, en ekki hefur
hann verið látinn ganga stanz-
laust alla daga svo sem þyrfti
þegar sólskin og hiti er. Það
mætti með þvi að láta bílinn
alltaf vera á ferðinni, halda göt
unum rökum og þá um leið þrifa
legum og þá yrði hann að væta
iþær kanta á milli. Og það má
ekki eingöngu hugsa Tim að
væta aðalgötumar í miðbænum,
heldur líka fjölfarnar götur,
eins og t. d. Hvanneyrarbraut,
Þormóðsgötu, Lindarg., Lauga-
veg og Hafnargötu, að ekki sé
gleymt Suðurgötu, einni fjöl-
förnustu götunni í bænum, enda
, mun hún hafa verið vökvuð
nokkuð langt suður eftir.
1 slíkum þurrkum, sem verið
ihafa undanfarið, þarf bíllinn að
vera stöðugt á ferðinni. Með
því eina móti er hægt að bægja
rykinu, þessum óvini manna og
gróðurs, örMtið frá, a.m.k.
minnka það talsvert.
★ Ituslkörfur. — Og hér kemur
tillaga, sem ég vona að fái eins
góðar undirtektir og tillagan um
vatnsbílinn. — Eg legg til að
settar verði upp á staura,
sem víðast mn bæinn körfur,
sem fólk getur hent í bréfum
og öðm því, sem það þarf að
fléygja á leið sinni um göturnar.
Það er hörmulegt að sjá t. d. á
Aðalgötunni alla gangstéttina
milli Lækjargötu og Grundarg.,
morandi i bréfarush, sem fóik
hendir frá sér þegar það kemur
úr bíó eða af skemmtunum. —
Og ef vindkviða kemur er ruslið
eins og sveipar í loftinu, fýkur
utan i fólk o.þ.h. Eg held að
ruslkörfur myndu mikið bæta
úr þessu og ættu líka að auð-
velda götuhreinsunina.
★ Beitusala til Færeyinga. —
Á s. 1. vetri var um tíma mikill
skortur á beitusíld, m. a. hér á
Siglufirði. I fyrrasumar mun
talsvert af beitu hafa verið selt
til Færeyinga, og þá ekki hugs-
að um að tryggja það að nóg
beita yrði eftir fyrir ísl. fiski-
báta, sem héðan vildu róa.
Nú endurtekur sagan sig. —
Beitusíldin nýja er seld í stórum
stíl til Færeyinga. En menn
skyldu ekki láta söguna um
beituskort hjá ísl. fiskibátum
endurtaka sig. Það er stór vansi
að slíku og getur leitt af sér
mikinn þjóðhagslegan skaða.
★ Ágangur gripa. — Fyrir
nokkm var að því vikið hér í
blaðinu, hvílíku tjóni fénaður,
sem gengur latis í bænum, veld-
ur á görðum manna. Síðast i
gær kom maður á skrifstofu
blaðsins til þess að biðja það
að vekja enn á ný máls á þessu.
Ástæðan var sú, að í fyrrinótt
höfðu kindur komizt inn í garð
hans um illa lokað hlið og stór-
skemmt eða eyðilagt trjáplönt-
ur og ýmsan annan gróður, sem
hann og fjölskylda hans hafa
lagt mikla vinnu í að gróður-
setja og hirða.
Einhver fyrirmæli hljóta að
vera til í lögreglusamþykkt bæj-
arins um það, hvort fénaður á
að ganga laus og óhindraður um
’i bænum. Væri reynandi fyrir þá
sem fyrir tjóni verða vegna á-
gagns gripa, að kæra það fyrir
'lögreglu og bæjarfógeta. Sam-
kvæmt landslögum munu eig-
endur gripa vera ábyrgir fyrir
því tjóni, -sem þeir valda á eign-
um annarra.
★ Fyrirspurn. — „Bæjarpóstur
góður. Eg vildi gjaman biðja
Iþig að upplýsa mig eða reyna að
fá upplýst fyrir mig um eftir-
farandi: Er búið að fella úr
gildi bann Fjárhagsráðs við því
að byggja girðingar úr stein-
steypu, biiskura og annað þess-
háttar? Eg spyr vegna þess að
ég hef nú undanfarna daga séð
verið að byggja eina slíka
steypugirðingu við hús eitt hér
við Túngötuna sunnanverða. —
E)f honum líðst þetta átölulaust
ætla ég að byrja á steypugirð-
ingunni, sem ég er búinn að biða
með langa lengi.
Með þökk fyrir. Elliði“
Svar Bæjarpóstsins.
Eg leit 1 auglýsingu sem birt-
ist í Degi 15. júní s. 1. frá Fjár-
hagsráði. Hún hefst svona: ,,Að
gefnu tilefni vill Fjárhagsráð
minna á, að bann það við bygg-
ingu sumarbústaða, bílskúra og
steingirðinga sem sett var þann
17. sept. 1947, er enn 'i gildi —“
Ekki hef ég heyrt eða séð til-
kynningu um að þetta bann hafi
verið upphafið, og vísa ég þess-
ari fyrirspurn áfram til þeirra
aðila, sem eiga að sjá um, að
thinum mörgu og margvíslegu
fyrirmælum, höftum og hindmn
um Fjárhagsráðs sé framfylgt
af ölum almenningi.
★ Þorsteinn Hannesson óperu-
söngvari hélt hér hljómleika s. 1.
tföstudag og sunnudag. Var söng
hans ágætlega tekið af áheyr-
endum, og varð hann að endur-
taka sum lögin og syngja auka-
lög. Dr. Viotor von Urbants-
öhitsch var við hljóðfærið.
Skrá
yfir útsvör í Siglufjarðarkaupstað fyrir árið 1949, liggur
franuni, pimenningi til sýnis, % lögregluvarðstofunni frá og með
12.'—25. júlí n. k. — Kærufrestur til sama tíma. .... \
Siglufirði, 12. júlí 1949.
I p m a pctiOpi
íbúð tiI sölu 1
íbúð mín í húsinu Túngata 38 er til sölu, ef viðunandi tilboð
fæst. Þeir, sem Ikynnu jað hafa hug á fþessu, gjöri svo vel að
við mig fyrir 1. ágúst.
/ JÓHANN GUÐMUNDSSON
hefur hún reynt að leysa vandamálin á kostnað almennings, án
þess að leggja neinar byrðar á yfirstéttina. En slík pólitík er
þýðingarlaus. Kraftahlutföll þjóðfélagsins em önnur nú en þau
vom fyrir tíu til tuttugu árum. Verkalýðurinn er orðinn lang-
samlega þýðingarmesta og sterkasta stétt þjóðfélagsins. Hann
krelfst þess, að ef einhverjar fórnir verði að færa, verði hinn fjöl-
menni og svínaldi sníkjulýður sem hann ber á herðum sér, látinn
færa þær. Og hann hefur nú vald og mátt til að knýjia kröfur
sínar fram.
Mikil vandamál hafa lengi beðið lausnar og em óleyst eim.
Þau verða ekki leyst á annan hátt en þann, að forréttindastéttin
verði látin fóma. NúVerandi ríkisstjórn er algerlega ófær um að
leysa þessi vandamál, af þeirri einföldu ástæðu, að hún er verk-
færi yfirstéttarinnar og miðar aillar sínar gerðir við hagsmuni
hennar. Vandamálin verða ekki leyst fyrr en leppum yfirstéttar-
innar hefur verið vikið úr valdastólunum og fulltrúar almennings
settir í þeirra stað. . , , .
NYJAR BÆKIIR
Týndi arfurinn og i
Ingiríður á Víkurnesi,
báðar eftir Margit Ravn
Gríma 24. hefti
Sherlodk Holmes, 5. hefti ;
Blárra tinda blessað land, |
eftir Áma Óla
Holdið er veikt,
eftir Harald (Á. Sigurðsson
BÖKAVERZLUN (
LÁRUSAR BLÖNDAL