Mjölnir - 06.09.1950, Blaðsíða 1
27. tölublað.
Miðvikudagur 6. sept. 1950.
13. árgangur.
Verkamenn fá 2.24 króna kaup-
hækkun samkv. samningi ríkis-
stjórnarinnar og miðstjórnar ASl
Þyrftu að fá minnst 30% grunnkaupshækkun ti! að vega upp
kjararýmun vegna gengislækkunarinnar.
Bændur krefjast 21,4% verðhækkunar á fram-
leiðsluvörum sínum.
Svilkasamningur Alþýðusam-
bandsstjórnar og ríkisstjórnar-
innar, sem sagt var frá hér í
blaðinu í s'íðustu viku, hefur nú
að nokkru verið gerður opinber.
Ríkisstjórnin hefur failizt á, að
gengislækkunarvísitalan hækiki
um 3 stig, úr 112 stigum upp í
115. (Væri hún rétt reiknuð út,
ætti hún að vera 117 eða 118
stig). Á móti fellur stjórn Al-
þýðusambandsins frá öllum
kröfum um kaupgjaldshækkan-
ir til að vega upp þá miiklu
kjararýrmm, sem gengislækk-
unin hafði í för með sér.
LOFORÐ HELGA HANNES-
SONAR OG CO.
Hér er um að ræða einhver
svívirðilegstu svik, sem um get-
ur í sögu íslenzkrar verkalýðs-
hreyfingar. Framkoma Alþýðu-
sambandsstjórnar í þessu máli
sýnir gleggra en noklkuð annað
í hvers þjónustu hún er.
21. júlí s.l. sagði Helgi Hann-
esson:
„Verkalýðshreyfingin verður
að....fá uppborna ekki aðeins
réttmæta launahækkun, sem
ríkisstjórnin ætlar nú, með síð-
ustu framkomu sinni að hafa
af launþegum (hér er átt við
vlísitölufölsunina í júli. Aths.
Mjölnis), heldur og alla þá
kjararýmun, sem gengisfelling-
in hefur orsakað“.
2,24 KRÓNUR í STAÐ 13,20.
Reiknað hefur verið út, að
til þess að ,,fá uppborna ...
alla þá kjararýrnun, sem geng-
islækkunin hefur orsakað“, —
þyrftu verkamenn og launþegar
almennt að fá minnst 30%
grunnlkaupshækkun. Yrði þá
dagkaup verkamanna, sem hatfa
kr. 9,24 í grunn, um 96 krónur
á dag, eða kr. 13,20 hærra en
það var fram að síðustu mán-
aðamótum.
|Nú hefur Helgi Hannesson
og félagar hans fallizt á að
hætta við allar fyrirætlanir um
að fá fram þessa hækkun, ef
ríkisstjórnin vilji vera svo góð
að fallast á hsekkun, sem nem-
ur kr. 2,24 á dag!
EFNDIRNAR Á LOFORÐI
HELGA HANNESSONAR
í bréfi, sem sambandsstjórn-
hefur nýlega sent sambandsfé-
lögunum, segir hún, að „með
setningu hinna nýju bráða-
birgðalaga og útreikningi nýrr-
ar vísitölu, teljum við burtu
fallnar þær megin ástæður, er
lágu til grundvallar því, að við
lögðum til við samibandsfélögm,
að iþau segðu upp samningum
sínum“.
Þetta eru efndirnar á stóru
loforðunum, sem Helgi Hannes-
son gaif 21. júli og ibirt eru hér
að ofan!
1 niðurlagi ibréfsins grobbar
svo sambandsstjórn af þessu
einstæða afreki sánu, og telur
það einn stærsta sigur, sem
alþýðusamtökin á íslandi hafi
unnið!
STÓRKOSTLEG VERHÆKK-
UN Á LANDBÚNAÐARVÖR-
UM YFIRVOFANDI
Ástæðan tii þess, að svika-
samningurinn var hespaður af
fyrir síðustu mánaðamót, er sú,
að samkvæmt lögum á að
ákveða verðlag á landbúnaðar-
afurðum i ibyrjun september.
Hefur nú Stéttarsamband
bænda haldið fund og Ikomizt
að þeirri niðurstöðu, að til þess
að fá uppborna þá kjaraskerð-
ingu, sem bændur hafi orðið
fyrir vegna gengislækkunar-
innar, þurfi þeir að fá minnst
21,4% verðhækkun á fram-
leiðsluvörum sínum. Er senni-
legast, með hliðsjón aif því,
hvað gengislæklkunarflokkarnir
eiga mikið undir kjörfylgi í
sveitunum, að þeir verði við
þessari kröfu bænda að mestu,
eða jafnvel öllu leyti.
Verði landbúnaðarvörur
hækkaðar í verði, þýðir það
raunverulega kjararýmun fyrir
verkamenn og launþega. Allar
líkur benda því til þess, að út-
koman af samningamakki Al-
þýðusambandsstjómar við rík-
isstjómina verði raunveruleg
KAUPLÆKKUN en eldd kaup-
hækkun.
SAMNINGURINN birtur allur
í Iiaust eða vetur.
Þetta ,sem hér hefur verið
rætt er einn hluti samningsins
milli gengislækkunarflokkanna
og Alþýðuflokksforus'tunnar. I
honum munu vera leyniákvæði,
sem ekki verða birt opinber-
lega, en munu koma 'í ljós
smátt ogi smátt. M.a. er ákveð-
ið, að gengislæklkunarflokkarnii'
slkuli veita Alþýðuflokknum
alla þá aðstoð, sem þeir mega
í Alþýðusambandskosningunum
í haust. Takizt þessu aftur-
haldsbandalagi að halda meiri-
hlutanum í Alþýðusambandinu,
á Alþýðuflokkurinn að fá sæti í
ríkisstjórninni síðar í haust eða
í vetur, og bitlingum sínum
eiga krataforingjarnir í öllu
falli að halda, hvernig sem allt
veltur, en eins og kunnugt er,
hótuðu stjórnarflokkarnir krata
foringjunum bitlingamissi, ef
þeir hættu ekki við allar kaup-
hækkunarkröfur, og mun sú
hótun hafa riðið baggamiminn
um afstöðu þeirra í kjaramál-
unum.
99
Gjaftr eru yður gefnar
99
Siglfirzkir verkamenn láta sér nægja vinn-
una yfir sumarmánuðina, en LIGGJA í
LETI á vetrum, segir Vísir.
Dajgblaðið Vísir; sorpsnepillinn, sem Björn Ólafsson visi-
töluráðherra og stéttarbræður hans gefa út fyrir fé, er sogið
er af almenningi gegnum heildsalaeinolkunina, gerir Siglufirði
þann vafasama heiður að birta um hann ritstjórnargrein
þann 1. þ.m. Er þar fyrst flíkað ýmiskonar nýstárlegri speki,
eins ogi þeirri, að „hin róttæka verkalýðslireyfing norðan-
lands“, þ.e. „kommúnistar“ hafi „flutt sig um set“, frá
Akureyri til Siglufjarðar, er séð varð að miðstöð síldariðn-
aðarins mundi verða hér, og að síldarleysið undanfarin sex
sumur sé þvií að kenna, að „síldin hefur fengið óbeit á Sif/Iu-
firði eftir að kommúnistar hófust þar til álirifa“. Síðan er
tekið fram, 1 sambandi við ifyrirhuguð kaup á öðrum togara
til Siglufjarðar, að iSiglufjörður muni „vera einhver þyngsti
bagginn á ríkissjóðnum af bæjar- og sveitarfélögum hér
innanlands“ (sic.) 1 niðurlagi greinarinnar kemur svo skýr-
ingin á þvi hversvegna hag Sigluf jarðar sé nú komið eins og
raun iber vitni. Siglfirzlkir kommúnistar (þ.e. siglfirzkir verka
menn).
„hafa látið sér nægja vinnuna yfir sumarmánuðina, en
LEGIÐ f LETI á vetrum, ef frá er talin þjónusta þeirra
við flokkinn, og skemmdarstarf gagnvart atvinnurek-
endum“.
Kannast verkamenn við tóninn ? Muna þeir eftir atvinnu-
leysisárunum fyrir stríð, þegar málgögn yfirstéttarinnar
völdu atvinnuleysingjum nafngiftir eins og „letingjar“,
„slæpingjalýður“ og „baggi á þjóðinni“, þegar bollalagt var á
AJþingi um, á hvern hátt mætti losa „heiðarlega skattborg-
ara“ (þ.e. atvinnurekendur og heildsala) við þennan bagga?
Ógeðslegast er þó að lesa þessar letiaðdróttanir í garð at-
vinnulausra verkamanna í málgagni heildsalapakksins og
landeyðuhyskis þeirra, sem aldrei vinnur ærlegt handtak,
hvorki vetur, sumar, vor né haust, en lifir- kóngalífi allt
árið um Ikring á stolnum arði af vinnu heiðarlegs fólks.
Lítið orðið eítir af
túkallinum!
Mjólkurafurðir hækka í verði um 17,14%.
1 gærkvöldi var lesin upp í
útvarpinu tilkynning frá verð-
lagsráði landbúnaðarins um;
verðhækkun á mjólk og mjólk-
urafurðum. Hækka þessar vör-
ur nú í verði um 17,14%.
Samkvæmt þessu verður verð
BRÉF FRA LESANDA „SIGLFIRÐINGS"
Heiðraði lesandi! J?ó að ég
um langt árabil hafi verið les-
andi blaðsins „Siglfirðings“ og
sammála mörgu því, sem það
hefur haft að flytja, þá áræddi
ég ekki að biðja ristj. þess að
birta þetta bréf mitt og sneri
mér því til ritstj. Mjölnis, sem
góðfúslega lofaði að birta það.
Eg hafði fyrir nokkru h-ugsað
mér að skrifa þetta bréf, en
það hefur dregist því yfirleitt
er ég bréflatur, og þá ékki sízt
þegar það skal þrykkjast á
prent.
iÉg sagði áðan, að ég hefði
lengi verið lesandi „Siglfirð-
ings“ og ég hef oft haft ánægju
af að lesa það, sem í honum
hefur staðið, en það var raunar
áður en núv. ritstjóri tók við.
S'iðan man ég ekki eftir að
hafa séð sérstaklega eftirtekt-
arverða grein í blaðinu, nema ef
vera slkyldi greinar Bjarna bæj
arfógeta fyrir kosningarnar í
haust. Þær vöktu athygli allra
fyrir sérkennileik sinni.
Og nú kem ég að því, sem
kom mér til að skrifa þetta
bréf. Fyrir um hálfum mánuði
kom í „Siglfirðingi“ gfein, sem
vaJkti athygli mína, ekki þó á
sjálfri sér heldur höfundi sín-
um, sem ég tel vera ritstj.
sjálfan. Grein þessi bar yfir-
skriftina „Vopn enx gerð til
víga“. Aldrei hefði mér getað
komið 'i hug, að fullvita manni
gæti þótt boðlegt stórum hópi
lesenda slíkt ritsmíð og þetta,
og má ifyrr vera vantrú og
næstum fyrirlitning á dóm-
greind lesenda að bjóða þeim
upp á slíkt. Grein þessi er um
kommúnista og meintan víg-
búnað þeirra og segir svo á ein-
um stað: „En á bak við allan
orðaflauminn um sovétfrið sér
í vígbúnaðarkapphlaup Sovét-
ríkjanna. Sovétrílkin hafa 175
„divisjónir undir vopnum. Til
samanburðar má geta þess, að
lýðræðisríkin hafa 12. Sovét-
ríkin hafa 40 þús. skriðdreka.
Lýðræðisþjóðirnar aðeins nokk-
ur hundruð. Sovétríkin eiga
19 þús. flugvélar. Lýðræðis-
þjóðirnar eiga aðeins brot úr
þeirri tölu. Og kafbátafloti
Stalíns er stærri en Hitlers á
sínum tíma.“ Þetta er kjaminn
úr þessari grein, og ég er viss
um, að fleirum fer eins og mér
(Framliald á 4. síðu)
á algengustu mjólkurafurðum
í smásölu, sem hér segir:
Mjólk .......... Ikr. 2,57 Itr.
Rjómi ........... — 18,90 —
Mjólkurbússmjör — 42,50 kg.
Bögglasmjör..... — 40,20 —
Mjólkurostur, 40% — 19,50 —
Mjólkurostur 30% — 14,10 —
Mjólkurostur 20% — 10,30 —
Mysuostur....... — 9,50 —
Skyr ............ — 4,50 —
Verðlagning þessi er bundin
því skilyrði, að ríkissjóður
greiði 30 aura með hverjum
mjólkurlítra, sem seldur er til
mjólkurbúanna. Ef mjólkin
verður eklki greidd niður, hækk
ar hún meira í útsölu.
Ekki er neinn efi á því, að
stjóm A.S.I. hefur fengið að vita
nokkurnveginn hvað , miklar
hæklkanir á landbúnaðarafurð-
um væra yfirvofandi, þegar
hún var í samningamakkinu við
ríkisstjórnina og knúði fram
túkallinn fræga.
Nú getur hver og einn reikn-
að út fyrir sig eða sitt heimili,
hvað mikið sé eftir af túkall-
inum eftir þessa hækkun —
hvað þá þegar samskonar eða
e.t.v. meiri hækkun hefur verið
ákveðin á kjöti og garðávöxt-
um, sem verður eflaust ein-
hvern næstu daga.
MUNIÐ HAPPDRÆTTI
- ÞJÓÐVILJANS